Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 51
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 51
2012 þar sem ég starfaði. Þar opnuðum við
hjónin inn á stofurnar níu en maðurinn
minn, Hilmar Örn Agnarsson, spilaði á píanó
frammi á gangi. Tveir sjúklingar sátu hjá okkur
en hinir voru í rúmum sínum á stofunum.
Ég söng frammi á gangi en gekk líka á milli
stofanna. Þarna gerðist eitthvað – þessi
einfalda tónlistarstund breyttist í stórkostlega
helgistund þar sem allir voru snortnir,
jafnt flytjendur sem áheyrendur. Þetta eru
í minningunni einir okkar dýrmæstustu
tónleikar.
Sömuleiðis hefur verið dýrmætt að halda
tónleika inni á deildum, eins og hjartadeildinni
og hinum ýmsu deildum Landakots, og við
Kór hjúkrunarfræðinga söng undir stjórn Bjargar Þórhallsdóttur við opnunarhátíð afmælisárs félagsins 15. janúar 2019 á Hótel Nordica.
Björg syngur Dagnýju eftir Tómas Guðmundsson og Sigfús Halldórsson.
helgistundir prestanna því tónlistin er eitt það
besta sem hægt er að gefa fólki sem ekki líður
vel. Hún lyftir andanum, sjúklingarnir frá hvíld
frá sjálfum sér, vandamálum og verkjum og
hún linar kvíða og depurð. Maður hefur fengið
að heyra setningar eins og: „Ég get nú bara
sleppt hjartalyfjunum mínum í dag,“ eftir slíkar
stundir og heyrt gamla fólkið raula lögin inni á
stofunum það sem eftir lifir dags.
Það hefur því verið mér afar dýrmætt að fá
tækifæri til að tengja saman þessa tvo þætti í
lífi mínu. Segja má að hjúkrunarfræðingurinn
gefi söngkonunni dýpri skilning á því hvar
áheyrendur eru staddir í sínu lífi og hverjar
þarfir þeirra eru og mér er mikilvægt að fá
að mæta fólki þar. Þar gefur tónlistin ákveðin
forréttindi, hún gefur leyfi til að snerta sálir
annarra.
Persónulega fara því þessir tveir þættir í lífi
mínu mjög mjúklega saman og hafa gefið
mér mikla lífsfyllingu og dýpkað mig sem
manneskju. Ég óska þess að framtíðin færi
mér enn meira rými innan starfs míns sem
hjúkrunarfræðingur til að syngja fyrir og með
sjúklingunum.
Kór hjúkrunarfræðinga
Í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga veittist mér óvænt ánægja
er ég var beðin að stofna kór hjúkrunar-
fræðinga til að koma fram á opnunarhátíðinni
15. janúar. Þar komu fram og sungu tæplega
sjötíu einbeittir og glaðir hjúkrunarfræðingar
og slógu eftirminnilega í gegn. Það var frábær
upplifun. Og kórinn er rétt að byrja því
næst kemur hann fram í messu tileinkaðri
hjúkrunarfræðingum í Grafarvogskirkju 12.
maí.
Það var ekki síður stór stund fyrir mig á þessari
stórkostlegu hátíð að syngja fyrir framan 900
hjúkrunarfræðinga sem tóku undir með mér og
finna þar fyrir samkenndinni og kærleikanum
innan stéttarinnar.
Nú þegar farfuglarnir eru að koma syngjandi
glaðir og vorið og sólin yljar okkur, hvetur
það okkur til að fara syngjandi inn í
sumarið á 100 ára afmælinu minnug þess
að söngurinn er heillandi og nærandi fyrir
líkama og sál – og ALLIR geta sungið!