Morgunblaðið - 12.10.2019, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég virði skoðanir allra og tek
mark á þeim athugasemdum sem
hafa verið settar fram,“ segir mal-
asíski athafnamaðurinn Loo Eng
Wah. Hann vinnur að uppbyggingu
ferðaþjónustu á jörðunum Leyni 2
og 3 í Landsveit. Eins og komið
hefur fram í Morgunblaðinu hefur
gætt nokkurrar óánægju með
áformin meðal hagsmunaaðila á
svæðinu. Morgunblaðið heimsótt
Loo á Leyni í vikunni.
Uppbygging Loos gagnrýnd
Morgunblaðið greindi fyrst frá
áformum Loos í lok ágúst en þá
kom fram að yfir fimmtíu land- og
sumarbústaðaeigendur hefðu hist á
fundi til að bregðast við. Þeir telja
uppbygginguna allt of stórtæka og
gagnrýndu auk þess að sveitarfé-
lagið hefði ekki kynnt áformin
nægilega. Viðbrögð sveitarfé-
lagsins Rangárþings ytra voru á
þá leið að eðlilegt væri að fólk
hefði skoðun á áformunum og
tækifæri gæfust til athugasemda í
skipulagsferli sem rétt væri að
hefjast. Sjálfur sagði Loo í viðtali
við blaðið í byrjun september að
áform hans væru ekki jafn stórtæk
og fólk virtist halda – hann vildi að
framkvæmdirnar færu fram í sátt
við fólk á svæðinu.
Þetta dugði ekki til að lægja öld-
ur og hagsmunaaðilar kvörtuðu til
Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og
Mannvirkjastofnunar undan ólög-
legri starfsemi og framkvæmdum á
Leyni. Skömmu síðar var áformum
landeigenda breytt og ákveðið að
auglýsa skipulagstillögu að nýju.
Í byrjun október greindi
Morgunblaðið frá því að skipulags-
og byggingarfulltrúi sveitarfé-
lagsins hefði gert Loo að rjúfa
tengingar hjólhýsa við rotþróar-
kerfi á staðnum í kjölfar fyrir-
spurnar frá landeiganda. Hjólhýsin
hafa verið í útleigu í sumar en ekki
var leyfi fyriri hendi fyrir fasta
tengingu við rotþró. Í vikunni voru
svo athugasemdir við lýsingu
skipulagsáforma á svæðinu lagðar
fyrir skipulagsnefnd sveitarfé-
lagsins. Fjölmargar athugasemdir
bárust.
Skortur á almennri skynsemi
Loo sýndi útsendurum Morgun-
blaðsins svæðið á Leyni við kom-
una. Iðnaðarmenn voru að störfum
við að einangra kúluhús sem eiga
að vera fyrir norðurljósaskoðun í
vetur en að öðru leyti var allt með
kyrrum kjörum á svæðinu. Aug-
ljóst er að viðbrögðin við áformum
hans hafa komið Loo í opna
skjöldu. Til að mynda að nágranni
hafi sett upp hlið sem lokar að-
gangi að útihúsi í hans eigu.
Segir Loo að athugasemdir sem
settar hafi verið fram séu að ein-
hverju leyti á misskilningi byggðar
og vill hann leiðrétta hann. „Fólki
er velkomið að kíkja í heimsókn og
þá getum við útskýrt hvað við ætl-
um að gera. Ég trúi því að ég hafi
gott fram að færa á Íslandi,“ segir
ferðaþjónustubóndinn. „En það er
gott að fá athugasemdir. Þá getum
við nýtt þær til að bæta okkur.“
Hann segir að til að mynda sé
það misskilningur að hjólhýsin hafi
verið fasttengd við fráveitukerfið.
Hann hafi einungis gefið fólki sem
leigði hjólhýsi kost á að tengjast
með þessum hætti í stað þess að
þurfa að hella úr safntanki. Úr-
gangurinn færi í sömu rotþróna og
hún hafi verið fyrir á svæðinu. „Við
erum með öll leyfi, ég fylgi regl-
unum,“ segir hann. „Heilbrigðiseft-
irlitið segir að þetta sé á gráu
svæði. Stundum virðist manni bara
eins og það sé skortur á almennri
skynsemi. Við viljum augljóslega fá
fleiri klósett á svæðið en vegna
kvartana getum við ekki sett upp
fleiri. En við erum þolinmóð og
bíðum eftir deiliskipulaginu.
Nýtur aðstoðar sérfræðinga
Sveitarfélagið hefur auglýst öll
áformin á heimasíðu sinni. Ég
myndi frekar kjósa að fólk vísaði
umsögnum sínum og athugasemd-
um þangað en að halda á lofti röng-
um upplýsingum,“ segir Loo. Hann
segir að á næstunni verði lögð fram
tillaga að deiliskipulagi fyrir svæð-
ið og hún fari í umsagnarferli hjá
Rangárþingi ytra. Umræðan um
Leyni 2 og 3 hefur að hans sögn
ekki breytt áformum hans, það taki
einfaldlega tíma að koma þeim í
framkvæmd.
Telurðu að þú hafir gert einhver
mistök við uppbygginguna til
þessa?
„Ég veit það ekki. Margt veltur
á hvernig þú túlkar hlutina. Í
fyrstu þekkti ég ekkert til lagaum-
hverfisins á Íslandi og þess vegna
leitaði ég til færustu sérfræðinga á
hverju sviði og fylgdi ráðum þeirra.
Við höfum notið aðstoðar lög-
mannsstofunnar Lex og verk-
fræðistofunnar Eflu. Efla sagði til
að mynda að það yrði að breyta
svæðinu í verslunarsvæði og þá
þarf að gera skipulag. Við vitum að
það þarf að fylgja lögum og reglum
og gerum það. Ég er mjög hrifinn
af kerfinu hér á Íslandi, það er svo
gagnsætt. Það er hægt að sjá allt
inni á ry.is.“
Höfum mætt
andspyrnu og reiði
Loo segir að endingu að hann
ætli sér að breyta tjaldstæðinu í
nútímalegt tjaldstæði á heims-
mælikvarða. Það verði nýtt fyrir
Íslendingum að einnig verði hægt
að nýta það á veturna.
„Það er mikið af tæknilegum at-
riðum sem þarf að greiða úr en ég
vona að allir geti verið þolinmóðir
og beðið eftir fullbúinni tillögu. Við
erum nýtekin við, við erum nýbúin
að fá leyfi og hér er margt gamalt
sem þarf að endurnýja og laga. Við
höfum mætt andspyrnu, við höfum
mætt reiði en ég vona að allt fari
vel á endanum.“
Mjög hrifinn af kerfinu á Íslandi
Malasíski ferðaþjónustubóndinn Loo Eng Wah segir að áform sín á Leyni 2 og 3 í Landsveit hafi
mætt andspyrnu og reiði Hann áformar að útbúa tjaldstæði á heimsmælikvarða en slíkt taki tíma
Morgunblaðið/Hari
Umdeildur Loo Eng Wah byggir upp ferðaþjónustu á Leyni 2 og 3 í Landsveit. Áform hans hafa mætt andstöðu í sveitinni en hann er ekki af baki dottinn.
Fráveita Loo segir að hjólhýsin séu ekki fasttengd við fráveitu.
Kúlutjöld Í þessum tjöldum verður hægt að njóta norðurljósa á veturna.Athugið!
Ekkert líffæri líkamans er óhult fyrir gigtarsjúkdómum.
Biðlistar eru bölvun.
ALÞJÓÐLEGI
GIGTARDAGURINN
ER Í DAG