Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 52
52 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Það getur vakið upp ýmis viðbrögð
þegar ég segi frá vinnustað mínum og
fólk kemst að því að ég keyri stundum
um á bíl, með sjálfboðaliðum, og gefi
fólki sem notar vímuefni í æð hreinar
sprautur og nálar. Í fyrstu gæti fólk
haldið að ég sé meðvirk, að ég sé
jafnvel að stuðla að notkun vímuefna
eða þá að koma mér í hættulega
stöðu. Allar þessar hugsanir geta
verið eðlilegar hjá þeim sem ekki
hafa fræðst nægilega um vímuefni,
vímuefnavanda eða skaðaminnkun.
Án þess að fræðast höfum við ekki
fullnægjandi upplýsingar til þess
að meta aðstæður og það getur
jafnvel stuðlað að fordómum. Þess
vegna langar mig að segja betur
frá skaðaminnkun, hjúkrun fyrir
jaðarsetta hópa og verkefninu sem ég
vinn hjá sem hjúkrunarfræðingur, Frú
Ragnheiður – skaðaminnkun.
Frú Ragnheiður
Árið 2009 var sjálfboðaliðaverkefnið Frú
Ragnheiður sett á fót hjá Reykjavíkurdeild
Rauða krossins. Verkefnið miðar að því að ná
til jaðarsettra einstaklinga í samfélaginu þar
sem nálum og sprautum er dreift til þeirra
sem nota vímuefni í æð. Verkefnið styðst við
skaðaminnkandi hugmyndafræði sem miðar
að því að draga úr skaða sem hlotist getur
af hvers kyns notkun vímuefna. Með því að
beita skaðaminnkun viðurkenna þátttakendur
áhættuhegðun, að það sé óhjákvæmilegt að
einstaklingar í hverju samfélagi fyrir sig stundi
einhverja áhættuhegðun og að skaðinn sem
hlýst af henni sé töluverður. Áhættuhegðunin
sem við einblínum á snýst fyrst og fremst
um notkun vímuefna með sprautubúnaði,
í því að sprautubúnaður sé notaður oft eða
að hann sé samnýttur með öðrum, en einnig
felst þessi hegðun í áhættusömu kynlífi.
Slík hegðun getur verið mjög afdrifarík fyrir
heilsu hins sjúka, fjölskyldu hans og haft
áhrif á samfélagið. Skaðaminnkandi úrræði
eru sömuleiðis notuð í forvörnum gegn
smitsjúkdómum þar sem leitast er við að draga
úr áhættunni og koma í veg fyrir smit milli
einstaklinga.
Stærsti hluti sjálfboðaliðanna, sem standa
vaktina, eru hjúkrunarfræðingar. Þjónustan
fer fram í sérinnréttuðum bíl sem ekur um
höfuðborgarsvæðið sex kvöld vikunnar, og
þrír sjálfboðaliðar eru á hverri vakt ásamt
einum lækni á bakvakt. Nálaskiptaþjónusta
er stærsti hluti þjónustunnar þar sem tekið
er við notuðum sprautubúnaði í nálaboxum
og honum fargað á öruggan hátt ásamt því
að skjólstæðingar geta sótt til okkar hreinan
búnað, nálabox og fengið skaðaminnkandi
leiðbeiningar. Árið 2018 leituðu um 450
einstaklingar til Frú Ragnheiðar og voru
heimsóknir um 3.600 talsins. Af þeim voru
1.900 komur í nálaskiptiþjónustuna og um
1.270 komur voru fyrir hlý föt, svefnpoka,
mat og/eða sálrænan stuðning og ráðgjöf.
Starfsmenn verkefnisins förguðu um 2.800
lítrum af notuðum sprautubúnaði árið 2018.
Sýklalyfjameðferð í samstarfi við
lækna
Að undanförnu hefur heilbrigðisþjónustan
vaxið talsvert í verkefninu en í bílnum er meðal
annars hugað að sárum, umbúðaskiptum,
saumatöku, blóðþrýstingsmælingum og
hægt að fá almenna heilsufarsráðgjöf og
skoðun, þar með talið fræðslu um HIV- og
lifrarbólgusmitleiðir. Frú Ragnheiður hefur
tekið þátt í C-lifrarbólguverkefninu síðustu
ár og aðstoðað skjólstæðinga við að komast
í meðferðina, boðið hraðpróf og haldið utan
um lyfjagjafir. Á síðasta ári var jafnframt tekin
upp þjónusta þar sem sýklalyfjum er ávísað
Hjúkrun jaðarsettra
einstaklinga
Elísabet Brynjarsdóttir
hjúkrunarfræðingur hjá Rauða krossinum
Sjálfboðaliðar Frú Ragnheiðar og aðstaðan í bílnum.