Morgunblaðið - 12.10.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 12.10.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 Sporður Sólheimajökuls hafði hopað um 11 metra frá í fyrra þegar nem- endur 7. bekkjar Hvolsskóla mældu jökuljaðarinn 8. október. Þetta var tíunda árið í röð sem nemendur í 7. bekk mældu jökulinn. Mæling- arnar hófust í október árið 2010 og hefur alltaf verið farið í októ- ber. Jón Stefáns- son, kennari við Hvolsskóla, er upphafsmaður að því að virkja nemendurna til jökla- mælinga. Hann fékk nýverið Nátt- úruviðurkenningu Sigríðar í Bratt- holti fyrir að nýta nærumhverfi nemenda sinna til kennslu, rann- sókna og upplifunar. „Það er mjög misjafnt eftir árum hve mikið hop mælist,“ sagði Jón. Hann sagði að sporðurinn hefði hop- að að meðalali um tæpa 40 metra á ári í þessi tíu ár. „Stundum brotna stykki frá og þá kemur stór mæling og getur verið rúmlega 100 metra hop. Það hefur gerst tvisvar frá því að við byrjuðum að mæla. Önnur ár er bara bráðnun og þá hopar hann minna. Við höfum mælt minnst átta metra hop milli ára. Þá var lítil bráðnun og ekkert brot. Jökulsporðurinn hefur bráðnað og mikið þynnst í sumar. Það er mikið sprungið rétt við sporðinn og ég á von á að bráðum brotni stór stykki af.“ Dýpi lónsins framan við jökulinn mældist um 60 metrar og er það svipað og áður hefur mælst. Sigla að jökuljaðrinum Niðurstöður mælingarinnar og myndir eru hengdar upp á vegg í Hvolsskóla. Nemendurnir segja eldri nemendum, sem mældu á árum áður, frá niðurstöðu ársins. Mælingin er gerð með GPS-tæki og er skilti við jökulinn notað sem viðmiðunarpunktur. Siglt er eftir lóninu á slöngubáti að jökuljaðrinum þar sem gerð er mæling. Siglingin er um 500 metra löng. Björgunar- sveitin Dagrenning á Hvolsvelli hef- ur aðstoðað við mælingarnar og leggur til bátinn. Eins gætir hún að öryggi nemendanna. „Þetta verkefni gefur nemendum einstaka sýn á að fylgjast með hopi jökuls af völdum loftslagsbreytinga og vekur þau til umhugsunar hvaða áhrif breytingar á jöklum hafa á náttúruna,“ skrifaði Jón í tilkynn- ingu um mælinguna. „Önnur um- hverfisverkefni Hvolsskóla miða að því að átta sig á hvað veldur og hvað hægt er að gera til að hægja á eða stöðva hamfarahlýnun. Má þar nefna að allt sorp er flokkað og hluti þess nýttur á staðnum (moltugerð), vistheimtarverkefni í Landeyjum, þar sem eru tilraunareitir skólans og síðan gróðursetning trjáplantna og sáning grasfræs í hrauninu sunnan Búrfells í Landssveit.“ Ljósmynd/Jón Stefánsson Við Sólheimajökul Nemendur í 7. bekk Hvolsskóla hafa farið að jöklinum undanfarin tíu ár og mælt hopið. Sporðurinn styttist  Sporður Sólheimajökuls hefur hopað um tæpa 40 metra á ári að meðaltali á tíu árum  Stutt í að stórt stykki brotni Jón Stefánsson Ávaxtaræktendur á suðvesturhorn- inu voru nokkuð sáttir við uppskeru sumarins, samkvæmt upplýsingum Guðríðar Helgadóttir, garðyrkju- fræðings og forstöðumanns við Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi. „Það sem ég hef heyrt er að uppskeran var í góðu meðallagi hjá þeim sem eru með ald- intré í góðu skjóli,“ segir Guðríður. Þetta eigi einkum við um plómur og epli. Hún segir að einkum megi þakka árangurinn því að þrátt fyrir mikla vætu síðasta sumar og litla sól hafi verið sæmilega hlýtt er leið á sum- arið þannig að trén hafi náð að und- irbúa sig fyrir sumarið í ár. Aðal- atriði sé þó að nýliðið sumar hafi verið einstaklega gott, sólríkt og hlýtt, og aldinræktendur verið dug- legir að vökva. Blómgunin hafi heppnast vel og flest gengið upp og þó svo að met hafi ekki verið slegin þá séu ávaxtaræktendur nokkuð kátir. Guðríður bætir því við að garð- yrkjufólk hafi beðið um að sumarið 2018 verði strokað út úr almanakinu. Eplatré frá Akranesi Á vef Reykjavíkurborgar segir frá því að frá því í fyrrahaust hafi verið gróðursett á sjötta tug ávaxtartrjáa í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Fram kemur á vef borgarinnar að ein af þeim hugmyndum sem fengu góðan stuðning borgarbúa í kosningum í Hverfið mitt haustið 2017 hafi verið tillaga um að gróðursetja fleiri ávaxtatré í borginni. Byrjað var að gróðursetja eplatré í fyrrahaust og koma plönturnar frá Jóni Guðmundssyni á Akranesi. Hann hefur nú látið borgina fá vel á annað hundrað plöntur af 27 ólíkum yrkjum. Þær hafa verið settar niður á fjórtán skjólgóðum stöðum í hverf- inu og náðu nokkur epli að þroskast í sumar. aij@mbl.is Ávaxtauppskera í góðu meðallagi  Borgin gróðursetur ávaxtatré Ljósmynd/Reykjavíkurborg Ræktun Starfsmaður borgarinnar við eitt eplatré í Grundargerði. Veitur og Heilbrigðiseftirlit Vestur- lands ítrekuðu í gær tilmæli sín um að viðskiptavinir vatnsveitu Veitna úr Grábrókarhrauni ættu að sjóða neysluvatn, en staðfest hefur verið að gerlamengun sé í vatninu. Segir í tilkynningu frá Veitum að bæði kólí- og E.coli-gerlar hafi fundist í því sýni sem vakti upphaflegan grun um að vatnið væri mengað. Þá segir einnig að lýsingarbúnað- ur verði tekinn í notkun við vatns- bólið á miðvikudaginn, en búnaður- inn mun tryggja öryggi vatnsins. Í tilkynningunni segir einnig að Heil- brigðiseftirlit Vesturlands og Veitur leggi áherslu á að notendur sjóði neysluvatn þar til búnaðurinn verður virkur enda geti gerlasmit valdið slæmum sýkingum hjá mönnum, einkum þeim sem eru viðkvæmir fyrir, eins og börn og eldra fólk. Veit- ur segjast leggja kapp á að ná til sem flestra viðskiptavina og verður eftir- litsaðilum haldið upplýstum um framvindu. Vatnsbólið í Grábrókar- hrauni var tekið í notkun árið 2007, og sér m.a. Borgarnesi, Varmalandi og Bifröst fyrir drykkjarvatni. Gerlamengun staðfest í vatninu  Notendur sjóði neysluvatnið Þjónustusvæði Grábrókarveitu í Borgarfi rði Bifröst Varmaland HvanneyriBorgarnes Loftmyndir ehf. Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 VELKOMIN Í URÐARAPÓTEK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.