Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 9
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 9 1898 Fyrsta menntaða hjúkrunarkonan á Íslandi fyrir einstaklingana og þjóðfélögin í heild sinni.“ Orð hennar eiga jafnmikið erindi ríflega 84 árum síðar. Mikilvægt að stétt hjúkrunarfræðinga endurspegli fjölbreyttan hóp skjólstæðinga Svo við hörfum nú frá baksýnisspeglinum og lítum fram á við þá er tímabært að reynsla hjúkrunarfræðinga verði bæði metin að verðleikum og betur nýtt í heilbrigðiskerfinu líkt og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hafa hvatt lönd til að gera. Þróun heilbrigðismála á 21. öldinni mun hafa í för með sér enn stærra hlutverk hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins en nú er. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur t.d. vakið athygli á mikilvægi málsins með því að tileinka árið 2020 hjúkrunarfræðingum um allan heim. Þá tel ég mikilvægt að fjölga karlmönnum í stéttinni því, líkt og hjá öðrum fagstéttum, þurfa hjúkrunarfræðingar að geta endurspeglað hóp sinna skjólstæðinga svo að sem best sé hægt að sinna þeirra þörfum. Jafnframt er kominn tími til að hér á landi verði þekking og reynsla hjúkrunarfræðinga betur nýtt. Á næstu árum vil ég sjá fleiri hjúkrunar- fræðinga við störf á sömu launum og sambærilegar stéttir hjá hinu opinbera, í viðunandi starfsumhverfi þar sem menntun þeirra og reynsla er nýtt til fulls með skjólstæðinginn að leiðarljósi. Er þetta háleitt markmið? Ég tel það ekki vera. Við getum lært mikið af öðrum þjóðum og m.a. nágrannaþjóðum okkar. Við Íslendingar erum einstök þjóð en þó ekki yfir það hafin að tileinka okkur það sem sýnt hefur „ÞÁ TEL ÉG MIKILVÆGT AÐ FJÖLGA KARLMÖNNUM Í STÉTTINNI ÞVÍ, LÍKT OG HJÁ ÖÐRUM FAGSTÉTTUM, ÞURFA HJÚKRUNARFRÆÐINGAR AÐ GETA ENDURSPEGLAÐ HÓP SINNA SKJÓLSTÆÐINGA SVO AÐ SEM BEST SÉ HÆGT AÐ SINNA ÞEIRRA ÞÖRFUM“ verið fram á erlendis að skili þjóðinni betri heilbrigðisþjónustu. Breyttar áherslur í heilbrigðiskerfinu og betri nýting á þekkingu og reynslu hjúkrunarfræðinga í starfi skilar sömu gæðum, bættu aðgengi og fjárhagslega hagkvæmari heilbrigðisþjónustu sem og styttri biðtíma. Að mínu mati á þessi umræða ekki einvörð- ungu að snúast um hjúkrunarfræðinga heldur hvernig heilbrigðiskerfi við viljum hafa á Íslandi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.