Morgunblaðið - 03.10.2019, Side 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
„Þróun íbúðamarkaðarins fylgir
mjög vel þróun hagkerfisins alls. Nú
sjáum við hagkerfið sigla niður í lægð
og það er eðlilegt að það birtist í
íbúðamarkaðnum,“ segir Ingólfur
Bender, aðalhag-
fræðingur Sam-
taka iðnaðarins,
sem var annar
framsögumanna á
fundi Félags við-
skipta- og hag-
fræðinga í gær
um húsnæðis-
markaðinn, ásamt
Sigrúnu Ástu
Magnúsdóttur,
framkvæmda-
stjóra greininga- og áætlanasviðs
Íbúðalánasjóðs.
Að sögn Ingólfs eru vísbendingar
um samdrátt bæði framboðs- og eft-
irspurnarmegin á húsnæðismarkaði.
Eftirspurnarmegin sést það t.a.m. í
fækkun á kaupsamningum, sem voru
30% færri í ágúst síðastliðnum miðað
við í fyrra. Þá er meðalsölutími eigna
lengri en áður, fleiri íbúðir eru á skrá
og raunverð íbúða hefur staðið í stað
síðastliðna 12 mánuði, sem er ný-
lunda. Hann segir hag heimilanna
ekki vera að vænkast eins mikið og
verið hefur, kaupmáttur launa sé að
vaxa hægar núna en um langt skeið
og þá sé aukið atvinnuleysi á milli ára,
sem kemur fram í breyttum takti í
spurn eftir íbúðum. Sé litið á fram-
boðshliðina eru byggingar- og fjár-
mögnunaraðilar að bregðast við
breyttu efnahagsástandi og er það að
sögn Ingólfs sérstaklega greinilegt á
fyrstu byggingarstigum þar sem
greina má samdrátt í byggingarefn-
um um 20-30%, svo sem á sementi og
steypustyrktarjárni, sem notað er á
þeim stigum í byggingarferlinu.
„Þetta hefur áhrif á spár okkar um
fullbúnar íbúðir á næstunni sem við
erum að lækka en við gerum ráð fyrir
að fullbúnum íbúðum muni fækka
milli áranna 2020-2021.
Bæta þarf upplýsingagjöf
Full ástæða er til þess að hafa
áhyggjur af stöðunni á íbúðamarkaði
að sögn Ingólfs. Segir hann samdrátt
hagkerfisins birtast með ýktum hætti
í byggingariðnaðinum. Nefnir hann
að samdráttur í þeim geira í hruninu
hafi verið sjöfalt meiri en í hagkerfinu
almennt. „Þetta er mjög slæmt og
kemur niður á framleiðni og verð-
mætasköpun ásamt fleiri þáttum,“
segir Ingólfur og bætir því við að
tryggja þurfi meiri stöðugleika. Til
þess séu tvö meginstjórntæki: stýri-
vextir, sem lækkaðir voru í gær og
hafa lækkað um 1,25% frá því í maí
síðastliðnum, og hin opinberu fjármál
sem jöfnuður verður á á næsta ári en
ríkissjóður hefur verið rekinn með af-
gangi síðustu ár. Er það vel að sögn
Ingólfs en hann telur að stíga þurfi
kröftugri skref. Laga þurfi framboð-
ið, upplýsingagjöf og laga- og reglu-
gerðarumhverfi til þess að auka hag-
kvæmni og skilvirkni, en SÍ hafa
t.a.m. þurft að handtelja íbúðir í
byggingu því um þær vantar góð
opinber gögn.
Ingólfur segir ákveðinn markaðs-
brest hafa átt sér stað í framboði á
íbúðamarkaði þar sem þörf markað-
arins hefur ekki verið fullnægt. Ekki
hefur verið byggt nægjanlega af hag-
kvæmum íbúðum.
