Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 21
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 21
„HELSTU ÞÆTTIR ÞESSARA FRAMFARA ERU
ÞRÓUN Á GERVIGREIND OG SJÁLFVIRKNI.
ÞETTA SJÁUM VIÐ NÚ ÞEGAR Í NOTKUN INNI Á
HEIMILUM OG Í FYRIRTÆKJUM.“
Í framtíðinni myndi ég vilja sjá tímanum varið þannig að öllum þörfum
verði sinnt jafnhliða. Til þess að félagslegum og andlegum þörfum sé
sinnt á markvissan hátt þurfum við að setja þær inn í vinnuferlana og
gefa starfsfólkinu tímann sem til þarf. Hjúkrunarheimili á að vera öruggt
skjól þar sem íbúunum líður vel og þeir geta haft það náðugt þar til yfir
lýkur. Við erum gestir inni á þessu heimili með það hlutverk að styðja
og styrkja íbúana á heildrænan hátt. Til þess að það sé mögulegt þurfum
við að þekkja bakgrunn þeirra og kynnast þeim þannig að til verði
meðferðarsamband sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, hlýju og
velvild. Það gæti virst langsótt en lausnina, eða hluta hennar, gæti verið
að finna í innleiðingu fjórðu iðnbyltingarinnar.
Fjórða iðnbyltingin er hugtak sem vísar til tækniframfara undanfarinna
ára og þeirra sem eru í vændum. Sú þróun mun líklega valda víðtækum
samfélagsbreytingum á næstu árum og áratugum. Margt sem fylgir
henni er nú þegar farið að líta dagsins ljós en ótrúlegir hlutir eru í
vændum. Helstu þættir þessara framfara eru þróun á gervigreind og
sjálfvirkni. Þetta sjáum við nú þegar í notkun inni á heimilum og í
fyrirtækjum.
Í sumum verslunum getum við afgreitt vörurnar sjálf, greitt fyrir þær og
það nánast án þátttöku afgreiðslufólks. Sjálfakandi bílar eru á næsta leyti
og flygildi munu innan skamms sjá um að færa okkur vörur heim sem
hafa verið pantaðar á netinu. Með þessari þróun mun starfsumhverfi
hinna ýmsu stétta breytast mikið. Sumar þeirra munu einfaldlega hverfa.
Starfsgreinar sem fjórða iðnbyltingin mun ekki leggja undir sig með
gervigreind og vélarafli eru þær sem tengjast mannlegum þáttum.
Þessar starfsgreinar snúast um sköpunargáfu, samhygð, snertingu og
gefandi samskipti. Hjúkrunarfræði er að miklu leyti byggð á þessum
eiginleikum.
Störf hjúkrunarfræðinga eru í meginatriðum fræðileg, tæknileg og
síðast en ekki síst mannleg. Þekkingin sem liggur að baki störfum
okkar er mótuð af gagnreyndum grunni sem hefur þróast fyrir tilstilli
vísindavinnu háskólanna. Að mínu mati er það fyrst og fremst mannlega
hlið hjúkrunarfræðinnar sem er mikilvægust. Þó að með tilstuðlan
gervigreindar sé hægt að gera ótrúlega hluti má geta sér til um að
verksvið hjúkrunarfræðinga verði aldrei til þess fallið að vera leyst á
stafrænan hátt. Þegar einhver verður fyrir áfalli af völdum sjúkdóms
eða óvæntra atburða þarf hann að hitta manneskju sem styður hann í
gegnum flókið og erfitt bataferli. Þegar aldurinn færist yfir og heilsunni
fer hrakandi þarf hjúkrunarfræðingur að auðsýna mannlegt innsæi,
skilning og alúð til að síðustu skref skjólstæðingsins séu tekin með fullri
reisn.
Áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar eru sérstaklega veigamikil þegar
kemur að stöðu kynjanna. Þessi þróun á eftir að hafa töluverð áhrif á
aðstöðumun karla og kvenna. Starfsgreinar þar sem karlmenn eru í
meirihluta munu verða fyrir miklum áhrifum af aukinni sjálfvirkni.
Hins vegar munu starfsgreinar á hinu mannlega sviði finna fyrir aukinni
aðsókn og eftirspurn. Sum störf geta vélar bara alls ekki innt af hendi,
hversu snjallar sem þær eru og fullkomnar. Þar er um innri þætti
manneskjunnar að ræða sem vélar geta aldrei skilið eða líkt eftir, eins
og samhygð, þverfagleg samvinna og hluttekning. Það eru hæfileikar
sem konur hafa lengi búið yfir. Konur eru eiginlega með öll spilin á
hendi. Þær eru á heildina litið með fleiri háskólagráður en karlmenn,
þær eru líklegri til að klára framhaldsskóla og jafnvel núorðið með fleiri
Ferming · Útskrift · Afmæli
Þú færð veitingar í veisluna þína
hjá Bakarameistaranum.
Á bakarameistarinn.is
getur þú skoðað úrvalið og pantað tertur,
veislutilboð og aðrar veitingar
fyrir veisluna þína.
Nánari upplýsingar má einnig fá á
pantanir@bakarameistarinn.is.
doktorsgráður. Einstaklingar sem velja að byggja sinn frama á þessu
sviði þurfa einna helst að rækta hæfileika til að skynja líkamstjáningu,
nota tilfinningagreind og rækta eflandi samskipti sem gera þeim kleift að
miðla þekkingu. Karlmenn sem vilja ekki starfa á tæknisviðinu þurfa að
tileinka sér þessa eiginleika í meiri mæli.
Allir hagnast á því að hafa vinnustaði eins mikið blandaða og
mögulegt er. Enn er nokkur hætta á að hefðbundin kvennastörf verði
vanmetin í framtíðinni, jafnvel þau sem ekki verða fyrir áhrifum fjórðu
iðnbyltingarinnar. Til að komast yfir þessar hindranir þarf samvinnu og
þátttöku allra, allt frá stjórnvöldum, einkageiranum og til almennings.
Hjúkrunarfræðingar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn þurfa að taka á
móti þessum breytingum með opnum örmum.