Morgunblaðið - 12.10.2019, Qupperneq 45
stakan 90 mínútna leik, jafnvel gegn
heimsmeisturunum, og barðist fram á
lokasekúndu fyrir því að fá eitthvað út
úr leiknum. Í gegnum hann komst
Kolbeinn Sigþórsson í ágætt færi í
upphafi seinni hálfleiks en leikurinn
breyttist svo mikið þegar Frakkar
fengu vítaspyrnuna um miðjan seinni
hálfleik. Ari Freyr Skúlason sýndi
mikinn klaufaskap þegar hann spark-
aði einhvern veginn í Griezmann inn-
an teigs, en það var öllum augljóst að
Griezmann hefði getað staðið brotið af
sér. Í staðinn, eftir nokkurn umhugs-
unartíma, lét hann sig falla í grasið á
Laugardalsvelli og uppskar víti. Hátt-
erni sem þykir eðlilegt í nútímafót-
bolta, einhverra hluta vegna.
Frakkar sýndu engar glufur
Leikurinn opnaðist talsvert mikið
eftir þetta en það voru Frakkar sem
fengu færin. Það skipti á endanum
ekki máli fyrir þá þó að N’Golo Kanté
meiddist í upphitun. Varnarlínan,
skipuð leikmönnum úr Real Madrid,
Barcelona, Bayern München og Ever-
ton, steig ekki feilspor og aldrei
reyndi því sérstaklega á Steve Mand-
anda í markinu.
Erik Hamrén reyndi að bæta í
sóknarþungann með því að setja Al-
freð Finnbogason og Arnór Sigurðs-
son inn á, lét þá nægja að hafa Birki
og Gylfa Þór Sigurðsson tvo á miðj-
unni, og stundum vantaði lítið upp á til
að Ísland kæmist í gott færi. Úr varð
hins vegar að Ísland skoraði ekki
mark á Laugardalsvelli í undankeppni
stórmóts í fyrsta sinn síðan í frægum
leik við Kasakstan fyrir fjórum árum
þar sem jafntefli kom Íslandi á EM.
Ljóst er að uppleggið gegn An-
dorra á mánudag verður gjörólíkt því
sem var í gær. Ekkert nema sigur
kemur til greina fyrir Ísland í þeim
leik og sjálfsagt verða margir með
stöðuna í leik Frakklands og Tyrk-
lands á hreinu á sama tíma. Draum-
urinn um EM er ekki úti. Í raun lifir
hann alltaf góðu lífi vegna frammi-
stöðu okkar manna síðustu ár sem
skilaði þeim sæti í A-deild Þjóðadeild-
ar, og þar með nánast öruggu sæti í
áðurnefndu umspili. Ef til þess kemur
verður þá vonandi hægt að gera
Laugardalsvöll aftur að sama vígi 26.
mars, en þá þurfa veðurguðirnir
væntanlega að vera okkur ansi hlið-
hollir.
Morgunblaðið/Eggert
Öflugur Birkir Bjarnason með skalla fram hjá marki Frakka í gær en hann átti mjög góðan leik á miðjunni gegn heimsmeisturunum.
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019
„Þetta er búið,“ sagði vonsvik-
inn kollegi við mig á Laugardals-
vellinum í gærkvöld eftir ósigurinn
gegn Frökkum.
Og átti þar auðvitað við mögu-
leika Íslands á að komast beint í
lokakeppni EM karla í fótbolta.
„Frakkar og Tyrkir gera bara
markalaust jafntefli á mánudag-
inn og sigla saman á EM,“ bætti
hann við. „Nema kannski ef Griez-
mann tekur upp á því að vera jafn-
leiðinlegur við Tyrkina og okkur.“
Framganga landsliðsins
haustið 2017 þegar það var með
bakið upp við vegg en vann síð-
ustu þrjá leiki sína og komst með
því á HM í Rússlandi er flestum
enn í fersku minni og því eðlilegt
að bundnar séu vonir við að hægt
sé að endurtaka þann leik.
Þar voru einmitt Tyrkir í kjör-
stöðu í riðlinum en Ísland vann
sigurinn ótrúlega á hinum tyrk-
neska „Eskifirði“ og sigldi fullum
seglum til Rússlands.
En núna er ekkert annað í spil-
unum en að vinna Andorra á
mánudagskvöldið á Laugardals-
vellinum og vonast eftir því að
Tyrkir verði ekki með uppsteyt á
Stade de France á sama tíma.
Talandi um Andorra, þá vann
smáríkið í Pyreneafjöllunum sigur
á Moldóvu í gærkvöld og leikmenn
liðsins koma því fullir sjálfstrausts
til Reykjavíkur.
Við þekkjum það af leikjum
við Andorra í gegnum tíðina að
þetta er án efa það „smálið“ í Evr-
ópu sem erfiðast er að brjóta nið-
ur. Andorramenn spila jafnan
þrautskipulagðan og árangurs-
ríkan varnarleik og það mun því
reyna á þolinmæði landsliðs-
mannanna og áhorfenda á mánu-
dagskvöldið. En, þó að kollegi
minn hafi verið svartsýnn – þá er
þetta alls ekki búið!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Dominos-deild karla
Þór Ak. – Fjölnir................................... 69:94
Staðan:
Stjarnan 2 2 0 195:154 4
KR 2 2 0 191:161 4
Valur 2 2 0 181:160 4
Keflavík 2 2 0 183:166 4
Tindastóll 2 1 1 160:161 2
Fjölnir 2 1 1 181:163 2
Haukar 2 1 1 189:186 2
Njarðvík 2 1 1 160:155 2
Grindavík 2 0 2 166:186 0
Þór Þ. 2 0 2 153:179 0
ÍR 2 0 2 146:188 0
Þór Ak. 2 0 2 153:199 0
1. deild karla
Höttur – Sindri ..................................... 84:76
Hamar – Álftanes ............................... 104:68
Selfoss – Snæfell................................... 75:59
Evrópudeildin
Anadolu Efes – Alba Berlín... (frl.) 106:105
Martin Hermannsson skoraði 4 stig fyrir
Alba, átti 11 stoðsendingar og tók 2 fráköst
en hann spilaði í 21 mínútu.
