Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Side 31
Aukin vellíðan, bætt geðheilsa og
virkari samfélagsþátttaka
Meginmarkmið stefnu og aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðis-
málum er að stuðla að aukinni vellíðan og betri geðheilsu
lands manna og virkari samfélagsþátttöku þeirra sem glíma við
geðröskun. Undirmarkmið fela í sér að þjónusta við sjúklinga
sé samþætt og samfelld, að uppeldisskilyrði barna stuðli að vel -
líðan þeirra og að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli
geðheilsu. Ýmsar aðgerðir eru settar fram til að ná þessum
markmiðum. Má þar nefna aukna geðræna þjónustu innan
heilsugæslunnar, fjölgun geðheilsuteyma, styrkingu barna- og
unglingageðdeildar Land spítala og aukinn stuðning við börn
sem eiga foreldra með geðvanda. Að mati félagsins og fag-
deildar geðhjúkrunarfræðinga eru þetta allt atriði sem geð -
hjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í geðhjúkrun geta og eiga
að taka þátt í. Einnig er þar að finna tillögu um að efla þekkingu
starfsfólks á hjúkrunarheimilum vegna þjónustu við íbúa með
geðröskun sem að mati félagsins ætti að vera í umsjá hjúkrun-
arfræðinga og sérfræð inga í öldrunar- og geðhjúkrun.
Einnig eru settar fram aðgerðir varðandi bætt uppeldisskil -
yrði barna sem byggjast einkum á forvörnum. Lagt er meðal
annars til að teymi verði stofnað til að sinna ráðgjöf og styðja
foreldra og aðra aðstandendur, stuðlað verði að markvissri
geðrækt í skólum, skimað verði eftir kvíða og þunglyndi meðal
grunnskólabarna og viðeigandi meðferð veitt eftir þörfum og
leitað verði árangursríkrar meðferðar til að draga úr sjálfsvígum
meðal ungmenna. Allt eru þetta þættir sem hjúkrunarfræð -
ingar innan heilsugæslunnar, skólahjúkrunarfræðingar og
geðhjúkrunarfræðingar, gætu lagt lið með þekkingu sinni
og reynslu og því nauðsynlegt að hafa þá með í þeim starfs-
hópum og teymum sem mynduð verða til að fylgja verkefn-
unum eftir.
Stefna félagsins í geðhjúkrun er mikilvægt innlegg hjúkrunar -
fræðinga til bættrar geðheilsu landsmanna og geðheil brigðis -
þjónustu sem vonandi nýtist í aðgerðum stjórnvalda í geð -
heilbrigðismálum. Væntanleg skýrsla fagsviðs og fagdeildar
geð hjúkrunar fræðinga verður kynnt heilbrigðisráðherra um
leið og hún verður tilbúin.
geðheilbrigði til framtíðar: hlutverk geðhjúkrunarfræðinga í geðrækt, forvörnum og merðferð
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 31
„Lagt er meðal annars til að teymi verði stofnað
til að sinna ráðgjöf og styðja foreldra og aðra
aðstandendur, stuðlað verði að markvissri geð -
rækt í skólum, skimað verði eftir kvíða og þung-
lyndi meðal grunnskólabarna og viðeigandi
meðferð veitt eftir þörfum og leitað verði árang-
ursríkrar meðferðar til að draga úr sjálfsvígum
meðal ungmenna.“