Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Side 29
leiðslu að ræða. Á geðsviði, þar sem við erum með þjónustu -
þega í einstaklings við tölum og meðferð, er þetta nauðsynlegt
og mikill stuðningur fyrir meðferðaraðila og ýtir undir öryggi
og fagmennsku. Ég hef unnið í teymi á geðsviði þar sem var
faghandleiðsla í hóp vikulega; var það mjög gagnlegt og ég fann
hversu styrkjandi það var fyrir mig persónulega sem með -
ferðaraðila og fyrir okkur sem teymi. Tvisvar í mánuði fengum
við handleiðara utan teymis en hina vikuna sáum við teymis -
meðlimir um hana sjálf (jafningjahandleiðsla). Ég er þess full-
viss að ávinningurinn skilaði sér einnig til þeirra sem sóttu
þjónustu til teymisins. Mikill hraði er oft í vinnuumhverfinu
og auðvitað grípur maður oft kollega eða samstarfsfólk og fær
óformlega handleiðslu, með hrökkbrauð í annarri hendi og
kaffibolla í hinni, en það er ekki sambærilegt við formlega hand-
leiðslu þar sem tími er tekinn frá og búið til rými fyrir hana í
starfsumhverfinu. Ég hef einnig reynslu af hóphandleiðslu þegar
ég var á svokölluðu starfsþróunarári, en þar vorum við frekar
að skoða upplifun okkar af starfinu en einstök mál. Reyndur
handleiðari var með hópinn og nýttist það mér vel í því að máta
mig í starfi auk þess sem mér fannst það gagnast mér í því að
staðsetja mig innan sviðsins en ég var tiltölulega nýbyrjuð á
geðsviði á þeim tíma.
Ég tel einnig að góð handleiðsla sé mikilvægur þáttur í því
að fyrirbyggja kulnun og streitu. Handleiðsla ætti að koma til
áður en við erum komin í kulnun og finnst við ekki ráða við
aðstæður og búin að missa eldmóðinn. Þetta tel ég að eigi við
reynda hjúkrunarfræðinga sem og nýgræðinga. Við þurfum að
halda sérstaklega vel utan um þá sem eru að stíga sín fyrstu
skref, gæta þess að færa ekki of mikla ábyrgð á herðar þeirra
strax og tryggja handleiðslu og stuðning. Það er einnig á okkar
ábyrgð að tala sjálf um handleiðslu, skoða það með okkar
deildar stjórum og yfirmönnum hvort hægt er að finna henni
stað í vinnuumhverfinu og á hvaða formi. Þó að við séum reynd
og ,,kunnum allt“ þá getur góð handleiðsla skipt sköpum fyrir
vinnugleði okkar, vellíðan, andlega heilsu og fyrir einstak-
lingana sem við sinnum dag hvern í okkar starfi.
Góðar stundir.
Ég skora á Hrafnhildi Ólöfu Ólafsdóttur, hjúkrunarfræðing á
bráðamóttöku geðsviðs, að skrifa næsta þankastrik.
þankastrik — tölum um handleiðslu
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 29
„Handleiðsla ætti að koma til áður en við erum
komin í kulnun og finnst við ekki ráða við
aðstæður og búin að missa eldmóðinn. Þetta tel
ég að eigi við reynda hjúkrunarfræðinga sem og
nýgræðinga.“