Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 39
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 39
Samningsréttur Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna viðurkenndur
nefnt. En til hverra er oft leitað þegar starfs-
og símenntun heilbrigðisstarfsfólks er til
umfjöllunar?
Inn í þetta fléttast að almenningur og stundum
við sjálf – hjúkrunarfræðingar – vanmetum
oft og tíðum veitta heilbrigðisþjónustu
hjúkrunarfræðinga. Heilbrigðiskerfið er byggt
upp á læknisfræðilegum forsendum og litast
mjög af þeim viðhorfum, það er að segja ef
sjúklingur glímir við lungnavandamál leggst
hann inn á lungnadeild og svo framvegis.
Þannig er hjúkrunarfræði stundum ruglað
saman við læknisfræði enda fremur auðvelt að
skilja hugtakið „lækning“.
„Læknirinn læknar mig en hjúkrunar-
fræðingurinn sér til þess að ég lifi af og
komist á fætur“
Á mínu fræðasviði, sem er bráða- og
gjörgæsluhjúkrun, er oft erfitt að útskýra hvort
verið sé að stunda lækningar eða hjúkrun
þegar verið er að sinna bráð- og alvarlega
veikum sjúklingum. Ég hjúkraði eitt sinn
gömlum manni og heyrði á tal hans við eitt
barnabarn sitt þar sem sá ungi spurði afa sinn
út í muninn á lækni og hjúkrunarfræðingi.
Mér er minnisstætt hvernig afinn svaraði: „Jú,
sjáðu til, læknirinn læknar mig en hjúkrunar-
fræðingurinn sér til þess að ég lifi af og komist
á fætur.“
Allt of oft er öðrum heilbrigðisstéttum hrósað
fyrir vel útfærða hjúkrun eins og áður segir.
Að hluta til er það okkur hjúkrunarfræðingum
sjálfum að kenna því oft hef ég heyrt
hjúkrunarfræðinga tala um að þeir hafi „læknað
sjúklinginn“ þegar vel gengur að hjúkra
bráðveikum sjúklingi. Orðræða skiptir máli
og hefur áhrif. Hjúkrunarfræðingar stunda
ekki lækningar – við hjúkrum. Engu að síður
leiðir góð hjúkrun oft til þess að sjúklingum
batnar, en það er ekki það sama og að
hjúkrunarfræðingar séu að stunda lækningar.
Ég vil ekki hallmæla samstarfsstéttum
hjúkrunar en líklega væri auðvelt að reka
fjölþætta sjúkrastofnun eingöngu með
hjúkrunarfræðingum, en það sama er erfitt að
ímynda sér um aðrar heilbrigðisstéttir.
Mikilvægt að efla ímynd
hjúkrunarfræði hjá okkur sjálfum
Hvernig birtist hjúkrun okkur inn á við og út
á við? Er hjúkrun mjúk, hljóðlát og falleg –
jafnvel eins og lítið blóm úti í haga, samanber
merki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga? Á
undanförnum árum hafa hjúkrunarfræðingar
farið í fjölmörg átaksverkefni, hérlendis sem og
erlendis, með það að markmiði að efla ímynd
hjúkrunar út á við. Eitthvað minna hefur farið
fyrir umræðu inn á við í þessu samhengi.
Meginforsenda þess að almenningur skilji
hjúkrun og viti út á hvað hún gengur er að við
sjálf höfum af því skýra mynd.
Við hjúkrunarfræðingar þurfum að vera
duglegri við að vera sýnileg í samfélaginu,
hafa skoðun á hlutum sem tengjast heilsu og
veikindum, láta í okkur heyra um uppbyggingu
heilbrigðiskerfisins, starfsumhverfi og margt
fleira. Samhliða því verðum við einnig að
huga vel að innviðum fagsins, vera framsækin
og uppbyggileg en um leið gagnrýnin í garð
fagsins. Hjúkrunarfræðingar þurfa að halda
á lofti mikilvægi hjúkrunar í víðu samhengi
og eigna sér þá þætti sem þeir eiga. Hjúkrun
er án efa mikilvægasti hlekkurinn í allri
heilbrigðisþjónustu.
Verum öflug í að ræða hjúkrun – höfum
skýra innri rödd og verum virkir
þátttakendur í uppbyggingu og þróun
heilbrigðiskerfisins – því hjúkrun skiptir
máli.
Sannkölluð
vin í miðbæ Reykjavíkur
Það eru um 160 starfsmenn starfandi
á heimilinu, mikið er lagt upp úr
skemmtilegu og notalegu umhver
bæði fyrir starfsfólk og íbúa.
Íbúar eru 81, allir íbúar hafa sitt
eigið herbergi með baði.
Þar búa líka skar og páfagaukar
auk þess sem hundar koma
reglulega í heimsókn.
Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hárgreiðsla,
fótaaðgerða og snyrtistofa, garðskáli,
öugt félagsstarf, eldhús þar sem allur
matur er eldaður fyrir heimilismenn og
þvottahús sem sér um föt íbúa
og starfsmannafatnað. Hjúkrunarheimili, Snorrabraut 58, 105 Reykjavík, Sími 414 9500
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
auglysing_A51_19.pdf 1 06/05/2019 11:09:05
„TIL AÐ MYNDA LEGGST
VARLA SJÚKLINGUR
INN Á SJÚKRADEILD
ÁN ÞESS AÐ
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
HAFI MEÐ VIÐKOMANDI
AÐ GERA“