Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 42
42 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Orðabækur skilgreina hjúkrun sem starf eða iðju við að
hlúa að sjúkum, særðum og hrumum. Þegar ég var að
klára framhaldsskóla árið 1992 þá var vinsælt að fara í
hjúkrunarfræði.
Þótt það sé dýrt á Filippseyjum þá voru margir skráðir í námið.
Foreldrar mínir sáu um að greiða allan kostnað eins og venjan er þar.
Í fyrstu sá ég ekki sjálfa mig verða hjúkrunarfræðing. Það má líka sjá á
einkunnabókum mínum fyrsta hálfa annað árið að ég var með mótþróa
gagnvart náminu. Afstaða mín breyttist þó mikið þegar við nemarnir
fórum inn á sjúkrahús. Þar varð ég vitni að samstilltu átaki bæði lækna
og hjúkrunarfræðinga við að bjarga mannslífum. Það að sjá drifkraft
hjúkrunarfræðinga við störf sín breytti minni sýn. Ég útskrifaðist sem
hjúkrunarfræðingur tvítug og fékk fyrsta starfið mitt fljótlega eftir það.
Ég þakka móður minni fyrir mikla hvatningu og einnig þakka ég systur
minni fyrir hennar þátt en án hennar væri ég á öðrum stað í dag.
Starfið var við lítinn spítala og vegna skipulagsins þar fékk ég að
prófa mjög mismunandi svið hjúkrunar. Fyrir utan að stunda almenn
hjúkrunarstörf tók ég líka á móti börnum og hugsaði um nýfædd börn,
en einnig tók ég þátt í bæði litlum og stórum aðgerðum. Þetta gaf mér
fjölbreytta reynslu. Það er lagaleg skylda að taka þátt í námskeiðum og
þjálfun bæði til að viðhalda þekkingu og til að safna tímum fyrir næstu
endurnýjun á hjúkrunarleyfinu, enda er stranglega bannað að stunda
hjúkrun án leyfis.
Lífið er fullt af litlum sigrum
Tækifærið að stunda hjúkrun á Íslandi var lagt að fótum mér því systir
mín var þá þegar komin til landsins og bauð mér hingað í desember
2001. Ég hóf vinnu við öldrunar- og endurhæfingardeild fyrir
lungnaveika. Tengiliður spítalans fyrir útlendinga fylgdi mér á deildina
fyrsta daginn. Starfsfólk tók vel á móti mér frá fyrsta degi og mér fannst
ég vera velkomin. Í byrjun fólst starfið í umönnun við sjúklinga, eins og
að búa um rúm, klæða og mata sjúklinginn, fylgja á salerni, aðstoða hann
við að þvo sér og baða. Ekkert af þessu hafði ég gert áður í fyrra starfi því
þar er það mun meiri skylda aðstandenda að sjá um sína nánustu sem
eru veikir en hér. En þessi vinna veitti mér mikla gleði og ég minnist þess
sérstaklega þegar ég þurfti að hjálpa hundrað ára gamalli konu að klæða
sig í korselett og sokka með sokkaböndum og flétta gráa hárið hennar.
Það tók óratíma að klæða hana en tókst að lokum – lífið er þannig
fullt af litlum sigrum hér og þar. Vorið 2012 var ég ráðin á hjartadeild
Landspítala og hef verið þar síðan. Starfið þar er mjög krefjandi og
gefandi.
Heillaðist af tungumálinu
Þótt okkur langi mikið að ná góðum tengslum við fólk í kringum mann
þá gerist það ekki nema með því að læra tungumálið vel. Ég átti ekki í
miklum vandræðum að læra enda lagði ég mig heilshugar fram og var
heilluð af tungumálinu. Einnig hjálpaði mikið að eldra fólkið, sem lá á
deildinni, gaf sér tíma til að tala við nýbúann. Eftir sex mánuði hafði ég
náð nógu góðum tökum á tungunni til að geta hafið hjúkrunarstörf. Ég
varð ekki vör við mikla fordóma, en í þau fáu skipti sem það gerðist fékk
ég aðstoð frá samstarfsfélögum mínum og slíkt varð aldrei vandamál.
Það að fá klapp á bakið frá sjúklingi, aðstandanda eða samstarfsfólki var
mikill sigur.
Því miður ríkti misskilningur á hjúkrunarstarfinu á Filippseyjum og
hann hafði náð fótfestu í samfélaginu. Starf hjúkrunarfræðings var
takmarkað og fólst aðallega í að framfylgja skipunum læknis, fylgja
fyrirframsettum ferlum, gefa lyf, skrifa niður framvindu og gefa
leiðbeiningar fyrir útskrift. Þessu fylgdi sú tilfinning að starfsfólk hittist
ekki á jafnréttisgrundvelli.
Að vera
hjúkrunarfræðingur
á Íslandi
Coleen A. Lastimosa
hjúkrunarfræðingur á Landspítala
ÖRYGGI - SAMVINNA - FRAMSÆKNI
Sjúkrahúsið á Akureyri sendir Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
heillaóskir í tilefni 100 ára afmælis og á sama tíma þakkir fyrir gott
og gjöfult samstarf á liðnum árum og til framtíðar.
1942
Innganga hjúkrunarfræðinga í BSRB
1940
„ÞÓTT OKKUR LANGI MIKIÐ AÐ NÁ GÓÐUM
TENGSLUM VIÐ FÓLK Í KRINGUM MANN ÞÁ
GERIST ÞAÐ EKKI NEMA MEÐ ÞVÍ AÐ LÆRA
TUNGUMÁLIÐ VEL. ÉG ÁTTI EKKI Í MIKLUM
VANDRÆÐUM AÐ LÆRA ENDA LAGÐI ÉG MIG
HEILSHUGAR FRAM OG VAR HEILLUÐ AF
TUNGUMÁLINU.“