Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 55
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 55
Mynd 1.
Samræður
Fræðilegur hugtakarammi um samráð við langveika lungnasjúklinga og fjölskyldur þeirra.
og síðan er streitulítil leit að lausnum. Þessi
viðleitni stendur oft um árabil og njóta flestir
skjólstæðingar reglulegrar þjónustu ævina á
enda. Aðrir fá aðstoð þegar þeir óska þess, allt
eftir þörfum og aðstæðum.
Mat á heilsutengdum lífsgæðum er
lykilhugtak
Rannsóknir á árangri hjúkrunarþjónustunnar
hafa sýnt að vel hefur tekist til. Mat á heilsu-
tengdum lífsgæðum hefur verið lykilhugtak.
Niðurstöður sýndu að heilsutengd lífsgæði
sjúklinganna bötnuðu mikið eftir að þeir
höfðu þegið þjónustuna í eitt ár. Innlögnum á
sjúkrahús og komum á bráðamótttöku fækkaði
verulega. Eigindleg viðtöl við þátttakendur –
sjúklinga og fjölskyldur þeirra – sýndu ekki
síður jákvæðar niðurstöður. Má þar m.a. nefna
aukna öryggiskennd, aukna vitund um eigið
heilsufar, að þekkja einkenni um versnandi
ástand, aukna samstöðu fjölskyldunnar og
vissu um að geta ráðið við versnun og aðrar
uppákomur tengdar sjúkdómnum. Allt voru
þetta mikilvægar niðurstöður sem tryggðu
starfseminni brautargengi; starfsemi sem ekki
einungis er í stöðugri þróun heldur stækkar
umfang hennar sífellt. Framhaldsrannsóknir
á starfseminni hafa verið með ýmsum
hætti og nú stendur m.a. yfir umfangsmikil
meðferðarrannsókn á árangri hjúkrunarinnar.
Mikilvægi heildrænnar sýnar á lífsgæði
vanmetin
Heilsa og velferð fólks með langvinna
lungnateppu á byrjunarstigi er mjög aðkallandi
viðfangsefni. Þrátt fyrir að reykingar séu
minnkandi vandamál á Íslandi eru enn
margir sem glíma við reykingar og afleiðingar
þeirra. Langvinn lungnateppa er lúmskur
sjúkdómur; hann læðist aftan að fólki og það
áttar sig oft ekki á honum fyrr en hann er
langt genginn. Með heildræna sýn á lífsgæði
Þátttaka fjölskyldu
Aðgangur að
heilbrigðisþjónustu
Líf með einkennum Heilbrigði
má skipuleggja heilbrigðisþjónustu byggða á
samvinnu hjúkrunarfræðinga við sjúklinga og
fjölskyldur sem fullnægir þörfum sjúklinganna.
Slík þjónusta krefst sérfræðiþekkingar en í
víðu samhengi hefur hún hlotið undarlega
litla athygli bæði á innlendum og erlendum
vettvangi. Samráð til eflingar heilbrigðis
hjá fólki með lungnateppu á upphafsstigi
og fjölskyldum þeirra er þverfræðilegt
rannsóknarverkefni sem lauk fyrir nokkrum
árum. Þar kom m.a. fram hversu flókið það
er að horfast í augu við jafn erfiðan sjúkdóm
og langvinn lungnateppa er, sérstaklega
á byrjunarstigi. Niðurstöðurnar styrktu
hugmyndir rannsakenda um takmarkanir
þeirrar áherslu sem lögð hefur verið á að
einstaklingar með þennan sjúkdóm og reyndar
ýmsa aðra langvinna sjúkdóma geti bjargað
sér meira og minna sjálfir að lokinni fræðslu
um hvernig framfylgja eigi lyfjameðferð,
fylgjast með einkennum, borða rétt, hreyfa
sig, hætta að reykja, halda streitu í lágmarki
og slíkt. Fólk með eins flókinn og erfiðan
sjúkdóm og langvinn lungnateppa er þarfnast
einstaklings- og fjölskyldumiðaðrar þjónustu
til æviloka. Það að uppfylla þarfir fólks þar
sem það er statt og vinna með því að styrkja
lífsgæði með öllum mögulegum úrræðum
er mikilvægur leiðarvísir. Að vera stöðugt á
varðbergi um að gera ekki „of mikið“ fyrir þá
langveiku; þeir eigi að geta bjargað sér um
flest – vera sjálfbjarga – er ekki fullnægjandi
aðferð í svo miklum veikindum sem um ræðir.
Flestir vilja bjarga sér sjálfir og vera ekki upp
á aðra komnir. Þegar svo er komið að það er
ekki mögulegt eigum við að leggja okkur fram
um að hlúa að reisn einstaklingsins og aðstoða
hann við að lifa merkingarbæru og ánægjulegu
lífi eins og framast er kostur.
Viðleitnin er linnulítil; hún kallar á mikla
þekkingu, reynslu, frumleika, natni, næmni
og áræðni og er umfram allt einstaklega
gefandi.
Fyrsti áfangi nýs húsnæðis Hjúkrunarkvennaskóla Íslands á Landspítalalóð, nú Eirberg, tekið í notkun