Morgunblaðið - 03.10.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
Björn Sævar Ástvalds-
son, framkvæmdastjóri
Sólóhúsgagna, lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 30. sept-
ember, 66 ára að aldri.
Björn var fæddur 9.
júlí 1953 á Sauðárkróki.
Foreldrar hans eru
hjónin Ástvaldur Óskar
Tómasson bóndi, sem
lést 2007, og Svanfríður
Steinsdóttir húsfreyja,
búsett á Sauðárkróki
og lifir son sinn.
Björn var eigandi
Sólóhúsgagna, sem
framleitt hafa landsþekkt íslensk
húsgögn fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga frá stofnun þess árið 1960.
Má þar nefna hinn sígilda eldhússtól
E60 sem notið hefur mikilla vin-
sælda um margra ára
skeið, Skötuna eftir
Halldór Hjálmarsson
og Sindrastólinn sem
hannaður var af Ás-
geiri Einarssyni.
Björn átti stóran
þátt í að viðhalda fram-
leiðslu íslenskra hús-
gagna allt frá árinu
1989 þegar hann og
eftirlifandi kona hans,
Kristín Rós Andrés-
dóttir, eignuðust fyrir-
tækið.
Með starfi sínu hjá
Sólóhúsgögnum vann
Björn með fjölmörgum hönnuðum
og studdi þá við framleiðslu og sölu á
íslenskum verðlaunahúsgögnum.
Björn lætur eftir sig eiginkonu,
fjögur börn og sex barnabörn.
Andlát
Björn Ástvaldsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Minjastofnun er að undirbúa friðlýs-
ingu elstu skólahúsanna á Bifröst í
Borgarfirði. Rektor Háskólans á
Bifröst og byggðarráði Borgar-
byggðar líst vel á áformin en leggja
áherslu á að húsin nýtist áfram til
starfsemi skólans og að fjármunir
fylgi til þess að unnt verði að halda
mannvirkjunum við.
Minjastofnun hefur sent drög að
friðlýsingarskilmálum til Háskólans
á Bifröst og Borgarbyggðar til um-
sagnar.
Undirbúningur hefur staðið lengi.
Hann hófst með því að hópur gam-
alla Bifrestinga úr Hollvina-
samtökum Bifrastar óskuðu eftir því
að Minjastofnun friðlýsti gömlu
skólahúsin.
Í drögum að friðlýsingarskil-
málum kemur fram að friðlýsingin á
að taka til ytra byrðis samkomu-
hússins frá 1950 og veggfastra inn-
réttinga í samkomusal og setustofu.
Einnig ytra byrðis viðbyggðrar
gistiálmu frá 1955 og tengigangs.
Sérstaklega er tekið fram að friðlýs-
ingin taki til veggmyndar Harðar
Ágústssonar á tengigangi. Ekki er
minnst á SÍS-merkið á gólfi inn-
gangs en það fylgir væntanlega
með.
Byggt sem samkomuhús
Innréttingar í gistiálmu eru ekki
friðaðar enda segir Vilhjálmur Eg-
ilsson, rektor Háskólans á Bifröst,
að þeim gæti þurft að breyta með
tímanum ef nýta eigi bygginguna
áfram. Tekur hann fram að SÍS-
merkið sé órjúfanlegur hluti af sögu
húsanna og aldrei verði hróflað við
því.
Elsta byggingin á Bifröst var
reist sem samkomu- og veit-
ingasalur eftir uppdráttum arkitekt-
anna Gísla Halldórssonar, Kjartans
Sigurðssonar og Sigvalda Thordar-
son. Samband íslenskra samvinnu-
félaga keypti húsið þegar veitinga-
staðurinn var risinn en ekki
fullgerður og var Sigvaldi fenginn til
að ljúka við frágang og innréttingar
hússins sem þá átti að nýta sem fé-
lagsheimili og hótel samvinnu-
manna. Síðar var ákveðið að flytja
starfsemi Samvinnuskólans þangað
og þá var reist þrílyft heimavistar-
álma við húsið.
Í rökstuðningi Minjastofnunar
fyrir friðun húsanna segir að sam-
komuhúsið á Bifröst sé mikilvægt og
vel varðveitt dæmi um höfundarverk
Sigvalda Thordarson og samstarfs-
manna hans, frá upphafsárum
þeirra starfsferils. Ekki síst eigi það
við um innréttingar og búnað í sam-
komusal og setustofu, sem varðveist
hafi í nær upprunalegri mynd.
Minjastofnun segir að saman
myndi húsin tvö fallega og sam-
ræmda heild. Bæði hafi einkennt
ásýnd Bifrastar frá upphafi og hafi í
hugum fólks öðlast sess sem hluti
staðarmyndar Norðurárdals og
táknmynd þeirra skólastofnana sem
þar hafa starfað.
