Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 14
14
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
www.virk.is
Það er mjög mikilvægt að þróa áfram
samstarf við vinnustaði um allt land
með það í huga að þeir verði öflugir
þátttakendur í því verkefni að koma
fleirum sem hafa skerta vinnugetu
til starfa. Hér þarf bæði að aðstoða
stjórnendur við að mæta þörfum eigin
starfsmanna sem og taka á móti nýjum
starfsmönnum með skerta starfsgetu.
Rannsóknir og þróun
Meðal hlutverka VIRK, samkvæmt skipu-
lagsskrá, er „að vinna að gagnaöflun,
rannsóknum og þróun endurhæfingar
og tryggja að framkvæmd þeirra verði
sem árangursríkust“. Í október samþykkti
stjórn sjóðsins reglur um úthlutun styrkja
úr Starfsendurhæfingarsjóði vegna rann-
sóknarverkefna. Þessar reglur er að finna
á heimasíðu sjóðsins. Í reglunum eru sett
fram markmið og áherslur, ýmis skilyrði
fyrir styrkveitingum auk ákvæða um
fjárhæðir, umsóknarferli og afhendingu
styrkja. Framkvæmdastjórn sjóðsins tekur
ákvarðanir um styrkveitingar.
Sérfræðingar sjóðsins hafa lagt áherslu
á að afla gagna og þekkingar um fyrir-
komulag stafsendurhæfingar erlendis og
þá sérstaklega á Norðurlöndum ásamt
Bretlandi, Kanada og Ástralíu. Í þessari
gagnaöflun hafa komið fram margar
góðar hugmyndir sem hafa nýst í þróun
á starfshæfnismati, þróun starfsaðferða
og áherslna og við útgáfu upplýsinga- og
fræðslubæklinga á vegum sjóðsins.
Um höfundinn
Vigdís Jónsdóttir er framkvæmdastjóri
Starfsendurhæfingarsjóðs. Hún er hag-
fræðingur að mennt, með framhalds-
menntun á sviði mannauðsstjórnunar og
alþjóðlega IPMA vottun í verkefnastjórnun.
Hún hefur starfað sem stjórnandi
og verkefnastjóri stórra verkefna í
atvinnulífinu í mörg ár og einnig stýrt
fyrirtæki í heilbrigðisrekstri. Vigdís starfaði
sem hagfræðingur Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga á árunum 1992-1999.