Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 38
Forvarnarstarf
skólahjúkrunar fræðinga
Hjúkrunarfræðingar, sérstaklega þeir sem starfa í nánasta umhverfi barnanna, eða
skóla hjúkrunarfræðingar, geta verið í meginhlutverki við að efla geðheilbrigði barn -
anna. Þeir eru á dag legum vettvangi barnanna og þess vegna leita þau gjarnan til
þeirra. Hjúkrunarfræðingarnir hafa grunnþekkingu á geð heilbrigðis málum og ættu
að þekkja hvað er bráðamál og hvað ekki og vita hvernig þeir bregðast við í hvert skipti,
t.d. hvort þeir fylgist áfram með börnunum og fái þau fljótlega aftur í viðtal, eða vísi
þeim áfram í sérhæfðari úrræði (Puskar og Bernardo, 2007). En erlendar rannsóknir
hafa sýnt að hjúkrunarfræðingana skortir trú á eigin getu til þess að sinna þessu, þeir
telja sig ekki hafa næga þekkingu til þess og skortir tíma til þess (Pryjmachuk o.fl.,
2011). Undanfarin ár hafa skólahjúkrunar fræðingar beint sjónum sínum meira að
geðheilbrigði barna en áður og sinna þá að einhverju leyti almennum forvörnum.
Nýverið hefur einnig aukist að þeir sinni sértækum forvörnum í einhverjum mæli, þá
aðallega skimunum og meðferð við vægum kvíða (Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
munnleg heimild 5. mars 2017).
Ef hjúkrunarfræðingar í skólum og heilsugæslu eiga að sinna þessu betur þarf að efla
þekkingu þeirra og færni á þessu sviði enn meira og það mundi sjálfsagt auka trú
þeirra á eigin getu sé henni ábótavant. Þá er líka mikil vægt að hjúkrunarfræðingarnir
fái aukinn tíma til þess að sinna þessu mikilvæga málefni. Einnig þyrfti heilsugæslan
að hafa sérfræðing í barna- og unglingageðhjúkrun innan sinna raða sem gæti sinnt
flóknari tilfellum og verið stuðningur við aðra hjúkrunarfræð inga. Ásamt þessu mætti
auka samvinnu milli hjúkrunarfræðinga í heilsugæslunni og á BUGL. Með því væri
m.a. hægt að miðla fagþekkingu milli stofnana. Á BUGL er meiri sérþekking á geðheil-
brigðismálum og gætu hjúkrunarfræðingarnir þar miðlað þekkingu sinni til hjúkr-
unarfræðinga í heilsugæslunni og einnig gætu þeir unnið saman að forvörnum hvort
sem það er að skipuleggja almennar forvarnir eða íhlutanir sem falla undir valdar eða
sértækar forvarnir. Skólahjúkrunarfræðingar ættu líka að gegna veigamiklu hlutverki
í Fjölskylduteymi eins og lýst er framar í greininni. Hjúkrunarfræðingar eru staðsettir
í nánasta umhverfi barnanna stóran hluta dagsins, þeir eru með faglega þekkingu á
geðheilbrigðismálum og eru tenging skóla og heilbrigðiskerfisins.
Samvinna mikilvæg til að árangur náist
Þegar rætt er um hvernig sé hægt að bæta og efla geðheilbrigði barna og unglinga
verður að horfa á það frá öllum hliðum. Það er ekki hægt að taka heilbrigðiskerfið út
fyrir og segja að það eigi eitt og sér að sinna þessu verkefni heldur þurfa öll kerfin,
sem sinna börnunum, að vinna saman í teymi, s.s. heilbrigðiskerfið, menntakerfið og
velferðarkerfið. Börn eyða stórum hluta dagsins í a.m.k. 10 ár í skólanum og því er
líka afar mikilvægt að skólakerfið taki þátt í umræðunni um hvernig hægt er að bæta
geðheilbrigði barna. Það er mín reynsla, eftir að hafa unnið sem skólahjúkrunar -
fræðingur í 10 ár og nú á göngudeild BUGL í rúma 6 mánuði, að hluti af vanlíðan hjá
mörgum börnum tengist skólaumhverfinu og þá annað hvort náminu eða félagslegum
aðstæðum í skólanum. Álagið þar getur verið mikið fyrir börnin og þarf að bregðast
betur við því. Að sjálfsögðu reyna skólarnir að gera sitt besta en það þarf engu að síður
að skoða hvað sé hægt að gera betur þar alveg eins og í heilbrigðiskerfinu og velferðar-
katrín inga grímsdóttir
38 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017
„Hjúkrunarfræðingar eru staðsettir í nánasta umhverfi barnanna
stóran hluta dagsins, þeir eru með faglega þekkingu á geðheil-
brigðismálum og eru tenging skóla og heilbrigðiskerfisins.“