Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Side 52
Krabbamein er samheiti yfir marga sjúkdóma og þekkja flestir til einhvers sem hefur
greinst með krabbamein eða hefur beina eða óbeina reynslu af þeim sjúkdómum. Í
árslok 2014 voru um 13.000 einstaklingar á lífi á Íslandi sem greinst hafa með krabba-
mein. Krabbamein og krabbameinsmeðferð getur valdið breytingum á lífi og lífs -
gæðum þess sem greinist og haft m.a. áhrif á kynheilbrigði einstaklingsins. Með
kyn heilbrigði er átt við líkamlega, sálræna og samfélagslega velferð eða vellíðan sem
hefur með kynverund (sexuality) að gera. Rannsóknir sýna að um helmingur krabba-
meinsgreindra eiga við ýmiss konar kynheilbrigðisvandamál að stríða og er það eitt
af algengustu langtímavandamálum þessa hóps.
Áhrif krabbameins á kynheilbrigði
Mismunandi meðferðarkostir eru í boði fyrir einstaklinga sem greinast með krabba-
mein og fer meðferðin eftir eðli sjúkdómsins og er sérsniðin að hverjum einstaklingi.
Sjúkdómurinn og meðferð hans tekur toll af einstaklingnum og oft eru aukaverkanir
töluverðar af meðferð. Þegar kemur að kynheilbrigði einstaklinga er margt sem getur
haft áhrif. Sjúkdómur í kynfærum getur valdið breytingum á kynfærunum sjálfum,
taugum eða blóðflæði. Brottnám brjósts eða eistna, breytt útlit skapabarma eftir aðgerð
eða ör á líkamanum geta valdið mikilli vanlíðan.
Þessar breytingar geta haft áhrif á sjálfsöryggi og vellíðan og þ.a.l. á líkamsímynd
og tilfinningu einstaklingsins fyrir sjálfum sér sem kynveru. En meðferð krabbameina,
sem ekki eru staðsett í kynfærum, getur einnig haft veruleg áhrif á líkamsímynd og
lífsgæði einstaklinga. Þar má telja þætti eins og þurrk í slímhúð, samgróninga í leg-
göngum, ristruflanir, getuleysi, verki, hárlos eða hármissi, ógleði, þreytu, þyngdar-
breytingar, minni kynlöngun og minni ánægju í kynlífi. Andleg vanlíðan, eins og
þunglyndi og kvíði, geta einnig haft mikil áhrif. Í kjölfar krabbameinsgreiningar getur
samband sjúklings við maka breyst. Erfiðleikar í samskiptum, óöryggi og jafnvel
hræðsla sjúklingsins eða makans við að gera eitthvað rangt getur komið í veg fyrir
eðlilegt samband. Mörg pör eru hrædd við að sýna sambandi sínu og kynlífi áhuga í
skugga alvarlegs sjúkdóms. Einstaklingar á barneignaraldri þurfa í ofanálag að takast
á við þá staðreynd að þeir geti hugsanlega orðið ófrjóir að meðferð lokinni.
Umræðan
Í marga áratugi hefur kynheilbrigði verið viðurkennt sem hluti af heilbrigði einstak-
linga og þ.a.l. eitt af því sem heilbrigðisstarfsfólki ber að sinna. Þrátt fyrir það fá þessi
málefni ekki næga athygli. Undanfarin ár hefur orðið vakning meðal heilbrigðisstarfs-
við getum — ég get …
52 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017
Þóra Þórsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Kynheilbrigði krabbameinssjúklinga
Þóra Þórsdóttir
„En betur má ef duga skal því enn þá virðist þetta umræðuefni vefj -
ast fyrir mörgum, jafnt sjúklingum sem heilbrigðisstarfsfólki. Mikil -
vægt er þó að hefja umræðuna strax við greiningu því upplýst
samþykki sjúklings fyrir meðferð á m.a. að fela í sér fræðslu um
áhrif sjúkdóms og meðferðar á kynheilbrigði.“