Morgunblaðið - 12.10.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.10.2019, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  240. tölublað  107. árgangur  ÞETTA ERU STÆRSTU MÁL Í HEIMI ÍSLENSK SKÁLDKONA Á SPÁNI VIÐ RITSTÖRF 12ANDRI SNÆR 48 Komnir í 1,64% » Við þessa útreikninga er miðað við að vextir Íbúðalána- sjóðs séu 4,2%, vextir Arion banka 3,09% og vextir Al- menna lífeyrissjóðsins 1,64%. » Birta býður líka 1,64% vexti. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lántakar á Íslandi sem endurfjár- magna íbúðalán geta lækkað vaxta- greiðslur um hundruð þúsunda á ári. Þetta er niðurstaða Elvars Orra Hreinssonar, hagfræðings hjá Ís- landsbanka, sem stillti upp dæmum fyrir Morgunblaðið. Tilefnið er vaxtalækkun stóru bankanna fyrir helgi í kjölfar vaxtalækkunar Seðla- bankans miðvikudaginn 2. október. Dæmið miðast við 20 milljóna króna verðtryggt lán hjá Íbúðalána- sjóði, bönkum og lífeyrissjóðum. Með því að endurfjármagna lán hjá Íbúðalánasjóði með láni á lægstu bankavöxtum sparar lántaki sér 222 þús. á ári. Miðað er við lán hjá Arion banka með föstum vöxtum í fimm ár. Með því að endurfjármagna lánið hjá Íbúðalánasjóði með láni frá líf- eyrissjóði eykst vaxtasparnaðurinn í 512 þúsund krónur á ári. Miðað er við lán hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Elvar Orri segir að þótt greiða þyrfti 200 þúsund í 1% uppgreiðslu- gjald í þessu dæmi borgi sparnaður það upp fljótt. Húsnæðiskostnaður fer nú lækkandi á Íslandi. Sparar hundruð þúsunda  Hagfræðingur hvetur lántaka til að nýta sér vaxtalækkanir síðustu mánaða  Hægt sé að spara hálfa milljón í vexti af 20 milljóna verðtryggðu láni á ári MLántakar endurfjármagni … »10 Morgunblaðið/RAX Reyndur Anton V. Vasiliev var áður sendiherra Rússa á norðurslóðum. „Mín skoðun er sú að yfirlýsing utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Rovaniemi í maí síðastliðnum og í framhaldinu ákall Johns Boltons, fyrrverandi öryggisráðgjafa, þess efnis að endurskipuleggja þurfi sam- bandið á norðurslóðum með það fyr- ir augum að Atlantshafsbandalagið þurfi að standa af sér og berjast gegn „ágangi og metnaði“ Rússa og Kínverja endurspegli ekki veru- leikann og séu í reynd hættulegar.“ Þetta segir Anton V. Vasiliev, sendiherra Rússa á Íslandi, í viðtali í norðurslóðablaði Morgunblaðsins, Björgum heiminum. Hann segir þessar yfirlýsingar stangast á við allt sem Norðurskautsráðið stendur fyrir og von hans er sú að norður- slóðaríkin, þar með talin Bandaríkin sjálf, beri gæfu til að skilja að það þjóni þeirra eigin hagsmunum að starfa í samræmi við alþjóðalög og þann góða samstarfsanda sem ríki á norðurslóðum. „Það væri synd og skömm að snúa aftur til þess hugs- unarháttar sem ríkti í kalda stríð- inu.“ Hættulegar yfirlýsingar  Sendiherra Rússa á Íslandi gagnrýnir Bandaríkjamenn MBlaðauki »6 og 14 Vítaspyrna skildi að Ísland og heimsmeistaralið Frakklands á Laugardalsvellinum í gærkvöld þegar þjóðirnar mættust þar í undankeppni Evr- ópumóts karla í fótbolta. Á sama tíma unnu Tyrkir sigur á Albönum, 1:0, og þar með eru möguleikar íslenska liðsins á að komast í loka- keppni EM án þess að þurfa að fara í umspil orðnir minni. Þrír sigrar í þremur síðustu leikj- unum gætu þó komið Íslandi áfram. »44-45 Minni möguleikar eftir hörkuleik gegn Frökkum Morgunblaðið/Eggert Heimsmeistararnir knúðu fram eins marks sigur á Laugardalsvellinum  Starfsemi Reykjalundar var með eðlilegum hætti í gær eftir truflum sem varð í fyrradag vegna óvissu sem kom upp eftir uppsögn fram- kvæmdastjóra lækninga og starfs- lok forstjóra. Starfsfólkið sagði í yfirlýsingu í gær að því þætti miður að ástandið hefði bitnað á skjól- stæðingum og valdið þeim vanlíðan. Sveinn Guðmundsson, stjórn- arformaður SÍBS og starfandi for- stjóri Reykjalundar, sagði ljóst að starfsfólk ætlaði að setja skjólstæð- inga sína í fyrsta sæti. Sveinn tilkynnti starfsfólki það í gær að hann myndi víkja sem for- stjóri og settur yrði annar forstjóri þar til nýr forstjóri tæki við. Staðan verður auglýst. Þá er ráðningar- ferli framkvæmdastjóra lækninga í vinnslu. Starfsmannafundur verður á þriðjudag. »6 Nýr forstjóri tekur við Reykjalundi „Við erum með öll leyfi, ég fylgi reglunum,“ segir malasíski ferða- þjónustubóndinn Loo Eng Wah um uppbyggingu ferðaþjónustu sinn- ar í Landsveit. Hann segir að athugasemdir um tengingu hjól- hýsa við fráveitu séu að einhverju leyti misskilningur. „Heilbrigð- iseftirlitið segir að þetta sé á gráu svæði. Stundum virðist manni bara eins og það sé skortur á al- mennri skynsemi. Við viljum aug- ljóslega fá fleiri klósett á svæðið en vegna kvartana getum við það ekki.“ » 18 Loo segir klósettdeilur á misskilningi byggðar Morgunblaðið/Hari Ferðaþjónusta Loo Eng Wah við hjólhýsi sem hann leigir út á Leyni.  Lífið tók sannarlega óvænta stefnu hjá Bjarneyju Hinriksdóttur, sem kölluð er Baddý, en hún er nú stödd á Krít með fimm hvolpa sem hún hyggst koma heim til Íslands fyrir jól. Hvolparnir fundust við hrað- braut á Krít og ákvað Baddý að taka þá heim til sín. „Það var þá sem öll mín plön breyttust,“ segir hún og skellihlær. „Ég þurfti að lesa mér til um hvernig á að ala upp hunda,“ segir hún og planar að finna heimili á Ís- landi fyrir hvolpana. Kostnaðurinn við flutninginn heim er um tvær milljónir og ætlar Baddý að setja af stað söfnun á Karolina Fund undir The Fabulous five to Iceland. »Sunnudagur Ljósmynd/José Vásquez Tilveran Baddý elur nú upp fimm hvolpa. Fimm hvolpa á Krít vantar heimili

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.