Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 49
á meðan maður skrifar verkið,“ segir Andri og á þar við ömmur sínar og afa en Björn Þorbjarnarson, afi Andra, lést á útgáfudegi bókarinnar, 98 ára að aldri. Björn bjó í Bandaríkjunum og átti farsælan feril sem skurðlæknir, skar meðal annars upp umdeildan Írans- keisara og Robert J. Oppenheimer, „föður atómsprengjunnar“. „Hann er svona rauður þráður í gegnum verkið. Ég náði að sýna honum bók- ina, fór til Bandaríkjana um daginn,“ segir Andri. „Það má segja að þessi bók sé að miklu leyti tileinkuð honum og frænda mínum John Thorbjarn- arson sem var krókódílafræðingur.“ Kölski heimtir kaupið Varðandi stöðu loftslagsmála í dag segir Andri miklar breytingar vera í vændum. „Við erum að fara í gegn- um stærstu viðmiðaskipti sem okkar kynslóð mun lenda í. Ég held að næstu 30 ár verði allt öðruvísi en síð- ustu 30 ár.“ Hann segir miklar fram- farir hafi orðið á síðustu árum en þættir eins og mengun bílaumferðar og neysla hafi samt sem áður aukist. „Helmingur af öllu plasti sem hefur orðið til í heiminum varð til á síðustu 20 árum og helmingur af losun allra gróðurhúsalofttegunda varð á síð- ustu 30 árum. Stærðirnar eru allar mjög ógnvænlegar.“ Andri segir okkur hafa verið í raun svindlað inn í heiminn þar sem við njótum góðs af öllum þeim tækni- framförum sem hafa átt sér stað en höfum á sama tíma valdið mikilli mengun. „Við erum svolítið eins og Sæmundur fróði. Við náðum að gera samning við einhvern í neðra og auð- velduðum okkur lífið um tíma. En nú heimtir kölski kaupið. Við erum því komin í tilvistarkreppu þar sem þetta gengur ekki lengur upp.“ Hann segir ákveðna þversögn fólgna í þeim tíma sem við lifum; allt sé frábært en á sama tíma er allt að fara til fjandans. „Milljarður hefur risið í Kína, millistétt hefur orðið til á Indlandi og miklu færri deyja úr hungri en áður. Við höfum náð stór- kostlegum árangri í að bæta lífskjör manna en á sama tíma vegum við salt á hengiflugi þar sem ferlar eru komnir í gang sem geta síðan gert þennan árangur að engu.“ Að sögn Andra þurfum við að losa okkur und- an því sem kom okkur á þann stað þar sem við erum til þess að komast síðan enn lengra. Heil kynslóð til tunglsins Andri veltir þeirri spurningu fyrir sér hvort betra sé að ungt fólk og börn viti allar staðreyndir um lofts- lagsmál, fari í loftslagsverkfall og fleira í þeim dúr, eða viti ekki af þeim, geti í sakleysi sínu gert það sem þau lystir. „Viljum við að kyn- slóðin sé meðvituð og viti að það þurfi að endurhugsa og endurhanna alla 20. öldina; hvernig við klæðum okkur, hvernig við borðum, hvernig við ferðumst, hvernig við skemmtum okkur, hvað við viljum, hvað við not- um hluti lengi og hvernig við hendum hlutum? Eða viljum við að þau séu meðvitundarlaus um það, og hvenær viljum við þá að þau frétti af þessu ástandi? Þegar þau eru 32 ára?“ Að mati Andra ákveður fólk sína stefnu nokkuð snemma, jafnvel 10 ára. „Það er ekkert gaman að hafa einhvern loftslagskvíða en ef það fær réttan farveg og fólk fær útrás í end- urhugsun á hlutunum þá er ekkert endilega slæmt að vera kynslóð sem hefur hlutverk,“ segir hann og bend- ir á að þessi kynslóð eigi stórt verk- efni að glíma við. „Það er heil kynslóð sem þarf að fara til tunglsins. Það þarf svo mikla hugsun, svo mikla sköpun, svo mikil vísindi til að ná þessu markmiði. En það þarf ekki að vera neikvætt afl sem losnar úr læðingi við það því við erum komin aftur til þess sem alda- mótakynslóðin lifði við. Þá var fagn- að þegar byggð var brú. Minni kyn- slóð hefur aldrei þótt brú neitt merkileg því við vitum ekki hvernig það var þegar ekki var hægt að kom- ast yfir fljótið. Þessi kynslóð mun taka þátt í miklu merkilegri hlutum heldur en mín kynslóð sem býr til Facebook, Sapchat og verður rosalega rík af því. Þessi kynslóð er að fara að fagna því þegar fyrsta gígatonnið af CO2 hefur verið fjarlægt úr lofthjúpn- um,“ segir Andri Snær. