Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Qupperneq 43
VIÐ GETUM — haft áhrif á tíðni krabbameins
Á Íslandi greinast árlega að meðaltali um 1.450 einstaklingar með krabbamein og um
fjórðungur allra dauðsfalla er af völdum krabbameins. Krabbamein er bæði flókinn
og kostnaðarsamur sjúkdómur fyrir sjúklinginn og samfélagið. Áætlað er að koma
megi í veg fyrir 30–40% krabbameina með heilsusamlegum lífsháttum. Þeir þættir,
sem skipta mestu máli, eru reykingar, offita, ofneysla áfengis, mataræði og hreyfing.
Við getum sem samfélag og sem einstaklingar minnkað líkurnar á krabbameini með
því að tileinka okkur heilsusamlega lífshætti og með því að beita aðgerðum sem
auðvelda slíkt. Við sem samfélag og einstaklingar getum fundið leiðir og beitt okkur
fyrir eftirtöldum þremur meginráðleggingum:
Reykjum ekki né notum tóbak. Reykingar hafa og eru enn langstærsti áhættu -
þátturinn og eru orsök 20–30% allra krabbameinstilfella. Mikilvægt er að vinna
stöðugt að tóbaksvörnum. Með því að reykja ekki né nota tóbak má koma í veg
fyrir og draga úr líkum á mörgum tegundum krabbameina, t.d. í lungum, munn-
holi, vélinda, brisi, nýrum, þvagblöðru og leghálsi.
Drekkum áfengi í hófi ef þess er neytt á annað borð. Ofneysla áfengis er áhætta
fyrir mörg krabbamein, t.d. brjóstakrabbamein, krabbamein í munni, barka, vél-
inda, ristli og lifur.
Forðumst ofþyngd og offitu. Með því að borða hollan mat, hreyfa sig reglulega
og vera í kjörþyngd má koma í veg fyrir um 25–30% krabbameinstilvika vegna
t.d. krabbameins í ristli, brjóstum, legi, eggjastokkum, brisi, vélinda, nýrum og
gallblöðru.
ÉG GET — verið meðvitaður um einkennin
og brugðist við þeim
Það er ekki alltaf auðvelt að greina krabbamein, sum þeirra gera engin eða óljós boð
á undan sér fyrr en sjúkdómurinn er langt genginn. Ýmsar leiðir hafa verið prófaðar
til þess að greina krabbamein á forstigi eða á frumstigi hjá einkennalausum einstak-
lingum, en þær þurfa að vera áreiðanlegar og hættulitlar til þess að þeim sé beitt.
Flestum aðferðunum er beitt á einstaklingsgrundvelli, en mælt er með þremur þeirra
fyrir hópleit (skimun), við leit að brjóstakrabbameini, leghálskrabbameini og ristil-
krabbameini.
Mörg krabbamein geta gefið frá sér einkenni eða merki sem er mikilvægt að þekkja
og bregðast við. Líkur á lækningu er meiri því fyrr sem krabbamein er greint. Þetta á
til dæmis við um krabbamein í lungum, þvagblöðru, ristli, brjóstum, leghálsi, kvið,
eggjastokkum, eistum og sortuæxli.
við getum — ég get …
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 43
Forvarnir og einkenni krabbameina
Nanna Friðriksdóttir og Sigrún Lillie Magnúsdóttir
Nanna Friðriksdóttir, sérfræðingur í hjúkrun
sjúklinga með krabbamein, klínískur lektor á
lyflækningasviði LSH og aðjunkt við HÍ.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðing -
ur og forstöðumaður ráðgjafarþjónustu Krabba -
meins félagsins.
Mörg krabbamein geta gefið frá sér einkenni eða merki sem mikil-
vægt er að þekkja og bregðast við. Líkur á lækningu er meiri því fyrr
sem krabbamein er greint.