Fjármagn þarf að fylgja
Vilhjálmur Egilsson segir að
stjórnendur Háskólans séu opnir
fyrir þessum áformum. Hann tekur
fram að þau samrýmist markmiðum
þeirra sem hafi ávallt verið að um-
gangast þessar byggingar af sömu
virðingu og þeir gerðu sem byggðu
þær enda hafi engu verið breytt í
veitingasalnum og ytra útliti hans
haldið eins og var í upphafi.
Tekur Vilhjálmur fram að friðlýs-
ingu þurfi að fylgja áætlun um fjár-
mögnun viðhalds til að halda bygg-
ingunum í góðu horfi.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bifröst Elsta skólahúsið, samkomuhúsið með kringlunni, kúrir í Grábrók-
arhrauni og áföst því er heimavistin frá 1955. Í baksýn sést í Grábrók og
Hraunsnefsöxl. Allt eru þetta tákn hins fallega Norðurárdals.
Undirbúa friðlýsingu elstu skólahúsanna
Samkomuhúsið á Bifröst verður
friðað með gömlum innréttingum
Skipholti 29b • S. 551 4422
YFIRHÖFNIN FÆST Í LAXDAL
TRAUST Í 80 ÁR
Fylgdu okkur á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Túnikur frá
Str. 40/42-56/58
Kr. 7.900.-
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Str.
38-58
Við eigum 15 ára afmæli
Og þú færð 20% afslátt af öllum vörum dagana 3.-5. október
Karlmaður hefur verið ákærður af
embætti héraðssaksóknara fyrir
ítrekuð kynferðisbrot og brot gegn
barnaverndarlögum með því að
hafa á árunum 2017 og 2018 ítrek-
að tekið myndskeið yfir skilrúm
milli búningsklefa karla og kvenna
í húsakynnum sundlaugar og
íþróttamiðstöðvar á Vestfjörðum.
Í ákæru málsins er maðurinn
ákærður fyrir brot gegn fimm
stúlkum undir lögaldri, einum
dreng undir lögaldri og þremur
konum yfir 18 ára aldri. Eru brotin
talin varða við ákvæði almennra
hegningarlaga um blygðunarsemis-
brot, auk þess sem brotin gegn
börnunum eru talin brjóta gegn
þeirri grein barnaverndarlögum
sem tekur á ósiðlegu athæfi gegn
börnum. Þá er hann ákærður fyrir
að hafa haft í vörslu sinni mynd-
skeiðin sem um ræðir.
Myndaði maðurinn fólkið þegar
það var statt í kvennaklefa sund-
laugarinnar með myndavél síma
síns og sýndu myndskeiðin fólkið
nakið. Stúlkurnar voru á aldrinum
9 til 14 ára þegar brotin áttu sér
stað og drengurinn á fimmta ári.
Samtals fara þau sem maðurinn
tók myndskeið af fram á 10,5 millj-
ónir í miskabætur vegna brota
hans.
Ákærður fyrir upp-
tökur í kvennaklefa
íþróttamiðstöðvar
á Vestfjörðum
Fyrsti mygluleitarhundurinn á Ís-
landi tekur til starfa í vikunni.
Hundaþjálfarinn Jóhanna Þorbjörg
Magnúsdóttir þreytti próf með
schaefferhundinn Hanz á vegum
þýskra mygluleitarsamtaka nýver-
ið og hlaut hann fyrstu einkunn því
hann komst villulaust í gegnum
prófið. Þetta er samstarfsverkefni
Mannvits verkfræðistofu og Allir-
hundar, fyrirtækis Jóhönnu, að
finna myglu í húsnæði. Biðlistarnir
eru þegar orðnir langir.
„Þetta var mjög flott hjá honum.
Hann er rosalega vinnuglaður og
sannur. Mér líður frekar eins og
forritara en hundaþjálfara. Hanz er
með svo gott minni, ef hann finnur
lykt einu sinni þekkir hann hana
strax aftur þrátt fyrir að hafa ekki
fundið hana í nokkurn tíma,“ sagði
Jóhanna í samtali við mbl.is í gær.
Þjálfunin tók um eitt og hálft ár
og var ferlið langt og strangt.
„Þjálfunin og leitin sjálf að myglu
er flókin efnafræði. Það eru marg-
ar tegundir og undirtegundir og
maður þarf alltaf að fara aftur í
grunninn til að fylgja honum eftir,“
segir Jóhanna.
Hundur þjálfaður til
að leita að myglu
Atvinna