Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 61
VIRK
í takt við þá staðreynd að nýgengi örorku
vegna geðraskana hér á landi hefur tvöfaldast
á tímabilinu 2011 til 20164. Frá Danmörku
berast þær fréttir að fjöldi barna og unglinga
sem eru greind með kvíða eða þunglyndi hafi
þrefaldast á sl. 10 árum5.
Í Læknablaðinu árið 2013 birtist viðtal við
Arnór Víkingsson, gigtarlækni, þar sem fram
kemur að vefjagigt sé „ein birtingarmynd
langvinnra, útbreiddra stoðkerfisverkja en
samkvæmt erlendum rannsóknum eru um
8-11% þýðis með slíka verki. Af þeim er um
þriðjungur með vefjagigt og það segir okkur
að hér á landi eru sennilega um 10.000
manns með vefjagigt“6.
þessu mikilvæga vítamíni úr fæðunni og að
styrkur D-vítamíns í blóði þeirra sem hvorki
taka lýsi né önnur fæðubótarefni er töluvert
undir viðmiðunarmörkum. Sérstaklega er
það áberandi að vetri til þegar sól er lágt
á lofti og D-vítamín nær ekki að myndast í
húðinni“7.
Á vef breska heilbrigðiskerfisins, NHS, er
sérstaklega bent á að þeir sem eru mikið
innandyra eða klæðast fötum utandyra sem
hylja mestallan líkamann þurfi að passa að
taka inn D-vítamín8. Hér hvarflar hugurinn að
unga fólkinu sem margt hvert stundar mun
minni útiveru en áður og neytir þess utan oft
ekki D-vítamínríkrar fæðu á borð við feitan fisk.
ef einstaklingur er lítið útsettur fyrir sól skuli
hafa D-vítamínskort í huga við greiningu
vefjagigtar13. Á vef hins virta tímarits BMJ
yfir gagnreyndar aðferðir er D-vítamínskortur
einnig talinn upp sem mismunagreining fyrir
vefjagigt14.
Rannsóknir hafa sýnt að verkjaupplifun
minnki eftir inntöku D-vítamíns. Þannig
sýndi samanburðarrannsókn á 30 vefja-
gigtar sjúklingum með lágt D-vítamín gildi
sem gefið var D-vítamín í 25 vikur enn
töluvert minni verkjaupplifun 24 vikum
eftir að D-vítamíngjöf var hætt. Einnig bætti
meðferðarhópurinn sig verulega hvað
varðar líkamlega virkni og morgunþreytu15.
Í töflu 1 má sjá helstu einkenni kvíða, þung-
lyndis og vefjagigtar borin saman við helstu
einkenni skorts á D-vítamíni, járni og B-12
vítamíni auk einkenna skjaldvakabrests.
Upplýsingarnar eru fengnar af vefsíðum
breska heilbrigðiskerfisins, NHS, og Mayo
Clinic. Hér fyrir aftan verður fjallað örlítið
nánar um skort á fyrrnefndum efnum auk
skjaldvakabrests.
D vítamín
D-vítamín er stundum nefnt sólskins-
vítamínið því líkaminn framleiðir það við
útsetningu húðar á sólarljósi. Einmitt
þess vegna eru þeir sem búa norðarlega
á hnettinum þar sem sólar nýtur í minni
mæli í meiri hættu á að fá D-vítamínskort.
Í grein Laufeyjar Steingrímsdóttur frá árinu
2011 kemur eftirfarandi m.a. fram: „Hver
rannsóknin á fætur annarri síðustu áratugi
hefur sýnt að Íslendingar fá allt of lítið af
Talið er að 20 til 80% af Bandaríkjamönnum,
Kanadabúum og Evrópubúum séu með
D-vítamínskort. Skynsamleg útsetning fyrir
sólarljósi er góð uppspretta D-vítamíns en
hafa þarf í huga að sólarvörn og dökkur
húðlitur hamlar framleiðslu D-vítamíns í húð9.
D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki við
beinmyndun en einnig stóru hlutverki í
ónæmiskerfi líkamans10. Skortur á D-víta-
míni getur valdið beinkröm hjá börnum og
beinmeyru (osteomalaciu) hjá fullorðnum
sem einkennist af óljósum verkjum og
eymslum í beinum og vöðvum auk sífelldrar
þreytu. Þessi einkenni eru nánast þau sömu
og einkenni vefjagigtar en Dr. Holick, sem er
sá aðili sem hefur rannskað D-vítamín hvað
mest, heldur því einmitt fram að beinmeyra
sé oft misgreind sem vefjagigt, síþreyta
eða jafnvel liðagigt11,12. Nýleg grein sem
birtist í Pain Reports rennir stoðum undir
þessa kenningu og benda höfundar á að
Önnur rannsókn frá árinu 2016 sýndi að
einstaklingar með einkenni frá stoðkerfi
og þ.m.t. sumir með greinda vefjagigt
upplifðu minni verki í kjölfar D-vítamíngjafar.
Þátttakendunum, 58 talsins, voru gefnar
50.000 alþjóðlegar einingar af D-vítamíni á
viku í 3 mánuði. D-vítamín gildi þátttakenda
fór frá 10,6 +/- 5,1 ng/mL upp í 46,5 +/-
24,0 ng/mL (P < 0.001). Verkjaupplifun var
marktækt minni og fjöldi þeirra sem mældist
jákvæður fyrir vefjagigtargreiningarviðmið
fór úr 30 (52%) fyrir meðferðina í 20 (34%)
eftir meðferðina (P = 0.013) og voru 85%
sjúklinganna ánægðir með meðferðina.
Höfundar draga þá ályktun að meðferð
með D-vítamíni hafi áhrif á verki í stoðkerfi,
þunglyndiseinkenni og lífsgæði og telja að
sjúklingar með langvarandi verki í stoðkerfi
ættu að undirgangast rannsókn vegna
hugsanlegs D-vítamínskorts16.
Í yfirlitsrannsókn á tengslum D-vítamíns og
EINKENNI / VANDI JÁRNSKORTUR D-VÍTAMÍN skortur B12 skortur SKJALDVAKBR. VEFJAGIGT KVÍÐI ÞUNGLYNDI
Aukinn/hægari hjartsláttur X X X X X
Breytingar á þyngd X X X
Depurð X X X X X
Dofi X
Fölvi í húð X
Einbeitingarskortur/Heilaþoka X X X X X
Höfuðverkur X X
Kulsæli X X
Magnleysi/þreyta X X X X X X X
Minnistruflanir X X
Mæði X X
Óróleiki X
Svefntruflanir X X X
Týðar sýkingar X
Tunga aum/rauð X X
Útbreiddir verkir X X X
Tafla 1
61virk.is