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tíminn og vatnið „Það er heil kynslóð sem þarf að fara til tunglsins,“ segir Andri Snær Magnason rithöfundur um það verkefni sem næsta kyn- slóð mun þurfa að glíma við. MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2019 Morgunblaðið/Hari Kraftur Sköpunarkraftur Rögnu sem tvinnar frásagnirnar vel saman, að mati gagnrýnanda. arkona á við þöggun á heimilinu og í fjórðu sögunni tekst kona sem flýr nasisma í Þýskalandi á við sköp- unarkraft sinn í nýju umhverfi. Í fimmtu og síðustu sögunni kynn- umst við blindum unglingi sem er uppi á 18. öld og á sér einn draum heitastan. Í þeirri sögu birtist ein- mitt kjarni sagnanna fimm: Óháð tíma og rúmi eiga persónurnar eitt sameiginlegt, að rækta drauma sína og skapa eigið líf. Líkt og í fyrri verkum fjallar Ragna um myndlist frá hinum ýmsu sjónarhornum og í Vetrargulrótum fléttast Íslands- og heimssagan saman við listsköpunina. Ragna varpar ljósi á samfélagsmál sem hafa átt við frá upphafi mannkyns, allt frá þunglyndi til hlutverks kvenna, að ógleymdu sambandi mannsins við náttúruna. Sköpunar- kraftur er kjarni smásagnasafnsins en það er sköpunarkraftur Rögnu sem tvinnar frásagnirnar vel saman svo úr verður heildstæð lesning sem skilur lesanda eftir með ótal spurn- ingar um listina, náttúruna og fram- komu við náungann sem er öllum hollt að velta fyrir sér. Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafn- arfirði var sett í fjórða sinn í gær. „Í ár hverfast viðburðirnir flestir um metsölubækur Gunnars Helga- sonar rithöfundar sem hafa fengið framhaldslíf á hvíta tjaldinu og í leikhúsi en 19. október verður leik- gerð Bjarkar Jakobsdóttur, bæjar- listamanns Hafnarfjarðar, 2019 á leikritinu Mamma klikk! frumsýnd í Gaflaraleikhúsinu,“ segir í til- kynningu frá skipuleggjendum. Þar kemur fram að hátíðin var sett í Gaflaraleikhúsinu í gær þar sem 4. bekkingar í Hafnarfirði fylgdust með uppsetningunni á Mömmu klikk! „Næstu daga verða viðburðir í menningarstofnunum bæjarins, fjölskyldusmiðja í Hafn- arborg og fjölbreytt dagskrá í Bókasafni Hafnarfjarðar. Þá verð- ur kvikmyndin Víti í Vestmanna- eyjum sýnd í Bæjarbíó sunnudag- inn 13. október og tilvalið að skella sér í þrjúbíó. Kennsluvikuna á eftir mun Gunnar Helgason heimsækja nemendur á miðstigi í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar og segja frá og lesa úr bókum sínum. Bóka- og bíóhátíð barnanna er ætl- að að efla áhuga barna á lestri og læsi í víðum skilningi og vekja áhuga barna á að sökkva sér í ævintýraheima bóka og bíó- mynda.“ Bóka- og bíóhátíð barnanna hafin Listahjón Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttir á góðri stundu. Fyrsta sam- sýning fé- lagsmanna í Vatnslita- félagi Ís- lands verður opnuð í Gall- erí Göngum við Háteigs- kirkju í dag kl. 15. Verkin sem sýnd verða á sýningunni voru valin af þriggja manna nefnd sem skipuð var listamönnum sem ekki eru í fé- laginu. Opið er í dag frá 15-18 og á morgun frá 14-17. Sýningin stendur til 30. nóvember og verður opin alla virka daga milli kl. 10 og 16. Helgaropnun verður auglýst sér- staklega. Samsýning Vatns- litafélags Íslands Blik Þrjár myndanna sem sjá má á sýningu. Söngleikurinn We Will Rock You eftir Queen og Ben Elton sem frumsýndur var í Háskólabíói 15. ágúst flyst yfir í Eldborg Hörpu frá og með 29. nóv- ember. Í tilkynn- ingu frá að- standendum kemur fram að upphaflega hafi aðeins staðið til að sýna í ágúst, en vegna mikillar eftirspurnar var sýnt í Háskólabíói út september. Góðar viðtökur hafi leitt til þess að nú færist sýningin í Eldborg Hörpu. We Will Rock You fer á svið í Eldborg Ragga Gísla í We Will Rock You. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.