Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 74
KLÚBBURINN
GEYSIR
VIRK VEITIR STYRKI TVISVAR
Á ÁRI TIL VIRKNIÚRRÆÐA,
RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNAR-
VERKEFNA EN VIRK ER
HEIMILT SAMKVÆMT LÖGUM
60/2012 AÐ STYRKJA OG
STUÐLA MEÐ ÖÐRUM
HÆTTI AÐ RANNSÓKNUM,
ÞRÓUN OG UPPBYGGINGU Í
ATVINNUTENGDRI STARFS-
ENDURHÆFINGU M.A MEÐ
STYRKVEITINGUM.
H
austið 2016 veitti VIRK í fyrsta
sinn styrki til virkniúrræða sem
styðja við og auka árangur í starfs-
endurhæfingu. Markmið VIRK
með styrkveitingunum til virkniúrræðanna
er að stuðla að samstarfi við aðila sem veita
opið og gjaldfrjálst aðgengi að þjónustu fyrir
einstaklinga sem glíma við heilsubrest sem
hefur áhrif á atvinnuþátttöku þeirra.
Eitt af þeim virkniúrræðum sem hlotið hafa
styrki frá VIRK er Klúbburinn Geysir sem
er atvinnumiðað endurhæfingarúrræði fyrir
fólk með geðraskanir. Grundvallarmarkmið
klúbbsins er að virkja félaga hans til starfa
og koma þeim út í meiri samfélagsvirkni.
Öll vinna félaga í klúbbnum er unnin í
sjálfboðavinnu.
Klúbburinn Geysir starfar eftir hugmynda-
fræði Fountain House sem byggir á að efla
hæfileika og styrk einstaklingsins. Með því
að gefa hverjum og einum tækifæri til að nýta
sínar sterku hliðar þjálfast viðkomandi til
fjölbreyttrar þátttöku í samfélaginu. Í störfum
innan Klúbbsins Geysis er lögð áhersla á
stuðning og virðingu fyrir félögum. Í starfi
Klúbbsins Geysis eru engar kvaðir lagðar
á félaga umfram það sem hver og einn er
tilbúinn að gangast undir. Lögð er áhersla á
jákvæða athygli og horft á styrkleika, í stað
þess að einblína á sjúkdóminn.
Ráðning til reynslu
Í Geysi er atvinnu- og menntadeild, ATOM,
þar sem félagar og starfsmenn vinna að því
að ná tengslum við vinnuveitendur. Ráðning
til reynslu (RTR) veitir félögum tækifæri til
þátttöku á almennum vinnumarkaði.
„RTR er fyrir fólk sem langar að fara að prufa
sig á vinnumarkaði. Er ekki tilbúið að fara í
atvinnu með stuðningi eða ráða sig sjálfstætt
og þurfa mikinn stuðning sem við veitum.
Við horfum sérstaklega til áhuga fólks á að
vinna. Ef áhuginn er mikill er mikilvægt að
leyfa sem flestum að prufa sig í vinnu,“ segir
Þórunn Ósk Sölvadóttir, framkvæmdastjóri
Klúbbsins Geysis, í viðtali við ársrit VIRK.
„Störfin eru hlutastörf, yfirleitt um 4 klst. á
dag eða minna. Við höfum verið með starf
Benedikt Gestsson aðstoðar framkvæmdastjóri Klúbbsins Geysis
tekur við styrk frá VIRK á vordögum 2017.
Bakkinn vöruhótel
er í samstarfi við
Klúbbinn Geysi síðan
haustið 2016. Hjá
okkur starfa þrír félagar
klúbbsins sem eru að
standa sig afbragðs vel
og hafa komist vel inn
í starfið og umhverfið
hjá okkur. Við erum
ánægð með upphaf
þessa samstarfs okkar
og vonum að áframhald
verði á því.“
74 virk.is