Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 56
56 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Pálína Ásgeirsdóttir hjúkrunar- fræðingur hefur um árabil verið í alþjóðlegu hjálparstarfi og hefur um árabil búið í Genf vegna vinnu sinnar hjá heilbrigðisdeild alþjóðaráðs Rauða krossins og unað hag sínum vel. „Starf mitt felst í að senda fólk út á staði þar sem við erum með aðgerðir. Titillinn er „talent manager,“ segir Pálína. Við vinnum saman í átta manna teymi. Ég er stjórnandi hópsins og hef jafnframt umsjón með þeim sem eru í heilbrigðisstjórnunarstöðum úti á vettvangi. Lífið er fínt í Genf. En samt svolítið öðruvísi en áður. Maður er ekki nálægt þeim sem þurfa á okkur að halda þannig að starfið er öðruvísi.“ Pálína hefur gegnt þessu starfi síðan í september 2013 en hyggst brátt breyta til. „Nú er þetta að verða búið, ég fer á eftirlaun í ár og þá stendur til að koma heim til Íslands. Það er kominn tími til, ég er búin að vera svo lengi í burtu.“ Upphafið Að loknu námi í hjúkrun réðst Pálína til starfa á bráðamóttökunni í Fossvogi en ekki leið á löngu þar til hún venti kvæði sínu í kross. „Þetta byrjaði allt saman árið 1984 um jólin. Þá var mikil hungursneyð í Eþíópíu og það voru sýndar myndir þaðan í sjónvarpinu. Við vorum þrjár vinkonur, allar hjúkrunarfræðingar, sem vorum að spjalla um þetta og fórum að velta fyrir okkur hvort við gætum ekki farið út og gert eitthvað gagn. Úr varð að við sóttum um hjá Hjálparstofnun kirkjunnar og áður en við vissum af vorum við komnar til Eþíópíu til sex mánaða dvalar. Þetta gekk allt mjög hratt fyrir sig. Þetta var ekki endilega það sem ég hafði ætlað mér að gera í hjúkrun, ég var að vinna á slysa- og bráðamóttökunni. Það var mín hugsjón og þar vildi ég vera. En svo gerðist eitthvað, ég fann hjá mér einhverja þörf fyrir að halda þessu áfram. Við höfðum enga reynslu af svona stórum hamförum eins og áttu sér stað í Eþíópíu en hittum Sigríði Guðmundsdóttur, sem var að vinna fyrir alþjóðaráð Rauða krossins, og hún hjálpaði okkur mikið. Hún var með alls konar leiðbeiningar og upplýsingar um hvernig maður ynni við þessar aðstæður. Eftir það hugsaði ég með mér að kannski ætti ég að kíkja aðeins á Rauða krossinn. Ári síðar fór ég mína fyrstu ferð til Tælands, rétt við landamæli Kambódíu, þar sem Rauði krossinn rak sjúkrahús fyrir stríðssærða sem komu annaðhvort frá Víetnam eða Kambódíu. Í mörg ár átti ég erfitt með að ákveða hvað ég vildi gera því ég er voðalega heimakær. Mig langaði virkilega að vinna við bráðahjúkrun þannig að úr varð að ég starfaði á Íslandi en fór í ferðir á vegum Rauða krossins á Íslandi alveg fram til ársins 1999. Þá sagði ég upp og fór á vegum utanríkisráðuneytisins með breska hernum til Bosníu. Það var mjög sérstök lífsreynsla. Síðan hef ég í raun ekki komið heim til að vinna. Ég var í ferðum fyrir Rauða krossinn og fór síðan í nám í mannauðsstjórnun í heilbrigðisþjónustu og það leiddi mig svo í þetta starf sem ég er í núna. Þetta eru orðin þrjátíu og fjögur ár.“ Með vaxandi þolinmæði Fyrir Pálínu og stöllur hennar var lífsreynsla að koma til Eþíópíu 1984. „Að sjá myndir í sjónvarpinu er ekkert á við það að vera á staðnum. Ég hafði aldrei áður komið til Afríku og aldrei orðið vitni að hungursneyð, hvað þá svona mikilli, svo að þetta var mikil reynsla. Við bjuggum í tjöldum og lifðum á mjög einfaldan hátt þetta hálfa ár. Við kynntumst annarri menningu og fólki sem maður hafði aldrei komist í kynni við áður. Það fólst ekki síður lærdómur í að vera þolinmóður, glíma við tungumálið og reyna að gera sig skiljanlegan. Ég var frekar óþolinmóð og hugsaði mikið um það hvernig ég myndi bregðast við þegar ég kæmi aftur á slysadeildina. Ég velti fyrir mér hvort ég hefði þolinmæði fyrir fólki sem kæmi út af einhverju léttvægu sem í raun ætti frekar að leysa á heilsugæslu. En í raun var það Það eru alger forréttindi að vinna við þetta Viðtal: Heiðrún Ólafsdóttir Viðtal við Pálínu Ásgeirsdóttur 1997-98 — Sjúkrahús Rauða krossins staðsett í Kenýa, við landamæri Súdan. 1958 Nafni félagsins breytt í Hjúkrunarfélag Íslands
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.