KÖRFUBOLTI
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði
tvö af fyrstu þremur mörkum
Wolfsburg í gærkvöld þegar Þýska-
landsmeistararnir unnu stórsigur á
Köln á útivelli, 5:0. Sara hefur þar
með skorað fjögur mörk í síðustu
þremur leikjum í 1. deildinni en
Wolfsburg hefur þar unnið alla sex
leiki sína á tímabilinu og náði með
sigrinum í gærkvöld sex stiga for-
skoti á helstu keppinauta sína, Hof-
fenheim, Bayern og Frankfurt.
Sara skoraði
tvö í Köln
Guðmundur Hilmarsson
Sindri Sverrisson
Rúnar Már Sigurjónsson og Jóhann
Berg Guðmundsson verða ekki með
íslenska landsliðinu gegn Andorra á
mánudagskvöldið þegar þjóðirnar
mætast á Laugardalsvellinum í und-
ankeppni EM. Þeir fóru báðir meidd-
ir af velli í gærkvöld og Rúnar sagði
við Morgunblaðið að hann yrði vænt-
anlega frá í nokkrar vikur þar sem
hann tognaði aftan í læri. Þátttaka
hans í leikjunum við Tyrkland og
Moldóvu um miðjan nóvember er því
væntanlega í hættu.
Erik Hamrén landsliðsþjálfari
staðfesti eftir leikinn að Jóhann Berg
yrði ekki leikfær á mánudagskvöldið
en staðan á hans meiðslum lá ekki
fyrir að öðru leyti.
„Ég tognaði aftan í læri sem þýðir
að ég verð ekki með á mánudaginn og
verð frá keppni næstu vikurnar. Það
er mjög svekkjandi því mér leið vel
inni á vellinum og vildi klára leikinn
og ná að jafna hann. Það er fúlt að við
Jói lentum í sömu meiðslum en það
þýðir ekkert að væla. Það kemur
maður í manns stað,“ sagði Rúnar.
Stoltur en vonsvikinn
„Ég er stoltur af leikmönnunum.
Við gerðum allt sem við gátum en
auðvitað er ég vonsvikinn með að fá
ekki nein stig fyrir alla þessa vinnu og
hugrekki sem leikmennirnir sýndu,“
sagði Erik Hamrén landsliðsþjálfari.
„Eitt stig hérna hefði getað breytt
stöðunni talsvert [þar til Tyrkir skor-
uðu gegn Albaníu], en núna þurfum
við hjálp frá Frökkum. Ef þeir vinna
Tyrki og við vinnum síðustu þrjá leik-
ina komumst við á EM. Stig hefði
kannski litlu breytt úr því að Tyrkir
unnu svo á endanum en við hefðum
gjarnan viljað uppskera eitthvað í
kvöld,“ sagði Hamrén.
Klaufalegt af minni hálfu
„Þetta var klaufalegt af minni
hálfu. Ég er búinn að sjá atvikið og
þar kemur í ljós að ég fór í höndina á
honum. Ég bauð upp á þetta og þetta
var leiðinlegt. Stig í þessum leik hefði
verið helvíti gott fyrir okkur,“ sagði
Ari Freyr Skúlason sem fékk á sig
vítaspyrnuna örlagaríku.
„Griezmann sá að hann gat ekki
sparkað í boltann. Ég var nokkuð viss
um að hann ætlaði að fara að skjóta á
markið og ég ætlaði að reyna að
blokka skotið,“ sagði Ari.
Rúnar og Jóhann eru báðir úr leik
Rúnar Már
Sigurjónsson
Ari Freyr
Skúlason
Selfyssingar freista þess að vinna
upp sex marka forskot sænska liðs-
ins Malmö í kvöld þegar liðin leika
seinni leik sinn í 2. umferð EHF-
bikars karla í handknattleik á Sel-
fossi. Malmö vann fyrri leik liðanna
á sínum heimavelli, 33:27, um síð-
ustu helgi og Selfyssingar þurfa því
sex marka sigur ef Malmö skorar
færri en 27 mörk í leiknum.
FH á líka erfitt verkefni fyrir
höndum í Noregi í sömu keppni. Ar-
endal vann FH 30:25 í Kaplakrika
og stendur því vel að vígi fyrir
seinni leikinn sem fer fram í dag.
Glíma við sex
marka forskot
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Selfoss Árni Steinn Steinþórsson
og félagar mæta Malmö í kvöld.
Fjölnismenn fengu sín fyrstu stig í
úrvalsdeild karla í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, í gærkvöld þeg-
ar þeir unnu mjög sannfærandi sig-
ur á hinum nýliðum deildarinnar,
Þórsurum, norður á Akureyri.
Lokatölur urðu 94:69 fyrir Fjölni
eftir að staðan var 49:30 í hálfleik.
Viktor Moses skoraði 29 stig fyrir
Fjölni, Jere Vucica og Srdan Stoj-
anovic 23 hvor. Hjá Þór var kól-
umbíski landsliðsmaðurinn Hansel
Atencia með 15 stig og þeir Pablo
Hernández og Mantas Virbalas með
14 stig hvor.
Sannfærandi
Fjölnissigur
Morgunblaðið/Eggert
Sigur Falur Harðarson þjálfar
Fjölni sem er kominn á blað.