Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 10
Allt frá árinu 1942 hafa farið fram kannanir til að áætla hve marga hjúkrunarfræðinga
vantar til starfa og bera saman við fjölda starfandi hjúkrunarfræðinga. Kannanirnar,
sem framkvæmdar hafa verið af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og fleiri aðilum,
hafa verið gerðar með óreglulegu millibili. Niðurstöðurnar eiga það sammerkt að hafa
leitt í ljós langvarandi skort á hjúkrunarfræðingum.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gaf í febrúar út skýrsluna Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa, vinnumarkaður hjúkrunarfræðinga. Meginmarkmið skýrslunnar var
að varpa ljósi á vinnumarkað hjúkrunarfræðinga, fá yfirlit yfir mönnun í hjúkrun á
heilbrigðisstofnunum, kanna hversu marga hjúkrunarfræðinga vantar til starfa, spá
fyrir um stöðu mönnunar í hjúkrun næstu fimm árin, eða fram til ársins 2021, bera
saman kjör hjúkrunarfræðinga við aðra opinbera starfsmenn og koma með tillögur
til úrbóta.
Vantar á fimmta hundrað hjúkrunarfræðinga
á næstu árum
Samkvæmt greiningu á vinnumarkaði hjúkrunarfræðinga eru 4525 hjúkrunarfræð -
ingar með starfsleyfi og á vinnualdri. Einungis 69% þeirra eru félagsmenn í Félagi ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga og eru um þúsund hjúkrunarfræðingar að störfum við
annað en hjúkrun. Mikill meirihluti hjúkrunarfræðinga (98%) eru konur og starfa um
94% þeirra á opinberum vinnumarkaði. Um 13% hjúkrunarfræðinga geta hafið töku
lífeyris á næstu árum.
Niðurstaða könnunar á mönnun í hjúkrun á heilbrigðisstofnunum á Íslandi sýnir
að 225 stöðugildi hjúkrunarfræðinga, eða 290 hjúkrunarfræðinga, vantar nú til starfa
til að manna fjármögnuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum.
Meðalstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum er 71%. Ef tekið er mið
af áætlaðri þörf á hjúkrunarfræðingum samkvæmt mati framkvæmdastjóra hjúkrunar
og hjúkrunarforstjóra vantar allt að 405 stöðugildi, eða 523 hjúkrunarfræðinga til
starfa. Ár hvert hefja að meðaltali 146 nemendur nám í hjúkrunarfræði og útskrifast
að meðaltali 120 þeirra fjórum árum síðar. Brottfall nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga
úr starfi var að meðaltali 15% á árunum 2012–16. Að meðaltali hefja því 102 hjúkr-
10 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017
Starfshlutfall hjúkrunarfræðinga aldrei verið lægra
Lítill hvati að hækka starfshlutfall og lítill hljómgrunnur fyrir breytingum
Gunnar Helgason
Gunnar Helgason, sviðstjóri kjarasviðs Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Meðalstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga hefur aldrei verið eins lágt en langvarandi skortur hefur verið á hjúkr-
unarfræðingum undanfarna áratugi. Er það raunin að hjúkrunarfræðingar vinni að meðaltali 70% starf? Hver
eru í raun ársverk hjúkrunarfræðinga og hvert er endanlegt starfshlutfall þeirra þegar öll unnin yfirvinna er
tekin með? Eru hjúkrunarfræðingar að reyna að hámarka launin sín og skapa sér meira frelsi og svigrúm
varðandi vinnutíma með því að vera í lægra starfshlutfalli? Með auknu starfshlutfalli og minni yfirvinnu væri
hægt að draga verulega úr mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum en hverra hagur er það? Ljóst er að lítill
hvati er fyrir hjúkrunarfræðinga að hækka starfshlutfall sitt út frá gildandi kjarasamningum og launaumhverfi
að mati Gunnars Helgasonar, sviðstjóra kjarasviðs. Hann segir mikilvægt að ræða tillögur til úrbóta innan stéttar -
innar en í skýrslunni Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa, sem gefin var út fyrr á þessu ári, eru lagðar fram til-
lögur til úrbóta sem eru að megninu til þær sömu og lagðar voru fram 1999 — enda mönnunarvandi hjúkr -
unarfræðinga ekki nýr af nálinni!