Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 23
VIÐTAL
Á þessum tíma var ég að vinna sem stuðn-
ingsfulltrúi í skóla en maðurinn minn var í
vinnu á Grænlandi. Ég sinnti dönskukennslu
en fann fljótlega eftir þetta atvik að ég
gæti ekki unnið við þá kennslu, allt sem
minnti mig á Danmörku olli mér kvíða og
vanlíðan. Ég hætti að mæta í vinnuna og
enginn skildi af hverju. Í framhaldinu ræddi
ég við yfirmenn mína og sagði þeim frá
málavöxtum. Mér var boðin önnur vinna og
mín lausn var að þigga það boð í stað þess
að vinna úr hinni slæmu líðan. Ekkert á nýja
staðnum minnti mig á Danmörku en eigi að
síður entist ég ekki lengi í því starfi. Ég varð
veikari og veikari. Ég er með undirliggjandi
vefjagigt og hún er þannig að það þarf að
vera jafnvægi milli líkama og sálar, annars
fer illa. Ég fylltist þunglyndi og kvíða og átti
ofsalega erfitt með að sinna því sem ég þurfti
að gera.
Loks var líðan mín orðin svo slæm að ég
hugsaði með mér að best væri fyrir alla að ég
myndi stytta mér aldur. Ég velti þessu fyrir
mér og komst að þeirri niðurstöðu að best
væri að gera það í október, það væri ekki of
nærri jólum en eftir sumarfrí.
Ég tók að safna að mér lyfjum sem ég fékk
til þess að geta sofið. Ég tók lyfin ekki heldur
faldi þau hér og þar í íbúðinni. Þannig undir-
bjó ég mig fyrir þessa aðgerð. Svo gerðist
það að vinkona mín, sem er læknir, missti
nána vinkonu sína þannig að hún fyrirfór sér
á nákvæmlega sama hátt og ég hafði hugsað
mér að fyrirkoma mér. Hún sagði mér frá
þessu og það fékk mig til að hugsa. Ég fann
að ég gat ekki fengið af mér að fyrirfara
mér og særa hana þannig enn meira. Svo
undarlega sem það hljómar þá velti ég ekki
fyrir mér afleiðingum dauða míns fyrir börnin
mín þrjú og eiginmann. Mér fannst þvert á
móti að þau væru mun betur stödd án mín.
Í framhaldi af þessum hugsunum þá hringdi
ég í vinkonu mína, lækninn, og sagði henni
hvað ég hefði verið að undirbúa.
„Þú ferð beint upp á bráðamóttöku geð-
deildar strax eftir helgina,“ sagði hún. Fólk
getur ekki orðið geðveikt á Íslandi nema á
virkum dögum – þetta var um helgi og þá er
bráðamóttakan lokuð.
Eftir samtalið ákvað ég að tala við manninn
minn. Ég vissi undir niðri að ef ég segði
honum þetta ekki myndi ég ekki fara upp
á geðdeild og allt héldi áfram í sama farinu.
Innlögn á geðdeild
Þetta gerðist í júní 2014. Maðurinn minn ók
mér upp á bráðamóttöku geðdeildar strax á
mánudegi. Ég fór ein inn og fékk samtal við
sálfræðing. Ég var viss um að ég yrði send
heim en það var öðru nær. Sálfræðingurinn
vildi ræða við manninn minn í einrúmi og fá
hans álit. Ég hafði haldið að ég hefði leynt
líðan minni vel en hann sagði sálfræðingnum
að ég lægi mikið fyrir, eyddi tíma í tölvunni
en ekki með fjölskyldunni. Hann hafði þó
ekki gert sér grein fyrir hve alvarlega var
komið fyrir mér.
Sálfræðingurinn sagði við manninn minn:
„Heima hjá þér eru töflur faldir á hinum og
þessum stöðum. Þú þarft að fara og sækja
þær. Hafdís verður hér áfram.“
Þetta var mér mikið sjokk. Ég átti að leggj-
ast inn á geðdeild! Augljóslega taldi sál-
fræðingurinn að ég væri sjálfri mér hættuleg.
