Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 57
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38 | 105 Reykjavík | 514 8000 | info@grand.is | islandshotel.is
VILLIBRÁÐARBRUNCH
3. nóvember
5.800 kr. á mann
Börn 6-11 ára fá 50% afslátt
5 ára og yngri fá frítt
Villibráðarhlaðborð
26. október
2. nóvember
VILLIBRÁÐARHLAÐBORÐ
VILLTA KOKKSINS Á GRAND HÓTEL
15.900 kr. á mann
Pantaðu borð á islandshotel.is
veitingar@grand.is
eða í síma 514-8000
Úlfar Finnbjörnsson, yfirkokkur
á Grand Hotel Reykjavík, reiðir fram
60 ómótstæðilega veislurétti
úr úrvals villibráð
UPPSELT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Svalasta sam-
starf síðari ára
Fabrikkupítsan Hér erum við með súrdeigsbotn, ostablöndu, sveppi, lauk
og hvítlauksolíu. Pítsan er bökuð á 350-400 gráðum og síðan er hægeldað
nautainnanlæri, brakandi ferskt Rucola, sultaður rauðlaukur og Fabrikku-
bernaisesósa sett ofan á.
Hver man ekki eftir því þegar SkjárEinn var með
viku þar sem umsjónarmönnum var víxlað milli
þátta með eftirminnilegum hætti? Nú hafa meist-
ararnir á bak við Hamborgarafabrikkuna og Black-
box ákveðið að vera með svipaðan gjörning og út-
koman er með því betra sem sést hefur lengi.
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Um er að ræða samstarf sem felur í
þér að Blackbox hefur þróað pítsu
sem minnir um margt á hamborgara
og mætti best lýsa sem ljúffengum
óði til Fabrikkunnar og þess besta
sem hún hefur upp á að bjóða. Fa-
brikkumenn gerðu slíkt hið sama og
hönnuðu hamborgara sem er í reynd
pítsa. Hljómar spennandi? Svo
sannarlega og til að taka samstarfið
enn lengra virkar það þannig að ef
þú ferð á annan hvorn staðinn og
pantar þér gjörninginn
(eða óðinn) þá færðu 2
fyrir 1 af gjörningnum
á hinum staðnum.
Það eru þeir Jóhannes Ásbjörns-
son á Fabrikkunni og Karl Viggó
Vigfússon á Blackbox sem eiga
heiðurinn að þessu skemmtilega
uppátæki en samstarf sem þetta
hefur ekki verið mjög algengt hér-
lendis en er vinsælt erlendis. Þar
kallast kokkar og veitingastaðir á
og er útkoman alla jafna stór-
skemmtileg. Að sögn Jóhannesar
var aðdragandinn að samstarfinu
hein áskorun. „Blackbox skoraði á
okkur og það er ekki annað hægt en
að taka svona áskorun enda vissum
við að útkoman yrði geggjuð. Að
búa til hamborgara undir áhrifum
frá Blackbox og þeir að gera
pítsu undir áhrifum frá Fabr-
ikkunni.“
Blackbox-borgarinn 130 g hágæðaungnautakjöt, beikon hvítlauksristaðir
sveppir, klettasalat og pitsumajó í dúnmjúku kartöflubrauði. Á toppnum er
svo „pítsan“ með Blackbox-pítsusósu, pítsuosti og pepperóníi.
Pönnukökur eru mikið lostæti og fremur fljótgerðar.
Það er því bráðsnjallt að vera í ágætist pönnuköku-
þjálfun til að geta skellt í létt millimál, morgunmat eða
kaffi eftir því sem við á. Það er hin eina sanna Linda
Ben sem á heiðurinn af þessari uppskrift og henni
bregst ekki bogalistin frekar en fyrri daginn.
Bláberjapönnukökur
4 dl haframjöl
1 tsk. lyftiduft
2 egg
1 frekar lítill banani
1 krukka grísk haustjógúrt frá Örnu Mjólkurvörum.
1 tsk. vanilludropar
mjólk eftir þörfum
3 dl fersk bláber
Aðferð:
Setjið öll innihaldsefni fyrir utan mjólkina og bláberin
saman í blandara og blandið þar til deig hefur mynd-
ast.
Ef deigið er mjög þykkt, bætið þá mjólk út í deigið til
að gera það þynnra eftir þörfum, (gott að byrja á 2
msk., hræra og setja svo meira).
Setjið bláberin í deigið og hrærið saman með sleikju.
Setjið deig á pönnu, u.þ.b. ½-1 dl, steikið á hvorri hlið
á meðalhita, þar til pönnukakan er bökuð í gegn.
Bláberjapönnukökurnar sem allir elska
Morgunblaðið/Linda Ben
Hollar og bragðgóðar
Það er fátt betra en að
skella í pönnukökur þeg-
ar hungrið sverfur að.