Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 35
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 35 er sem hefur haft mest áhrif á mig og mótað mig sem stjórnanda þá er það námskeið um þjónandi forystu sem Sigrún Gunnarsdóttir kenndi þegar ég var í meistaranáminu í stjórnun. Þarna fann ég alveg samhljóminn, þetta var leiðin sem ég vildi fara og tileinka mér og hef reynt að hafa að leiðarljósi sem stjórnandi. Í mínum huga er þjónandi forysta ekki bara hugmyndafræði stjórnunar heldur finnst mér hún nátengd hugmyndafræði hjúkrunar. Á vefsíðunni thjonandiforysta.is er þessa lýsingu að finna: „Í stuttu máli má lýsa þjónandi forystu sem samspili þriggja meginstoða sem allar eru tengdar innbyrðis og mynda eina heild. 1) Fyrsta stoðin er einlægur áhugi á hugmyndum annarra sem birtist með einbeittri hlustun og aðgerðum sem efla aðra og aðstoða þá til að blómstra og að njóta sín. 2) Önnur stoðin er vitund og sjálfsþekking sem birtist í sjálfsöryggi, auðmýkt og hugrekki. 3) Þriðja stoðin er framsýni og skörp sýn á hugsjón sem birtist með sýn á tilgang og ábyrgðarskyldu.“ Virk hlustun og einlægur áhugi á skjólstæðingunum Fyrsta stoðin, eða virk hlustun og einlægur áhugi á skjólstæðingnum, er eitt af því fyrsta sem kennt er í hjúkrun og í raun má segja að sé rauður þráður í gegnum allt okkar nám. Virk hlustun er ekki bara að hlusta heldur að hafa einlægan áhuga á því sem fólk hefur að segja og hafa áhuga á að hjálpa. Í mínu starfi finnst mér þetta eitt það mikilvægasta. Í því flókna samfélagi sem við búum í er hver einstaklingur með mörg hlutverk og oft getur verið erfitt að samræma þau. Starfsmaðurinn er líka foreldri, umönnunaraðili aldraðs föður, tengiliður í fótboltanum, í bæjarstjórn, syngur í kór og svo framvegis. Það er því mikilvægt að hafa skilning á aðstæðum starfsfólksins og reyna að hjálpa því að samræma vinnuna við öll hin hlutverkin. Ég held að það sé alltaf að koma betur og betur í ljós að því betra jafnvægi sem er á milli vinnu og einkalífs, því minni líkur eru á að fólk brenni út. Þetta er stór þáttur í minni vinnu. Auðvitað þarf að manna allan sólarhringinn og vaktavinnan er erfið en yfirleitt er hægt að liðka til og koma til móts við mismunandi þarfir fólks. Þá er gott að nýta fjölbreytileikann – skólastrákurinn vill aðrar vaktir en sjómannskonan – og að lokum náum við að púsla öllum vöktum saman. Við sjáum líka miklar breytingar hvað varðar hugmyndir og sýn á vinnu, unga fólkið okkar er ekki eins bundið vinnunni og fyrri kynslóðir. Ef fólk er ekki ánægt í vinnu hikar það ekki við að breyta til, vinnan er sjaldnast númer eitt og fólk veit að lífið hefur upp á svo margt skemmtilegt að bjóða. Það er því mikilvægt að skilja fjölbreytileikann, finna út hvað hentar og reyna að mæta hverjum og einum á þeirra forsendum. Mikilvægt að geta treyst og vera treyst Önnur stoðin snýst í mínum huga um traust. Það er svo mikilvægt að geta treyst og vera treyst. Með árunum fer maður að þekkja sjálfan sig, takmarkanir og styrkleika. Það eflir sjálfstraustið en það er undirstaðan fyrir að geta treyst öðrum. Ég hef alltaf haft það að leiðarljósi að hafa verkefnisstjórana mína inni í öllum málum, þannig að ef ég dytti skyndilega út einn daginn væri allt starfhæft án mín. Þetta felst í að þora að útdeila verkefnum, hafa góða yfirsýn en vera ekki endilega með nefið ofan í öllu. Það er alla vega þannig sem ég reyni að hafa það. En það er ekki bara mikilvægt að geta treyst starfsfólkinu sínu, mér finnst ómetanlegt að finna að yfirmenn mínir treysti mér. Ég hef alltaf verið mjög þakklát fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér og í raun gefið mér nokkuð lausan taum þegar kemur að stjórnun á hjúkrunarheimilunum Bergi og Eyri. Móttaka nýrra starfsmanna skiptir höfuðmáli fyrir framhaldið Þriðja stoðin fjallar meðal annars um tilgang og ábyrgðarskyldu. Þegar einstaklingur velur sér starf á hjúkrunarheimili tekur hann mikla ábyrgð á sig. Okkar megintilgangur, ábyrgð og aðalstarf er að sjá til þess að hinum aldraða líði eins vel og hugsast getur á heimilinu. Þegar nýtt starfsfólk kemur á Berg eða Eyri fær það góða aðlögun og fer í gegnum nýliðafræðslu. Ég tel að móttaka nýrra starfsmanna skipti höfuðmáli fyrir framhaldið. Á þessum nýliðanámskeiðum tala ég mikið um ábyrgð, virðingu, trúnað og samskipti sem grunninn að góðu samstarfi bæði við heimilismenn og aðra starfsmenn. Með þetta að leiðarljósi reyni ég að gera mitt besta. Mörg mistök hef ég gert og mun gera, en viljinn til að læra af mistökunum og gera betur er svo sannarlega til staðar. „Í MÍNUM HUGA ER ÞJÓNANDI FORYSTA EKKI BARA HUGMYNDAFRÆÐI STJÓRNUNAR HELDUR FINNST MÉR HÚN NÁTENGD HUGMYNDAFRÆÐI HJÚKRUNAR“ 1931 Landspítalinn tekur til starfa Hjúkrunarskóli Íslands stofnaður Hjólað óháð aldri.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.