Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Síða 47
Þegar einhver innan fjölskyldu greinist með krabbamein hefur það margs konar áhrif
í för með sér, ekki aðeins á hinn krabbameinsveika heldur einnig á maka hans og fjöl-
skyldu, vini og vinnufélaga. Áhrifin geta verið af ýmsum toga, t.d. líkamleg með breyttri
líðan og einkennum af völdum krabbameinsins, sálræn með áhyggjum, depurð og
kvíða og félagsleg með breyttum aðstæðum.
Krabbameinssjúklingar geta einangrast og þess vegna er félagslegur stuðningur
svo mikilvægur. Öll eigum við okkar föstu hlutverk og skyldur í lífinu sem við sinnum
daglega án þess að leiða beinlínis hugann að því. Þegar veikindi koma upp breytast
þessi hlutverk og tengsl einstaklinga geta einnig breyst. Um hríð munu einhverjir í
fjölskyldunni þurfa að breyta sínum daglegu háttum og taka að sér einhver af hlut-
verkum eða skyldum hins veika. Við þessar aðstæður er stuðningur mjög mikilvægur
þeim krabbameinsveika og fjölskyldu hans. Það getur stuðlað að öryggi og dregið úr
kvíða, létt margvíslegar byrðar, sem fylgja veikindunum, og auðveldað aðlögun að
breyttu lífi og hlutverkum og bætt almenna líðan.
Stuðningur á vinnustað skiptir miklu máli
Stuðningur getur komið víða að, t.d. frá maka eða sambýlingi, fjölskyldu, vinum,
vinnufélögum, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum, og stuðninginn má veita með ýmsum
hætti. Í sumum tilvikum geta stórfjölskylda, vinir og vinnufélagar myndað mikilvægt
stuðningsnet og haldið góðum tengslum á veikindatímanum og haft þar með jákvæð
áhrif á líðanina. Eðli stuðningsins getur verið mismunandi og í öllum tilvikum getur
hann átt þátt í að auðvelda þeim krabbameinsveika og fjölskyldunni aðlögun að marg-
víslegum breytingum sem fylgja veikindunum. Sumir veita aðstoð við daglegar
athafnir, aðrir hafa það hlutverk að veita aðstoð vegna barna á heimili eða með dægra -
styttingu og enn aðrir veita stuðning úr fjarlægð. Stuðningur á vinnustað frá yfir-
mönnum og samstarfsfólki er einnig mikilvægur og getur átt þátt í að draga úr kvíða
og stuðlað að því að auðveldara verði að snúa aftur til vinnu að loknum veikindum.
Fyrir vinnufélaga er mikilvægt að vera vakandi fyrir þörfum og tilfinningum þess
krabbameinsveika þegar hann er á vinnustað og halda einnig sambandi við hann þegar
hann er frá vinnu. Það getur verið mikilvægt að fá heimild til að aðlaga verkefni og
vinnutíma getu hins veika.
Þú getur verið þess fullviss að stuðningur þinn er mikilvægur hinum krabbameins-
veika og öllum hans nánustu, hver svo sem tengsl þín við sjúklinginn eru.
▶ VIÐ GETUM — stutt aðra, auðveldað þeim að takast á við krabbameinið og átt
þátt í að bæta líðan þeirra og lífsgæði
▶ ÉG GET — leitað eftir stuðningi hjá öðrum til að takast á við krabbameinið.
við getum — ég get …
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 47
Arndís Jónsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun.
Stuðningur við fjölskyldur
Arndís Jónsdóttir