Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 25
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 25
og það verður mikil en spennandi glíma að
þróa heilbrigðiskerfið í þá átt að það verði
raunverulega sniðið að þörfum sjúklinga.
Sérhæfing, sérfræðiþekking og
teymisvinna
Breytingar á sjúklingahópnum og þjón-
ustu við sjúklinga gerir þær kröfur til
hjúkrunarfræðinga að þeir búi annars vegar
yfir færni til að sinna sjúklingum með mörg
heilsufarsvandamál og hins vegar getu til
að veita mikið veikum sjúklingum mjög
flókna hjúkrun hvort sem er í bráðafasa á
sjúkrahúsum eða í langtímameðferð sjúklinga
með langvinna sjúkdóma. Hvoru tveggja gerir
kröfur um sérhæfingu og sérfræðiþekkingu
í hjúkrun. Til að sinna fólki með flókin
heilsufarsvandamál verður áherslan á
teymisvinnu gríðarlega mikilvæg, þar sem
þekking, viðhorf og gildi hverrar fagstéttar
sameinast í því að veita bestu mögulega
þjónustu. Þar gildir að hver og ein fagstétt
vinni verkefni við hæfi, sjúklingunum til
hagsbóta. Hjúkrunarfræðingar eru og munu
verða lykilaðilar í slíkum meðferðarteymum
og í ljósi þekkingar sinnar og reynslu og
heildrænnar sýnar á skjólstæðinga sína oft
best til þess fallnir að stýra slíkum teymum og
samhæfa.
Tækniþróun og nýsköpun
Tækniþróun á eftir að styðja í síauknum
mæli við störf hjúkrunarfræðinga þannig að
störfin eiga eftir að taka miklum breytingum.
Nefna má tækifærin sem felast í bættri
upplýsingatækni, tækni sem styður við
fjarheilbrigðisþjónustu, hugbúnað sem styður
við klíníska ákvarðanatöku, vélmenni og aukna
sjálfvirkni í lyfjaferli og víðar, birgðastýringu,
hjálpar- og stuðningstæki í nærumhverfi
sjúklinga og svo mætti lengi telja. Mikilvægt
er að hjúkrunarfræðingar taki þátt í og stjórni
vinnu við þróun á þessari tækni svo hún taki
mið af þörfum sjúklinga og styðji við störf
hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar
þurfa einnig að taka virkan þátt í nýsköpun
í þjónustu við sjúklinga og leita sífellt nýrra
leiða til að endurbæta þjónustu sem fullnægir
þörfum sjúklinga, byggist á gagnreyndri
þekkingu, eykur gæði og nýtir á skynsamlegan
hátta þekkingu og tíma fagfólks. Mikil
tækifæri felast í áherslum nýrra kynslóða
sem fá það hlutverk að móta þessa framtíð.
Aldamótakynslóðin svokallaða er sögð leggja
áherslu á jafnvægi á milli vinnu og einkalífs,
hún er sveigjanleg, fagnar fjölbreytileika,
vill vinna störf sem skipta máli, kann að
vinna í teymum, býr yfir nýsköpunarhugsun,
vill mælanlegan árangur, er tæknivædd og
samfélagslega meðvituð. Þessir eiginleikar og
áherslur eru sérlega vel til þess fallin að takast á
við verkefnin sem við stöndum frammi fyrir.
1919
Stofnun Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna
„HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
GEGNA HÉR LYKILHLUTVERKI
ENDA HEFUR SJÚKLINGA-
FRÆÐSLA ALLA TÍÐ VERIÐ
MIKILVÆGUR HLUTI Í
HEILDRÆNNI NÁLGUN
HJÚKRUNAR“
Lokaorð
En hverjir eru þá mikilvægustu þættirnir
að huga að til framtíðar? Við þurfum
augljóslega að auka nýliðun og mennta
fleiri hjúkrunarfræðinga. Það hafa aðrar
þjóðir líka lagt áherslu á. Í dag er staðan
sú að við menntum ekki nægilega marga
hjúkrunarfræðinga til að taka við af þeim
sem eru að hefja töku lífeyris, hvað þá til að
bregðast við aukinni eftirspurn eftir þjónustu.
Við þurfum að byggja upp vinnuumhverfi sem
er heilsusamlegt og eflir hjúkrunarfræðinga
í sínum störfum. Þar þarf að líta bæði til
aðbúnaðar og kjara, vinnutíma og tækifæra
til að hafa áhrif. Þetta er forsenda þess að
við höldum hjúkrunarfræðingum í starfi
og stuðlum að því að þeir haldi heilsu og
starfsorku. Við þurfum að skilja betur og leggja
meiri áherslu á sjúklingamiðaða þjónustu
þar sem sjúklingar eru vel upplýstir og þeim
gert kleift að vera virkir þátttakendur í eigin
meðferð. Við þurfum að efla enn frekar
framhaldsnám og rannsóknir í hjúkrunarfræði,
fjölga sérfræðingum í hjúkrun og byggja á
þeim sterka grunni sem við höfum á Íslandi
í vel menntuðum mannafla í hjúkrun. Við
þurfum að þróa enn frekar notkun á árangurs-
og gæðamælikvörðum, hjúkrunarþyngd og
vinnuálagi. Við þurfum að efla nýsköpun og
tækniþróun og við þurfum líka að vera óhrædd
við að gera hlutina öðruvísi og jafnvel hætta að
gera suma hluti. Við verðum að vera gagnrýnin
á störf okkar og vega og meta hvað kemur
sjúklingum best. Við þurfum að bera virðingu
fyrir sjálfum okkur, fagþekkingu okkar og
framlagi.
Framtíð hjúkrunar er björt! Þörfin er mikil
og vaxandi og tækifærin óendanleg.