Sigrún Ásta fjallaði ítarlega um
þetta vandamál í erindi sínu. Nefndi
hún m.a. samdrátt nýbygginga og að
hærra hlutfall þeirra hafi selst undir
ásettu verði. „Á sama tíma erum við
með þarfagreiningu sem gerð var í
byrjun árs sem sýnir fram á að óupp-
fyllt íbúðaþörf var á bilinu 5-8 þúsund
íbúðir á þeim tíma. Segir hún ástæðu
til þess að hrinda í framkvæmd 40 til-
lögum átakshóps á vegum forsætis-
ráðherra sem leggur áherslu á hvern-
ig auka megi framboð á minni og
hagkvæmari íbúðum. En spurð um
það hvers vegna framboðs- og eftir-
spurnarnhliðin hafa ekki talað betur
saman en raun ber vitni segir hún:
„Við höfum talað mikið um að það
vanti betri upplýsingar um húsnæð-
ismarkaðinn. Þar þarf samhent átak
allra þeirra sem koma að húsnæðis-
markaði. Við erum að vinna með
sveitarfélögum að gerð húsnæðis-
áætlana og þær ættu að gefa mynd af
því hver eftirspurnin er, hvers konar
íbúðir þörf er fyrir og fyrir hvaða
samfélagshópa. Svo höfum við talað
fyrir innleiðingu byggingargáttarinn-
ar, sem er rafræn gátt þar sem allar
byggingaframkvæmdir eru skráðar
inn og hægt að nálgast í rauntíma
mun áreiðanlegri upplýsingar um
hvað sé verið að byggja á hverjum
tíma. Þá ættum við að geta borið það
saman við eftirspurnarhliðina.“
Samdráttarskeið hafið
Samdráttur á húsnæðismarkaði ræddur á fundi Félags viðskipta- og hag-
fræðinga Markaðsbrestur hefur átt sér stað að sögn aðalhagfræðings SÍ
Morgunblaðið/Eggert
Húsnæði Sigrún segir óuppfyllta íbúðaþörf nema 5-8 þúsund íbúðum.
Ingólfur
Bender
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands ákvað í gær að lækka vexti
bankans um 0,25 prósentur. Megin-
vextir bankans, vextir á sjö daga
bundnum innlánum, verða því
3,25%.
Ásegir Jónsson seðlabankastjóri
skýrir vaxtalækkunina með því að
verðbólga hafi hjaðnað hraðar en
búist hafi verið við, en hún mældist
3,1% á þriðja ársfjórðungi. Þá hafi
verðbólguvæntingar verið á leiðinni
niður, sem gefi tilefni til að Seðla-
bankinn geti lækkað vexti, meðal
annars til að halda óbreyttum raun-
vöxtum, eins og Ásgeir orðar það í
yfirlýsingu á vef bankans.
„Vaxtalækkuninni er ætlað að
örva hagkerfið þegar litið er á næstu
mánuði fram í tímann […]. Fram-
tíðin mun að einhverju leyti ráðast af
því hvernig samspil verðbólguvænt-
inga og efnahagsumsvifa verður á
næstu misserum.“
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, segir á vef
bankans að sleginn hafi verið frekar
mildur tónn. „Þrátt fyrir að sleginn
sé varfærinn tónn í framsýnni leið-
sögn bankans þá töldum við okkur
skynja frekar mildan tón á kynning-
arfundinum í morgun [í gærmorg-
un]. Með hliðsjón af því og nýlegum
spám okkar um þróun verðbólgu og
efnahagslífs teljum við að ekki sé
endilega búið að slá botninn í vaxta-
lækkunarferli Seðlabankans. Við
teljum líklegt að vextir verði lækk-
aðir a.m.k. eitt skipti til viðbótar fyr-
ir áramót og verði lágir út næsta ár.“
Vaxtalækkun upp á 0,25 prósentur
Verðbólga hefur hjaðnað hraðar en
búist var við Væntingar á niðurleið
Morgunblaðið/Ómar
Peningar Stýrivextir SÍ eru nú
orðnir þeir lægstu á öldinni.
Íslensk fyrirtæki sem leggja mikið
upp úr hugverkaréttindum standa
undir 39,6% af vergri landsfram-
leiðslu og skapa 29,2% af öllum
störfum hér á landi. Þetta kemur
fram í skýrslu Hugverkastofu Evr-
ópusambandsins (EUIPO) og Evr-
ópsku einkaleyfastofunnar (EPO)
um atvinnugreinar sem leggja mik-
ið upp úr hugverkaréttindum og
efnahagsárangri í Evrópusamband-
inu sem kom út í dag.
