Morgunblaðið - 26.09.2019, Page 62
AFTURELDING
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Væntingarnar eru ekki of miklar.
Við erum með það að markmiði að
halda okkur í efstu deild á næsta
tímabili. Um það snúast þær vænt-
ingar sem við gerum til okkar. Liðin
í deildinni eru hins vegar mörg mjög
breytt og því svolítið erfitt að kort-
leggja deildina svona snemma á
tímabilinu,“ sagði Þóra Guðný
Arnarsdóttir, leikmaður Aftureld-
ingar, þegar Morgunblaðið ræddi við
hana um keppnistímabilið sem er ný-
hafið í Olísdeildinni í handknattleik.
Afturelding hafnaði í efsta sæti í
næstefstu deild á síðasta tímabili og
vann liðið sautján leiki af tuttugu.
Afturelding var síðast í efstu deild
árið 2016. Hafnaði þá í 13. sæti af
fjórtán liðum. Nú tekur við meiri al-
vara að sögn Þóru.
„Það var auðvitað auðveldara að
vera í „grillinu“ (Grill 66-deildinni) í
fyrra og meira kæruleysi. Nú er
þetta alvöru og við þurfum að læra
inn á að vera að keppa við bestu lið
landsins. Margar í liði okkar eru
vanar að vera í deildinni fyrir neðan.
Nú þarf einfaldlega að fórna meiru
fyrir handboltann eða forgangsraða í
kringum boltann,“ benti Þóra Guðný
á.
Tækifæri til að afsanna spá
Í árlegri spá forráðamanna lið-
anna var Aftureldingu spáð neðsta
sæti í deildinni, eins og nýliðar lenda
oft í þegar spáð er í spilin. Þóra segir
það ekki vera slæmt að vera spáð
neðsta sæti og slíkt megi vinna með.
„Mér finnst ekki slæmt að spáin
líti svona út og þá er engin pressa á
okkur. Þá eru kannski litlar vænt-
ingar gerðar til liðsins yfir höfuð,
hvort sem það er í baklandi okkar
eða hvernig önnur lið líta á okkur.
Við getum sýnt hvað í okkur býr án
þess að vera undir pressu og afsann-
að þessa spá. En það kom mér ekk-
ert á óvart að þetta yrði hlutskipti
okkar í spánni,“ sagði Þóra.
Haraldur Þorvarðarson stýrir
Aftureldingarliðinu, en hann er
kunnur keppnismaður í handbolt-
anum. „Hann gerir kröfur til okkar
enda vill hann vera áfram í efstu
deild á næsta ári eins og við. Hann
vill auðvitað að við gefum allt í
þetta.“
Vel að öllu staðið í Mosó
Leikmannahópur Aftureldingar
hefur tekið breytingum á milli tíma-
bila. Er þess freistað að styrkja liðið
með tveimur erlendum leikmönnum.
Anamaria Gugic kom frá Frakklandi
og Roberta Ivanauskaite lék í
Þýskalandi síðasta vetur. Þóra segir
andann vera góðan í leikmannahópn-
um hjá Aftureldingu.
„Andrúmsloftið er mjög gott.
Hópurinn nær vel saman og í honum
eru sterkir persónuleikar. Andinn er
auk þess góður. Fyrir nokkrum ár-
um var umræða um að ekki væri jafn
mikið gert fyrir konurnar og karl-
ana. Eftir að ég kom til Aftureld-
ingar hef ég ekki fundið fyrir því.
Það er búið að taka svakalega vel á
því og stjórnin er mjög sýnileg. Ég
er mjög ánægð með alla umgjörð í
kringum liðið í Mosó,“ sagði Þóra
Guðný Arnarsdóttir enn fremur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Nú þarf að
fórna meiru
fyrir boltann
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Ný Anamaria Gugic frá Króatíu er komin til liðs við Aftureldingu frá Octe-
ville í frönsku B-deildinni og skoraði sjö mörk gegn Val í annarri umferð.
