Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 51
VIRK
Starfsmönnum stendur til boða að taka
tvær klukkustundir á viku til að sinna
verkefnum hversdagsins og bregðast við
aðstæðum í einkalífi. Þessir tímar eru
skipulagðir í samstarfi við stjórnendur og
eru ekki uppsafnanlegir á milli vikna. Þessi
tilraun hefur vakið mikla ánægju meðal
starfsmanna sem nýlega voru spurðir um
hvort verkefnið hefði hjálpað þeim við að
takast á við aðstæður í einkalífi og vinnutengt
álag og ef svo væri, á hvern hátt?
„Ég upplifi Skipulagða sveigjanleikann sem
góða gjöf í hverri viku frá frábæra vinnu-
staðnum mínum.“
„Já algjörlega. Skipulagði sveigjanleikinn
hefur haft mikil áhrif til góðs. Auðveldar
mjög að sinna þeim verkefnum sem ég er að
kljást við utan vinnu. Samfélagsleg sem og
persónuleg. Þannig tappar þetta af þrýstingi
sem bætir geðheilsu og eykur starfsánægju.“
Reglulegar mannauðsmælingar eru fram-
kvæmdar meðal starfmanna VIRK. Tilgangur-
inn er að greina með markvissum hætti líðan
og hvernig þeir upplifa vinnuumhverfi og
menningu hjá VIRK. Spurt er um níu þætti í
hvert sinn sem snúa að gæðum og tengslum
við viðskipavini, starfsánægju, sjálfstæði til
ákvarðanatöku, stuðning frá stjórnendum,
kröfur um árangur, skýra framtíðarsýn,
um áhuga, virðingu og hollustu, þjálfun og
þróun og svo er ein opin spurning í hverjum
mánuði sem er valin af stjórnendum.
Þegar niðurstöður liggja fyrir eru þær rýndar
af stjórnendum sem greina umbætur ef
þörf er á og upplýsa starfsmenn. Mjög
ánægjulegt er að sjá hvað tölurnar hafa
komið vel út síðustu mánuði. Sem dæmi má
nefna að þegar starfsfólk var spurt í janúar
hvort þeim þætti skemmtilegt í vinnunni, var
skor þeirra 4,4 af 5 mögulegum. Einnig var
spurt hvort hópurinn sem starfar hjá VIRK
myndi sterka liðsheild, þá var skorið 4,46.
Jafnlaunavottun ÍST 85:2012
Alþingi samþykkti á síðasta ári lög um
að íslensk fyrirtæki eða stofnanir með 25
starfsmenn eða fleiri skuli gangast undir
jafnlaunavottun. Meginmarkmið slíkrar
vottunar er að vinna gegn kynbundum
launamun en miðar einnig að því að
BSI á Íslandi þann 26. mars 2018. Fulltrúi
stjórnenda varðandi jafnlaunakerfið var skil-
greindur og hófst svo formleg vinna í lok
ársins 2017. Það er að mjög mörgu að huga í
þessu ferli en segja má að þar sem VIRK er
með vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt
ISO 9001 stóðum við að mörgu leyti mun
betur en þau fyrirtæki, sem ekki eru með
slíka vottun fyrir.
Byrjað var á að kortlegga hvað væri til stað-
ar hjá VIRK sem tilheyrir vottunarferlinu,
ásamt því að fara yfir vistun á prófskír-
teinum og leyfisbréfum starfsmanna.
Allar starfslýsingar voru endurnýjaðar og
útbúnar nýjar ef þess þurfti. Gera þurfti
margar nýjar stefnur og verklagsreglur og
endurgera þær sem fyrir voru með vísun í
staðalinn.
Tilgangur með
gerð svona samnings
er að starfsmenn upplifi
vellíðan í vinnu og
sálrænt öryggi og ákveði
í sameiningu hvernig
hegðun þeir vilji að ríki
á vinnustaðnum.“
auka starfsánægju og trú starfsfólks á að
mannauðsstjórnun fyrirtækja sé fagleg
og gegnsæ og settir séu mælikvarðar
og markmið í samræmi við viðkomandi
starfsemi. Samkvæmt lögunum þarf starf-
semi eins og VIRK með 25 – 89 starfsmenn
að klára ferli jafnlaunavottunar fyrir árslok
2021.
VIRK setti sér strax það markmið að fá
Jafnlaunavottun ÍST 85:2012 eins fljótt og
auðið væri, eftir að lögin voru samþykkt.
Þegar sviðsstjórar í verkefnahópi höfðu lokið
námskeiðum um innleiðingu staðalsins var
pantaður úttektardagur hjá vottunarstofu
Samskiptasamningur VIRK.
51virk.is