Ég var svo lögð inn og fyrsta manneskjan sem
ég sá á ganginum var mamma bekkjarfélaga
eins af börnum mínum. Ég fylltist mikilli
skömm. Ég skammaðist mín svo mikið og
leið svo illa að maðurinn minn spurði hvað
væri að. Þegar ég sagði honum það svaraði
hann: „Hafdís, þú ert hvorki fyrsta né síðasta
manneskjan sem leggst inn á geðdeild.
Hættu þessari vitleysu.“ Það hjálpaði mér
mikið að honum skyldi ekki finnast ég minni
manneskja eða skammast sín fyrir mig þótt
ég væri komin inn á geðdeild. Þessi setning
er mér hugstæð enn í dag: „Þú ert hvorki
fyrsta né síðasta manneskjan sem leggst inn
á geðdeild. „Get over it“.
Ég var á geðdeildinni í fimm daga og fékk
þar góða aðhlynningu. Heimilislæknirinn
minn hafði, áður en ég lagðist inn, sótt um
fyrir mig hjá VIRK vegna þess hve honum
fannst ég langt niðri. Ég komst varla út á
leikskóla með dóttur mína og heim aftur.
Þá varð ég að leggja mig og var strax komin
með svo mikla verki.
Við útskriftina af geðdeildinni var mér sagt að
hringt yrði í mig frá spítalanum eftir nokkra
daga til eftirfylgni. En viku síðar hringdi
síminn og karlmannsröddin á línunni sagðist
vera ráðgjafi frá VIRK. Ég hugsaði: „Á ég að
hafa karlmann sem ráðgjafa? Þessi maður
mun aldrei geta skilið mig.“
Hið besta samstarf tókst
við ráðgjafa VIRK
Ég var mjög þurr í bragði og nánast dónaleg
í þessu fyrsta símtali við ráðgjafann frá VIRK.
Hafði allt á hornum mér og sagðist vera að
fara í sumarbústað. Það endaði þó með því
að ég féllst á að koma og tala við hann en var
þess fullviss að þetta myndi aldrei ganga.
Varla hafði ég þó hitt ráðgjafann þegar ég
fann að þetta var rangt mat. Ráðgjafinn hjá
VIRK reyndist mér afskaplega vel. Svona var
ég fordómafull.
Með mér og ráðgjafanum tókst hið besta
samstarf. Við vorum í reglulegu sambandi.
Í fyrsta viðtalinu lét hann mig taka próf og
gefa sjálfri mér einkunn á allskonar sviðum
tilverunnar.
„Þú ætlast til of mikils af þér,“ sagði ráð-
gjafinn svo að prófinu loknu. Hann útskýrði
fyrir mér að með þá verki sem ég var með
þá gerði ég alltof miklar kröfur á sjálfa mig.
Fyrsta sem við ákváðum svo í sameiningu
var að ég skyldi fá tíma hjá sálfræðingi,
einnig töldum við að mér kæmi að gagni
að fara í Heilsuborg. Aðal vinnan hjá mér í
samstarfinu við VIRK var að sækja tíma hjá
sálfræðingi, sem ég komst strax að hjá.
Hjá sálfræðingnum fór ég að vinna í gömlum
áföllum og þar var af nógu að taka. Fimm
ára gömul þurfti ég að flýja erlendis frá
hingað til Íslands með mömmu minni og litla
bróður vegna heimilisofbeldis sem blóðfaðir
minn beitti. Við flúðum í skjóli nætur og ég
man enn vel eftir þeirri ferð. Viðbrigðin við að
flytja í nýtt land voru talsverð.
Ég er með undirliggjandi vefjagigt og hún
er þannig að það þarf að vera jafnvægi milli
líkama og sálar, annars fer illa. Ég fylltist
þunglyndi og kvíða og átti ofsalega erfitt með
að sinna því sem ég þurfti að gera.“
23virk.is