Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 27
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 27
Lyaver er brautryðjandi í tölvustýrðri
lyaskömmtun. Einfaldaðu líf þitt og
fáðu lyaskömmtun fyrir þau lyf sem
þú tekur að staðaldri.
Heimsending um land allt.
Lyaskömmtun
SUÐURLANDSBRAUT 22 + SÍMI 533 6100 + LYFJAVER.IS
OPIÐ MÁN–FÖS 8.30–18 LAU 10–14
LÆ
GR
A V
ERÐ
Í 20
ÁR
!
Hugað að jaðarhópum
Í framkvæmdaáætlun Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar um kynheilbrigði, sem
samþykkt var 2016 og nær til Evrópulanda
og þar með Íslands (WHO, 2016), er lögð
rík áhersla á að fólk eigi greiðan aðgang að
kynheilbrigðisþjónustu, sérstaklega ungt
fólk og fólk í jaðarhópum samfélagsins. Í
framhaldsskólum landsins munu þessar
breytingar gera þjónustuferlið varðandi
ráðgjöf um getnaðarvarnir mun skilvirkara.
Í stað þess að veita fræðslu og ráðgjöf um
getnaðarvarnir og verða síðan að vísa til
læknis til að fá ávísun á getnaðarvörn þá er
unnt að ljúka þjónustuferlinu. Dæmi eru
um að unglingsstúlkur, sem leitað hafa til
skólahjúkrunarfræðings, fresta því eða hafa sig
ekki í að panta tíma hjá heimilislækni til að fá
þá getnaðarvörn sem tekin var ákvörðun um
að nota.
Hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu þurfa
sérstaklega að huga að jaðarhópum í
samfélaginu sem iðulega skortir upplýsingar
um þjónustuna en þurfa á henni að
halda. Mikilvægt er að ná til þeirra með
fræðslu og ráðgjöf um getnaðarvarnir.
Hjúkrunarfræðingar geta jafnvel skipulagt
sérstaka móttöku á heilsugæslustöðvum fyrir
Heimildir
IPPF (International Planned Parenthood Federation)
(2008). Sexual rights: An IPPF declaration. London:
IPPF; https://www.ippf.org/resource/sexual-rights-ippf-
declaration.
Lög um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni
og lýðheilsu (lyfjaávísanir hjúkrunarfræðinga og
ljósmæðra) nr. 153/2018.
Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997.
WAS (World Association for Sexual Health) (2014).
Declaration of sexual rights; http://www.worldsexology.
org/resources/declaration-of-sexual-rights/.
WHO (World Health Organization) (2016). Action plan
for sexual and reproductive health. Kaupmannahöfn:
WHO Europe; http://www.euro.who.int/__data/assets/
pdf_file/0003/322275/Action-plan-sexual-reproductive-
health.pdf?ua=1.
WHO (World Health Organization) (2006, 2010).
Sexual and reproductive health. Sexual rights; https://
www.who.int/reproductivehealth/topics/sexual_health/
sh_definitions/en/.
þessa hópa. Jafnframt ætti að huga að því
úti á landi, þar sem aðgengi að læknum er
takmarkað, að hjúkrunarfræðingar geti boðið
þessa sérhæfðu þjónustu.
Takmarkaðar upplýsingar um getnaðarvarnir
og takmarkað aðgengi að þjónustunni getur
leitt til óráðgerðrar þungunar sem unnt hefði
verið að fyrirbyggja. Það er því til mikils
að vinna fyrir hjúkrunarfræðinga að bæta
þjónustu hér á landi að þessu leyti og vera í
góðri samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir,
svo sem lækna og lyfjafræðinga. Gera má ráð
fyrir því að þessi lagabreyting auki þekkingu
og færni hjúkrunarfræðinga sem líklegt má
telja að leiði til betri þjónustu á sérsviði
kynheilbrigðis. Fagleg fræðsla og ráðgjöf um
getnaðarvarnir stuðlar að staðfastari notkun
getnaðarvarna og þar með meðferðarheldni.
Með þarfir skjólstæðingsins í fyrirrúmi er
lögð áhersla á að hann fái fullkomnustu
þjónustu hverju sinni eins og lög um réttindi
sjúklinga kveða á um.
1923
Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna hefur samstarf við hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN)Fyrsti hjúkrunarnemi Félags íslenskra hjúkrunarkvenna hefur nám á Vífilsstöðum