Nýliðunum í Mosfellsbænum var
spáð neðsta sæti í deildinni í vetur
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Eva Aðalsteinsdóttir
Katrín Helga Davíðsdóttir
Kristín Arndís Ólafsdóttir
Roberta Ivanauskaite
Telma Rut Frímannsdóttir
Þóra María Sigurjónsdóttir
Þjálfari: Haraldur Þorvarðarson.
Aðstoðarþjálfari: Haraldur Daði
Hafþórsson.
Árangur 2018-19: Sigurvegari í 1.
deild.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Afturelding tapaði 13:15 fyrir
ÍBV í 1. umferð og 18:28 fyrir Val
í 2. umferð, í bæði skiptin á úti-
velli. Afturelding tekur á móti
Fram í 3. umferð 5. október.
MARKVERÐIR:
Ástrós Anna Bender Mikaelsd.
Eva Dís Sigurðardóttir
HORNAMENN:
Fanney Björk Guðmundsdóttir
Íris Kristín Smith
Ósk Hauksdóttir
Ragnhildur Hjartardóttir
Silja Ísberg
LÍNUMENN:
Andrea Ósk Þorkelsdóttir
Brynja Rögn Ragnarsdóttir
Þóra Guðný Arnarsdóttir
ÚTISPILARAR:
Anamaria Gugic
Ásdís Alexandersdóttir
Lið Aftureldingar 2019-20
KOMNAR
Anamaria Gugic frá Octeville
(Frakklandi)
Ásdís Alexandersdóttir frá HK
Eva Aðalsteinsdóttir frá ÍBV
Roberta Ivanauskaite frá Neck-
arsulmer (Þýskalandi)
Silja Ísberg frá ÍR
Telma Rut Frímannsdóttir, úr
námsleyfi
FARNAR
Ásta Margrét Jónsdóttir í Fjölni
Drífa Garðarsdóttir í Gróttu (lán)
Jónína Líf Gísladóttir í Gróttu
Kyio Inage í japanskt félag
Rakel Dóra Sigurðardóttir, hætt
Selma Rut Sigurbjörnsdóttir í
barnsburðarleyfi
Breytingar á liði Aftureldingar
Liðið er óskrifað blað, með tvo útlendinga sem
verður fróðlegt að sjá.
Afturelding er með blöndu af ungum og reynd-
um leikmönnum.
Markmiðið er að halda sér í deildinni, sem getur
alveg gengið.
Áhugavert: Að sjá hvort nýtt lið í deildinni nái
að halda sér þar.
Guðríður Guðjónsdóttir
um lið Aftureldingar
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir U – FH U ................... 20.30
Í KVÖLD!
Stjarnan hefur lánað knattspyrnu-
konuna Jasmín Erlu Ingadóttur til
kýpversku meistaranna Apollon Li-
massol. Hún getur spilað fyrsta leikinn
með liðinu á sunnudaginn kemur og
lánssamningurinn gildir til 31. mars en
Stjarnan getur kallað Jasmín heim
hvenær sem er eftir 15. janúar. Jasmín
er 21 árs miðjumaður og var í byrj-
unarliði Stjörnunnar í öllum leikjunum
í úrvalsdeildinni í ár.
Fyrirliði kvennaliðs Keflavíkur í
knattspyrnu, Natasha Anasi, hefur
skrifað undir nýjan samning við félag-
ið til tveggja ára. Hún var meðal bestu
leikmanna úrvalsdeildarinnar í ár, varð
m.a. í 2.-3. sæti í M-gjöf Morgunblaðs-
ins, en ætlar að spila með Keflavík í 1.
deildinni á næsta ári. Natasha er 28
ára gömul, er frá Bandaríkjunum en
hefur leikið á Íslandi, með ÍBV og
Keflavík, frá 2014.
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorláks-
hafnar hefur samið við Bandaríkja-
manninn Vincent Bailey um að leika
með liðinu í vetur. Bailey er 28 ára
gamall framherji sem lék með Bon-
court í svissnesku A-deildinni á síð-
ustu leiktíð.
Haraldur Franklín Magnús er í
fimmta sæti eftir fyrsta hring á Lind-
bytvätten Masters-mótinu á Nordic
Golf-mótaröðinni. Haraldur lék á 67
höggum, fimm höggum undir pari.
Eitt
ogannað