Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 8
8 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Stjórnarseta mín hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga hófst fyrir 11 árum en þá var ég formaður fagdeildar bráðahjúkrunarfræðinga. Ég hafði óþrjótandi áhuga á fag- og félagsmálum hjúkrunarfræðinga og vildi leggja mitt af mörkum þó ekki hafi ég þá vitað hvert sú vegferð myndi leiða mig. Í formannstíð Ólafs G. Skúlasonar var ég varaformaður félagsins og árið 2016, þegar hann hvarf til annarra starfa á miðju kjörtímabili, tók ég við embætti formanns eins og lög félagsins kveða á um. Þó fyrirvarinn hafi verið stuttur var mér ljúft og skylt að taka við stjórnartaumunum enda komin með nokkra reynslu í félags- og stjórnarstörfum. Ég hef ekki séð eftir þeirri ákvörðun. Á því ári sem ég leysti Ólaf af varð mér einnig ljóst að ég hefði heilmikið fram að færa og taldi mína áratugareynslu í hjúkrun geta nýst vel í áframhaldandi baráttu í félags- og kjaramálum hjúkrunarfræðinga. Þetta er klárlega eitt af skemmtilegri og meira gefandi störfum sem ég hef sinnt og segja má að ég stundi áfram hjúkrun daglega í samskiptum mínum við félagsmenn og aðra í fjölbreyttum og óþrjótandi verkefnum sem öll hverfast um hjúkrun á einn eða annan hátt. Samstaða einkennir stéttarvitund hjúkrunarfræðinga Þegar ég tók við formannsembættinu í mars 2016 skynjaði ég vissa deyfð og vonleysi meðal hjúkrunarfræðinga í kjölfar gerðardóms frá í ágúst 2015. Greinilegt var í samræðum við hjúkrunarfræðinga að þeir mátu dóminn sem visst ofbeldi í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og fannst yfirvöld hafa endanlega hunsað sig. Gerðardómurinn skapaði viss tímamót í baráttu hjúkrunarfræðinga í kjaramálum sem ég tel að við gætum átt – því miður – eftir að sjá raunveruleg áhrif af í framtíðinni. Það tók vel á annað ár að ná hjúkrunarfræðingum saman á ný en sem betur fer er staðan önnur í dag. Þrátt fyrir að mikill kraftur og samstaða einkenni stéttarvitundina óttast ég að langt sé í land að trú og traust til yfirvalda skapist á ný þar sem það beið mikinn hnekki við gerðardóminn. Á sama tíma hefur fagvitund hjúkrunarfræðinga styrkst og merki ég það á þátttöku í þeim viðburðum sem félagið hefur staðið fyrir undanfarið ár. Því styð ég enn frekar eflingu faglegs starfs því slíkur vettvangur er dýrmætur fyrir okkur til að koma saman, gleðjast, fræðast og blanda geði við aðra hjúkrunarfræðinga. Baráttumálin þau sömu og fyrir 100 árum Það er óhætt að segja að saga hjúkrunar- fræðinga endurtaki sig í ljósi þess að helstu baráttumál þeirra á 100 ára afmæli félagsins eru svo gott sem þau sömu og verið hafa undanfarna áratugi. Má þar helst nefna að menntun og ábyrgð í starfi sé metin í samræmi við aðrar sambærilegar stéttir og að útrýma kynbundnum launamun sem því miður er enn til staðar. Félagið hefur unnið markvisst að því að afla tölfræðilegra gagna um stöðu hjúkrunar á Íslandi og endurspegla þær niðurstöður hve staðan er alvarleg. Fyrirliggjandi gögn hafa nú þegar og eiga eftir að nýtast vel í komandi kjara- og réttindabaráttu hjúkrunarfræðinga. Í undirbúningi afmælisársins hefur verið fróðlegt að kynna sér 100 ára sögu félagsins. Þrátt fyrir að hlutverk hjúkrunarstéttarinnar hafi tekið miklum breytingum í áranna rás þá skýtur það skökku við að baráttumálin hafi ekki breyst meira en raun ber vitni. Það kemur hvað best fram þegar flett er í gegnum ríflega 90 ára sögu tímaritsins okkar. Á 4. áratug síðustu aldar var mikið skrifað um starfstíma og laun hjúkrunarfræðinga og ritar Þorbjörg Árnadóttir eftirfarandi í október 1935: „Hæfileg stytting vinnutímans leiðir til meiri starfsorku og þar af leiðandi betri vinnu. Hún stuðlar að betra heilsufari, sem verður gróði Saga hjúkrunarfræðinga, saga endurtekninga Áfangar í sögu hjúkrunar á Íslandi FORMAÐUR FÉLAGS ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA Guðbjörg Pálsdóttir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.