Í frétt á vef Hugverkastofunnar
segir að þetta sé í fyrsta skipti sem
Ísland sé hluti af rannsókn EUIPO
og EPO en skýrslan sýni að íslensk
fyrirtæki sem leggi mikið upp úr
hugverkaréttindum standi undir
rúmlega 50 þúsund störfum hér á
landi. Þar er samkvæmt fréttinni
stærstur hluti fyrirtækja sem
leggja mikið upp úr vörumerkjum
(23% starfa og 33,1% vergrar þjóð-
arframleiðslu) en einnig hafi verið
skoðaður hluti fyrirtækja sem leggi
mikið upp úr einkaleyfum (6,6%
starfa og 9,4% VLF), hönnun (8,3%
starfa og 6,7% VLF) og höfund-
arrétti (7,8% starfa og 6,4% VLF).
Greiðir hærri laun
Eins og segir í fréttinni þá sýnir
skýrslan einnig að hugverkaiðnaður
greiðir umtalsvert hærri laun en
annar iðnaður. Fyrirtæki sem nýta
sér hugverkaréttindi í miklum
mæli greiði að meðaltali 47% hærri
laun en önnur fyrirtæki. Talan sé
enn hærri hjá fyrirtækjum sem
nýta sér einkaleyfi í miklum mæli
en þau greiði að meðaltali 72%
hærri laun.
Borghildur Erlingsdóttir, for-
stjóri Hugverkastofunnar, segir að
tölurnar sýni svart á hvítu hvað
hugverk og hugverkaréttindi séu
gríðarlega mikilvæg í iðnaði og við-
skiptum á Íslandi í dag, þar sem
þau hvetji til hagvaxtar og skapi
ekki aðeins störf, heldur hálauna-
störf.
Mikil áhrif hugverkaréttinda
á landsframleiðslu og störf
Ísland í fyrsta skipti hluti af rannsókn EUIPO og EPO
● Lokuðu útboði Haga hf. á skulda-
bréfum þann 30. september 2019 er
lokið, samkvæmt tilkynningu frá verð-
bréfafyrirtækinu Arctica Finance,
sem hafði umsjón með útboðinu.
Samtals bárust tilboð að nafnvirði
rúmlega 12 milljarðar króna og var
ákveðið að taka tilboðum sem jafn-
giltu hámarksstærð útboðsins að
nafnvirði 5,5 milljarðar króna á geng-
inu 1,0. Bréfin bera fasta 2,8% verð-
tryggða vexti. Skuldabréfaflokkurinn
er tryggður með veði í lykilfast-
eignum Haga. Hann er til 10 ára með
jöfnum afborgunum á 3 mánaða
fresti.
Hagar ljúka 5,5 millj-
arða skuldabréfaútboði
● Kvika banki
leiddi lækk-
unarhrinu á hluta-
bréfamarkaði á
rauðum degi í
Kauphöll Íslands í
gær. Bréf félagsins
lækkuðu um
6,25% í 162 millj-
óna króna við-
skiptum. Lækk-
unina má að
líkindum rekja m.a.
til fregna af niðurfærslu tveggja fast-
eignasjóða GAMMA, sem er í eigu
Kviku.
Næstmest lækkun í Kauphöllinni í
gær varð á bréfum VÍS en félagið er eitt
þeirra félaga sem hafa sent frá sér nei-
kvæða afkomutilkynningu í vikunni
vegna fyrrnefndra fasteignasjóða
GAMMA. Bréf VÍS lækkuðu um 3,98% í
36 milljóna króna viðskiptum. Þriðja
mesta lækkunin varð á bréfum Ice-
landair, eða 2,46% í 31 milljónar króna
viðskiptum, en gengi félagsins hefur
ekki verið lægra síðan í apríl 2012.
Úrvalsvísitala aðallista lækkaði í gær
um 1,89%.
Banki Kvika er
eigandi GAMMA.
Kvika lækkaði um
6,25% í Kauphöll
STUTT
3. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.82 124.42 124.12
Sterlingspund 152.35 153.09 152.72
Kanadadalur 93.26 93.8 93.53
Dönsk króna 18.07 18.176 18.123
Norsk króna 13.561 13.641 13.601
Sænsk króna 12.492 12.566 12.529
Svissn. franki 123.59 124.29 123.94
Japanskt jen 1.1432 1.1498 1.1465
SDR 168.56 169.56 169.06
Evra 134.92 135.68 135.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3011
Hrávöruverð
Gull 1466.1 ($/únsa)
Ál 1705.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.24 ($/fatið) Brent
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina