Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 38
ÁRIÐ 2016 HÓF VIRK
UNDIRBÚNING ÞRÓUNAR-
VERKEFNIS SEM STEFNDI
AÐ ÞVÍ, MEÐ MARKVISSUM
STUÐNINGI FRÁ SÉRFRÆÐ-
INGUM Í STARFSENDUR-
HÆFINGU, AÐ AUKA LÍKUR
EINSTAKLINGA SEM ERU Í
STARFSENDURHÆFINGU
Á ENDURKOMU INN Á
VINNUMARKAÐINN ÞRÁTT
FYRIR SKERTA STARFSGETU.
VIRK ATVINNUTENGING
Lögð var áhersla á að tengja einstaklinga inn á vinnumarkaðinn áður en
starfsendurhæfingunni lauk. Þróunarverkefnið grundvallast á þeirri staðreynd
að því fyrr sem einstaklingar reyna endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys,
því líklegra er að þeir komist aftur út á vinnumarkaðinn. Mikilvægt er því að
einstaklingum með vinnugetu sé gefið tækifæri til að komast í vinnu við hæfi
snemma á starfsendurhæfingarferlinum.
Til þess að auðvelda þetta ferli var ákveðið að ráða sérstaka atvinnulífstengla sem
tóku við einstaklingunum þegar stutt var eftir af starfsendurhæfingunni og byrjuðu að
vinna með þeim að áætlun um endurkomu inn á vinnumarkað. Þannig var aðlögun
inn á vinnumarkaðinn tvinnuð markvisst inn í starfsendurhæfingu einstaklingsins og
atvinnulífstenglarnir tengdu sig, og einstaklinginn í þjónustu, við stofnanir og fyrirtæki.
Magnús Smári Snorrason, Ragnheiður Kristinsdóttir, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Hrönn Hinriksdóttir,
Anna Lóa Ólafsdóttir, Jónína Waagfjörð, Líney Árnadóttir, Þóra Friðriksdóttir.
38 virk.is