Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 13
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 13 til að kalla eftir aðstoð. Ég kynntist kerfinu á ráðstefnu ICN (International Council of Nursing) í London árið 1999 og var harðákveðin í að nýta kosti þess í Sóltúni. Þannig lætur Vökull starfsfólk vita ef íbúi í fallhættu fer fram úr rúmi en ætti ekki að gera það án aðstoðar. Einnig getur kerfið sent starfsfólki skilaboð ef íbúi hefur vætt rúm eða svitnað mikið og þarfnast aðstoðar. Vökull getur einnig látið vita ef einhver ráfar inn á herbergi annars íbúa án þess að vera boðið þangað. Hægt er að skoða svartíma á bjöllum og boðum og hefur svartími bjölluhringina um langan tíma verið rúmlega 3 mínútur. Á ári eru um það bil 34 þúsund bjölluhringingar svo starfsfólk stendur sig mjög vel þar. Íbúar geta fylgst með viðburðum sem eiga sér stað í samkomusal heimilisins í sjónvörpum sínum og úr sjónvörpum í dagstofum á sambýlunum. Þannig eru þeir þátttakendur í því sem er að gerast þó þeir treysti sér ekki þá stundina í salinn. Að sama skapi getur starfsfólk og íbúar hlustað á vikulega fræðslufundi úr fræðslusal um allt hús. Skipulagsform hjúkrunar er einstaklingsbundið og hefur það reynst afar vel og stuðlað að vellíðan íbúa. Sóltún hefur verið eftirsótt af þeim sem þurfa á þjónustu að halda og annar hvergi nærri eftirspurn. Viðhorfskannanir og niðurstaða gæðavísa hafa komið vel út og verið birtar á heimasíðu heimilisins, www.soltun.is. Sóltún hefur einnig margoft fengið samþykkt að kynna erindi og niðurstöður gæðavísa á alþjóðlegum ráðstefnum þar sem mikil samkeppni hefur verið um að koma erindum að. Framtíðarþróun Sóltún hefur útvíkkað starfsemi sína í anda hugmyndarinnar um Sóltúnsþorpið sem ég setti fram árið 2001. Byggðar voru öryggis- og þjónustuíbúðir í Sóltúni 1-3 og eru þær seldar á almennum markaði til 60 ára og eldri. Margir sem búa þar eru tengdir íbúum á hjúkrunarheimilinu. Íbúar í Sóltúni 1-3 geta keypt máltíðir í kaffiteríunni Kaffi Sól á hjúkrunarheimilinu og ef eftirspurn er næg er heimsendur matur í boði í hádeginu virka daga. Þá var stofnað systurfélagið Sóltún öldrunarþjónusta ehf. árið 2010, www.soltunheima.is, sem vinnur m.a. að forvörnum og heilsueflingu til að styrkja fólk til áframhaldandi búsetu á eigin heimili. Í boði er þjálfun í heimahúsum, hópþjálfun í íþróttahúsi og sundleikfimi svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt standa hjúkrun og aðstoð við heimilishald til boða. Þetta er vaxandi starfsemi með sterkum starfsmannahópi. Áform eru um frekari uppbyggingu í Sóltúnsþorpinu með byggingu hjúkrunarheimilis í Sóltúni 4 og tengibyggingu milli þessara tveggja hjúkrunarheimila. Í tengibygginunni yrði möguleiki á að þjóna íbúum í hverfinu mun betur. Sjúkratryggingar Íslands og Ríkiskaup buðu út rekstur hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði í nýrri byggingu sem er risin á Sólvangsreitnum. Sóltún öldrunarþjónusta sendi inn tilboð í reksturinn sem byggðist á Sóltúnsfyrirmyndinni og vann þá sam- keppni. Sólvangur verður því hluti af Sóltúns- fjölskyldunni þegar byggingin verður tilbúin 2019. Þolinmótt fé Það hefur verið ótrúlega spennandi og um leið strembið viðfangsefni að reka jafn umfangsmikla starfsemi og hjúkrunarheimilið Sóltún með frábærum stjórnendahópi og starfsfólki. Reynsla af rekstri hjúkrunar- þjónustu á vegum hins opinbera hefur gefist vel auk þeirrar menntunar sem hjúkrunarstjórnendur og starfsfólk hefur aflað sér. Að starfa í samræmi við vel skilgreindan þjónustusamning hefur gert það að verkum að verkefnið er alveg skýrt fyrir stjórnendum og starfsfólki og hafa allir lagst á eitt að standa undir þeim merkjum. Einkaaðilar þurfa þó að hafa borð fyrir báru og leggja þarf til verulegt fjármagn til að hafa í handraðanum þegar á þarf að halda. Það þarf því þolinmótt fé til að geta farið út í rekstur af þessu tagi. Ef mannauðsmálin ganga vel og starfsfólki líður vel í starfi og sér árangur verka sinna, eins og það gerir í Sóltúni, þá líður íbúum okkar vel og reksturinn gengur betur. En það má hvergi slaka á, það er ekki nóg að ná einu sinni 10 í einkunn, það er miklu vandasamara að halda í við tíurnar. Tölvugerðar myndir sem sýna hvernig nýja húsið á Sólvangi í Hafnarfirði verður.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.