Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 53
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 53
til skjólstæðinga við sýkingum, í samstarfi
við þá lækna sem eru á bakvakt í verkefninu,
og þannig er hægt að grípa fyrr inn í og
koma jafnvel í veg fyrir innlagnir á spítala. Á
aðeins átta mánuðum, frá því að við hófum
sýklalyfjameðferð, höfum við aðstoðað 40
einstaklinga við að fá sýklalyf og höfum fylgt
öllum fyrirmælum um sýklalyfjameðferð
eftir með skráðum endurkomum. Af þessum
40 einstaklingum kláruðu 37 einstaklingar
meðferð hjá okkur án innlagnar á spítala. Alls
voru skráðar 219 komur í bílinn á tímabilinu
sem voru vegna sýkingar eða sárameðferðar.
Í tengslum við umræðu um skaðaminnkun
er mikilvægt fyrir okkur sem fagaðila að
viðurkenna að jaðarsettir hópar samfélagsins
mæta fjölmörgum hindrunum þegar þeir
sækja sér heilbrigðisþjónustu. Undirliggjandi
fordómar og fyrirframákveðnar hugmyndir
um erindagjörðir þeirra er meðal þess sem
skjólstæðingar Frú Ragnheiðar hafa margoft
upplifað. Iðulega neita þeir einfaldlega að leita
sér heilbrigðisþjónustu fyrr en vandinn er
orðinn grafalvarlegur og krefst ef til vill langrar
innlagnar.
Þess vegna eru verkefni á borð við Frú
Ragnheiði mikilvæg til þess að styðja við
heilbrigðiskerfið og fjölbreyttar þarfir
jaðarsettra hópa. Skjólstæðingum er mætt á
þeim stað sem þeir eru í hvert sinn, líkamlega
og andlega. Þjónustan, sem flokkast sem
nærþjónusta, felst í því að þeir sem veita
þjónustuna leita uppi einstaklingana. Þannig
nálgumst við þá í því umhverfi sem er
aðgengilegast fyrir þá og þjónustan er sótt á
þeirra forsendum. Komið er fram við notendur
af virðingu og fordómaleysi og með skilning
gagnvart þörfum þeirra að leiðarljósi. Með
því að veita jaðarsettum hópum þjónustu
í þeirra umhverfi eykst aðgengi þeirra að
ráðgjöf, fræðslu og skaðaminnkandi aðgerðum.
Jafnframt er ávallt heilbrigðisstarfsmaður
á vakt í bílnum sem getur sinnt
grunnheilbrigðisþjónustu á borð við það sem
talið var upp hér að ofan.
Allir eiga rétt á heilbrigðisþjónustu
Á síðustu árum hefur verkefnið vaxið talsvert
að umfangi. Samstarf hefur verið aukið
við önnur úrræði sem standa jaðarsettum
einstaklingum til boða og heilbrigðisþjónustan
hefur sífellt aukist í bílnum. Nýlega var
undirrituð ráðin sem hjúkrunarfræðingur í
verkefnið. Hlutverk mitt er meðal annars að
hafa yfirsýn yfir alla þá heilbrigðisþjónustu
sem er veitt í verkefninu, ásamt því að
sinna málsvarastarfi fyrir jaðarsetta hópa í
samfélaginu. Í dag erum við því tvær sem
störfum í verkefninu og getum við þannig
sinnt málefnum á milli vakta og fylgt þeim eftir
og komið í réttan farveg. Í mörgum tilfellum
snýst þetta um að koma skjólstæðingum í rétt
meðferðarúrræði, í samband við réttan lækni
eða félagslega þjónustu.
Þó að verkefni á borð við Frú Ragnheiði
sé mikilvægt og góð viðbót getum við öll
tileinkað okkur hugmyndafræðina sem liggur
að baki skaðaminnkun, sama hvar við störfum.
Allir eiga rétt á heilbrigðisþjónustu og það
er hlutverk okkar hjúkrunarfræðinga að vera
málsvarar skjólstæðinga, sérstaklega þegar
takmarkað er hlustað á þeirra viðhorf. Það er
því viðeigandi að enda þennan pistil á vísun í
siðareglur hjúkrunarfræðinga:
„Hjúkrunarfræðingur er málsvari
skjólstæðings og stendur vörð um reisn
hans og rétt og stuðlar að því að komið
sé fram af virðingu og heiðarleika.
Hjúkrunarfræðingur stendur vörð um
sjálfsákvörðunarrétt skjólstæðings og rétt til
bestu mögulegrar þjónustu á hverjum tíma.“
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, einn af frumkvöðlum að stofnun Frú Ragnheiðar, við bílinn góða.
Sjálfboðaliðar Frú Ragnheiðar og aðstaðan í bílnum.