Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 38
38 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Fljótlega eftir að ég hóf nám í
hjúkrunarfræði tók ég að velta
fyrir mér hugtakinu hjúkrun. Þær
vangaveltur fylgdu mér í gegnum
námið og eru mér enn ofarlega í huga
tæpum tuttugu árum síðar. Í mínum
huga er hugtakið margþætt og erfitt
að festa á því eina skilgreiningu.
Þannig hefur inntak þess dýpkað
og tekið á sig nýjar myndir eftir
því sem ég hef komið víðar við á
starfsferlinum.
Snemma varð hjúkrunarfræði meira en bara
nám og starf fyrir mér heldur líka hvorutveggja
áhugamál og lífssýn. Ein af meginástæðum
þess að ég ákvað að læra hjúkrunarfræði
voru endalausir möguleikar námsins. Hvort
heldur sem mig langaði að ferðast til framandi
landa og sinna þar þróunarhjálp eða starfa
sem sjómaður við Íslandsstrendur þá sá ég
að hjúkrunarfræðinámið fangaði flestalla
þætti mannlegrar tilveru. Enda er oft sagt að
hugmyndafræðin um heildræna nálgun sé
hornsteinn hjúkrunar og hún gjarnan notuð til
að lýsa sérstöðu greinarinnar. En með tilkomu
aukinnar sérhæfingar í hjúkrun á hugtakið að
mínu mati undir högg að sækja.
Fagleg tilvistarkreppa í hjúkrun
– gjá á milli klínískrar reynslu og
fræðanna
Eftir því sem leið á nám mitt og klínísk
reynsla jókst skynjaði ég gjá á milli þess sem
kennt var í fyrirlestrum og þess sem átti sér
svo stað við klínískar aðstæður. Stundum
var til staðar það sem kalla mætti eins konar
skilningsleysi milli hjúkrunarfræðinga á
klínískum vettvangi og þeirra sem kenndu
fræðilegan hluta greinarinnar. Þegar bent
var á þess konar misræmi var oft fátt um
svör sem hjálpuðu til við að brúa bilið milli
fræðanna og raunveruleikans. Tenginguna
og samtalið vantaði, og hin heildræna nálgun
varð að einhverju leyti óljós. Þetta birtist
m.a. í því að í verknáminu átti ég samtal við
hjúkrunarfræðinga sem mér fannst að væru
að sinna hjúkrun á allt öðrum forsendum
og höfðu aðrar hugmyndir um hjúkrun og
tilgang sinn sem hjúkrunarfræðingar en þær
hugmyndir sem ég var með og hafði verið
kennt.
Margt af því sem ég heyrði á klínískum
vettvangi hafði neikvæð áhrif á mig og fékk
mig til þess að efast um hjúkrun sem sjálfstæða
fagstétt. Mér datt í hug að hjúkrunarfræðingar
væru kannski fyrst og fremst aðstoðarmenn
lækna, verkfæraverðir á skurðstofum, sætavísur
á bráðamóttöku og jafnvel ritarar í svæfingu.
Þessi tilvistarkreppa hafði þau áhrif á mig að ég
hugleiddi að hætta í náminu í nokkur skipti.
Með þessum hugleiðingum er ég ekki að fella
áfellisdóm yfir námi í hjúkrunarfræði, hvorki
klínísku né fræðilegu, því ég sat marga frábæra
tíma þar sem hugmyndafræði hjúkrunar
var vel kynnt og rædd frá ýmsum hliðum.
En í grunninn náði ég ekki að tileinka mér
kenningarnar og setja þær í samhengi við
klínískan raunveruleika. Seinna meir, eftir að
hafa rætt við marga samstarfsfélaga og fjölda
nemenda, veit ég að fagleg tilvistarkreppa í
hjúkrun er algengari en við höldum, og í þessu
samhengi hefur fagstéttin verk að vinna.
Hjúkrun á köflum ósýnileg og
óáþreifanleg
Við hjúkrunarfræðingar höldum því gjarnan á
lofti okkar í milli hvað störf okkar skipta miklu
máli. Ég er ekki viss um að almenningur og
stundum samstarfsstéttir hjúkrunarfræðinga
hafi í raun og veru skilning á því hvað hjúkrun
skipti miklu máli, hvað þá að koma auga á
mikilvægt framlag hjúkrunar. Hjúkrun er því
miður á köflum ósýnileg, óáþreifanleg og í
mörgum tilvikum er ávinningur hjúkrunar afar
dulinn og það leiðir stundum til þess að aðrar
heilbrigðisstéttir fá gjarnan hrósið þegar vel
gengur með sjúklinginn.
Hjúkrunarfræðingar koma víða við sögu
í heilbrigðiskerfinu. Til að mynda leggst
varla sjúklingur inn á sjúkradeild án þess að
hjúkrunarfræðingur hafi með viðkomandi
að gera. Lokanir á leguplássum sjúkrahúsa
undirstrika þetta. Því er afar áhugavert að sjá
þegar yfirlæknar eru í forsvari fyrir umræðu
um skort á hjúkrunarfræðingum – því heyrast
viðhorf okkar ekki meira í því samhengi?
Þá hafa hjúkrunarfræðingar um árabil verið
í forystu fyrir og haldið uppi þverfaglegri
starfs- og símenntun heilbrigðisstarfsfólks,
s.s. endurlífgun og herminámi svo eitthvað sé
Skýr rödd –
virkir þátttakendur
Þorsteinn Jónsson
sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala
19371935
Samningsréttur Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna viðurkenndur Nafni tímaritsins breytt í Hjúkrunarkvennablaðið
1935