Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 33
VIÐTAL
Sjáum gífurlegan árangur
Finnst ykkur að VIRK hafi gert mikið fyrir
þá sem þangað sækja?
„Við sjáum hér gífurlega mikinn árangur og
fólk er afar þakklátt VIRK fyrir aðstoðina.
Fyrir kemur að til okkar koma einstaklingar
sem ekki hafa verið í vinnu í tugi ára en eru
svo útskrifaðir héðan út á vinnumarkaðinn.
Slíkir sigrar eru frábærir. Í hvert sinn sem
einstaklingur er útskrifaður í fullt starf eða
hlutastarf er það sigur,“ segja þær Kristbjörg
og Guðleif Birna nánast einum rómi.
„Við segjum þeim gjarnan sem útskrifast
úr samstarfi við VIRK að þeir beri ábyrgð
á eigin heilsu. Flest stéttarfélög niðurgreiða
ýmis heilsuúrræði, það ætti fólk að nýta sér.
Við heyrum oft í þeim sem hér hafa verið í
endurhæfingu og spyrjum þá hvort þeir hafi
hreyft sig og gætt að heilsu sinni – stundum
er svarið nei. Hjá sumum vinnustöðum, þar
sem álag er mikið, ætti að stuðla meira að
heilsubætandi úrræðum. Ábyrgðin þarf líka
að liggja hjá fyrirtækjum og stofnunum,“
segir Kristbjörg.
Er vímuefnavandi ein af ástæðum þess að
fólk hættir að vinna?
„Fólk má ekki vera í virkri neyslu í endur-
hæfingu. Eigi það í vímuefnavanda þarf það
að ljúka meðferð gegn þeim vanda áður en
það kemur inn í þjónustu hjá VIRK. Á slíkt er
í upphafi lagt mat hjá teymi sérfræðinganna.
Fyrir kemur að fólki sé vísað frá þangað til
það hefur gert eitthvað í slíkum málum.
Þetta er þó ekki áberandi vandi hjá þeim
sem hingað leita.“
Verðið þið varar við að einstæðir foreldrar
fái fremur kulnun í starfi en aðrir?
„Allir sem hafa lítinn stuðning eru í meiri
hættu – lítill stuðningur eykur líkur á kulnun
í starfi,“ svarar Guðleif Birna.
Heildarsýnin hjá VIRK skiptir
miklu máli
Hvað varð til þess að þið systur lærðuð
báðar félagsráðgjöf?
„Ég er eldri en Guðleif. Við erum aldar upp á
Keldudal í Skagafirði, í stórum systkinahópi
á heimili þar sem einnig ólust upp
fósturbörn og tekin voru sumardvalarbörn.
Starfsstéttirnar sem við kynntumst helst í
upphafi voru bændur og félagsráðgjafar.
Valið stóð því um þessar starfsgreinar. Ég
fékk snemma áhuga á félagsmálum.
Mín skoðun er að minna sé um streitu í
sveitum en styðst ekki við neinar rannsóknir.
Áhugavert væri að gera slíka könnun.
Vegalengdir á höfuðborgarsvæðinu og meiri
hraði á kannski sinn þátt í þessu. Ég vann
lengi hjá Félagsþjónustunni. Ég var orðin
þreytt á úrræðaleysi og peningaskorti sem
mér fannst þar ríkja um of. Það var ein
ástæðan fyrir því að ég sótti um starf hjá
VIRK. Ég fylgdist af áhuga með VIRK frá
stofnun þeirrar starfsemi,“ segir Kristbjörg.
„Ég þræddi sömu leið og Kristbjörg. Lauk
prófi frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki
og síðan félagsráðgjafanámi frá Háskóla
Íslands. Fór fljótlega í fótspor hennar hér
hjá VIRK. Það hefur verið ánægjulegt fyrir
okkur að starfa hér saman. Samstarf okkar
byggir þó auðvitað á faglegum forsendum.
Stundum þurfum við að hringja hvor í aðra
til þess að tala saman á systranótum,“ segir
Guðleif Birna og hlær.
„Það sem gerir starfið hjá VIRK svo
ánægjulegt er heildarsýnin og að hafa
aðgang að góðum úrræðum og fjármagni til
að geta fylgt einstaklingum eftir á árangurs-
ríkan hátt. Þetta er það sem okkur finnst
svo heillandi við starfið hjá VIRK,“ segja þær
Kristbjörg og Guðleif Birna.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
33virk.is