Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 18
18 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Allir sjá nauðsyn þess að eiga öflugt
þjóðarsjúkrahús en samt hefur
ávallt staðið styr um uppbyggingu
þess og svo er enn. Núverandi
húsnæði Landspítala er löngu gengið
sér til húðar og hentar ekki fyrir
nútímaheilbrigðisþjónustu. Þörfin
fyrir nýtt húsnæði fyrir starfsemi
Landspítala eykst með hverju ári, m.a.
vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar,
örra tækniframfara og þeirrar
sjálfsögðu kröfu landsmanna að geta
treyst á framúrskarandi og örugga
heilbrigðisþjónustu fyrir sig og ástvini
sína.
Óbilandi áhugi á nýbyggingum
Landspítala
Allt frá því að ég tók við stöðu
hjúkrunarforstjóra Landspítala í kjölfar
sameiningar sjúkrahúsanna í Reykjavík
hafa húsnæðismál spítalans verið mér afar
hugleikin. Undirbúningur að nýbyggingum
fyrir starfsemi Landspítala hófst árið 2000
eða skömmu eftir sameininguna. Síðan þá
eru hartnær 19 ár og meðferðarkjarninn,
hið eiginlega sjúkrahús, er ekki risið. Í starfi
mínu sem hjúkrunarforstjóri fylgdist ég ætíð
vel með framgangi byggingarverkefnisins og
hafði mikla ánægju af. Ég sat í byggingarnefnd
verkefnisins fyrir hönd Landspítala frá 2009
til 2013. Ég lét af starfi mínu við Landspítala
fyrir rúmum sex árum en áhugi minn á
nýbyggingum Landspítala hefur ekki dvínað.
Sjúkrahúsþjónusta í hinum vestræna heimi
þróast hratt og tekur örum framförum
með hverju árinu sem líður. Að sama skapi
tekur sérþekking heilbrigðisstarfsmanna
miklum framförum og meðferð sjúkdóma
verður tæknivæddari og flóknari. Ég er
sannfærð um að nýtt húsnæði fyrir starf-
semi Landspítala er undirstaða þess að
Íslendingar haldi stöðu sinni meðal fremstu
þjóða hvað heilbrigðisþjónustu varðar. Því
er afar mikilvægt að hraða uppbyggingu
meðferðarkjarnans.
Þrátt fyrir góð áform gerðist lítið á fyrsta
áratug þessarar aldar. Uppbygging nýs
húsnæðis fyrir starfsemi Landspítala átti sér
fáa talsmenn utan starfsmanna spítalans sem
sáu best hvar skórinn kreppti enda aðstaða
sjúklinga og starfsfólks víða óviðundandi.
Hagsmunir sjúklinga leiðarljósið
Ríkistjórnin ákvað í janúar 2005 að hefja
uppbyggingu nýs sjúkrahúss á lóð Landspítala
við Hringbraut. Samkeppni um skipulag
var haldin og skiluðu sjö arkitektahópar
tillögum. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, stýrði dómnefndinni
og varð tillaga arkitektanna CF Möller fyrir
valinu. Hafist var handa við að forhanna
spítalabyggingu í samræmi við þá tillögu.
Samhliða þeirri vinnu var unnin ítarleg
þarfagreining fyrir áætlaða starfsemi árið 2025.
Fjöldi starfsmanna Landspítala vann ötullega
með hönnuðum að bestu lausnum fyrir nýja
spítalabyggingu. Í allri þeirri vinnu voru
hagsmunir sjúklinga hafðir að leiðarljósi.
Nýr Landspítali
Anna Stefánsdóttir
fyrrverandi hjúkrunarforstjóri LSH og formaður
Spítalans okkar — landssamtaka um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala
1910
Tölvugerð mynd af nýjum Landspítala.