Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 69
VIÐTAL
Ýmislegt var í boði en við nánari athugun
þá datt okkur í hug að skoða starf sem laust
var hjá Bakarameistaranum. Ég byrjaði á að
fara í prufu. Síðan fékk ég samning til þriggja
mánaða. Ég var svo ráðinn áfram eftir þann
reynslutíma og er nú þar í föstu hlutastarfi.“
Hvað vinnur þú við hjá
Bakarameistaranum?
„Ég byrjaði strax sem frostmaður og er í
því starfi enn. Ég byrjaði í fimmtán prósent
vinnu en hef aukið við mig starfshlutfallið
upp í þrjátíu prósent.“
Hvað gerir frostmaður?
„Ég sé um að setja í kassa djúpfryst deig,
brauðmeti sem fer til verslana út í bæ,
ostaslaufur og fleira. Þetta er geymt í frysti
þannig að ég þarf að vinna í miklum kulda.
Ég þarf að hafa kassana tilbúna til sendinga.
Þetta er mikilvægt starf að því leyti að
afgreiðslan gengur hratt fyrir sig ef allt er
tilbúið til afhendingar.“
Einn af „Bakarameistara-
fjölskyldunni“
Hvernig gengur þér félagslega á
vinnustaðnum?
„Það gengur vel, manni líður eins og maður
sé hluti af fjölskyldu, „Bakarameistara-
fjölskyldunni“. Reyndar er það fjölskylda
sem á fyrirtækið en svo bætumst við inn í
sem vinnum þarna. Við erum um tuttugu
sem vinnum á efri hæðinni í Suðurveri við
ýmis störf, bakstur og fleiru því tengt.“
Hvernig fannst þér samstarfið við VIRK?
„Ég var frekar stutt þar í samstarfi. Ég frétti
af VIRK í gegnum Laugarás, þar sem ég
hafði verið. Framan af skólagöngu minni
gekk mér þokkalega í skóla en þegar leið
á unglingsárin þá varð ég illa haldinn af
einbeitingarskorti og féll út úr námi. Eftir
það lá leið mín í Laugarás. Í samstarfinu
við VIRK ákvað ég að taka mikið stökk, fara
aftur í nám. Ég er í tveimur fögum, ensku
og félagsfræði, í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla og það gengur ágætlega. Ég var
svolítið stressaður fyrst, hafði ekki verið í
skóla í rúm tvö ár, en fljótlega eignaðist ég
félaga. Þeir sem ég hafði verið með voru
þá komnir lengra í náminu og ég átti ekki
samleið með þeim.
Skilningur á að ég vildi fara
hægt af stað
Á Laugarási frétti ég fyrst af VIRK. Mér
var sagt að VIRK væri mjög heppilegur
áfangastaður til þess að komast út á vinnu-
markaðinn – án þess þó að „hoppa beint út í
djúpu laugina“. Mér fannst ég ekki geta það
á þeim tíma. Ég var rösklega tvítugur þegar
ég sneri mér til VIRK og hafði þá aðeins
unnið í vinnuskóla og borið út Morgunblaðið.
Ég hafði því litla reynslu af hinum harða
vinnumarkaði. Því var sýndur skilningur að
ég vildi fara hægt af stað.“
Gerðir þú eitthvað meðfram því að vinna
og fara í skóla til að bæta líðan þína?
„Já, í samráði við VIRK þá fór ég að hreyfa
mig miklu meira en ég gerði áður. Það finnst
það kannski sumum fyndið en ég hef lést
um rúmlega tuttugu kíló síðan ég fór að
vinna hjá Bakarameistaranum – margur
kynni að halda að það yrði á hinn veginn.
Ég léttist vegna aukinnar hreyfingar, fer í
ræktina, fótbolta og sund – svo er líkamlega
erfitt það sem ég geri í vinnunni. Ég vinn inni
í átján gráðu frosti líkamlega erfiða vinnu,
lyfti kössum og þess háttar, það reynir á.“
Hvernig ertu klæddur í vinnunni?
„Ég fer í sérstaka úlpu, húfu og vettlinga.
Annars gæti maður ekki þolað að vinna
í svona miklu frosti. Kuldinn er meiri en
gráðurnar segja til um því það er alltaf
kæliblástur inni í klefanum. Mér fannst þetta
dálítið erfitt í fyrstu en allt venst og þetta
gengur ágætlega. Það kom reglu á líf mitt að
fara að vinna hjá Bakarameistaranum, fara í
skóla og stunda reglubundna hreyfingu. Allt
þetta hefur komið lífi mínu í ákveðið form
sem mér líkar vel. Ég fer stundum ennþá
inn í Laugarás, þar hef ég fengið góðan
stuðning.“
Gott að hafa atvinnulífs-
tengilinn sem bakhjarl
Hvað hjálpaði þér mest fyrstu dagana í
vinnunni?
„Að kynnast nýju og skemmtilegu fólki. Það
sýndi mér frá upphafi gott viðmót, heilsar
þegar ég kem og kveður þegar ég fer. Ég
hafði aldrei verið í „alvöru starfi“ áður, þetta
var því ný reynsla. Atvinnulífstengillinn
hjálpaði mér líka.“
Varstu í miklu sambandi við
atvinnulífstengilinn?
„Já, ég hafði oft samband við hann og hann
fylgdist reglulega með hvernig mér gekk.
Hann bað mig að láta sig vita ef eitthvað
kæmi upp á. Það var mjög gott að hafa
slíkan bakhjarl. Nú er liðið ár og ég er enn í
starfi og kann því vel. Fínt að fá laun, góðan
félagsskap og taka þátt í lífinu á þennan hátt.
Mig langar að geta þess að mikilvægur
þáttur í hve vel mér hefur gengið var Pepp
Upp námskeið sem ég tók þátt í síðasta
haust. Það gerði ég í samstarfi við VIRK og
Laugarás. Það hjálpaði mér ekki síst til þess
að hefja aftur nám. Markmiðið hjá mér er að
komast í fullt nám og vinnu. Ég er þakklátur
fyrir þá aðstoð og þjónustu sem ég hef fengið
hjá VIRK til að komast út á vinnumarkaðinn
og í skólann.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Það kom reglu á líf mitt að fara að vinna hjá
Bakarameistaranum, fara í skóla og stunda
reglubundna hreyfingu. Allt þetta hefur komið
lífi mínu í ákveðið form sem mér líkar vel.“
69virk.is