Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 59

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 59
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 59 1963 Hjúkrunarfélag Íslands flytur starfsemi sína í Þingholtsstræti 30 FRÁ VERKEFNASTJÓRA Ég tók við formennsku í Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga (Fhh) í október 1989 af Lauru Sch. Thorsteinsson. Ég var þá fræðslustjóri Borgarspítalans og Laura var nýkomin til starfa þar, mér við hlið. Hún var að leita að eftirmanni í formannsembættið og fannst greinilega hæg heimatökin að ég tæki við félaginu. Ég hafði áður tekið þátt í starfi félagsins bæði í stjórn og fræðslunefnd og hafði ánægju af félagsstörfum, m.a. tók ég virkan þátt í stúdentapólítíkinni á háskólaárum mínum. Ég var formaður félagsins í rúm fjögur ár en þá var ég kjörin formaður nýs sameinaðs félags hjúkrunarfræðinga, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í ársbyrjun 1994. Ég hafði þá ásamt Vilborgu Ingólfsdóttur, formanni Hjúkrunarfélags Íslands, stýrt vinnu við undirbúning að sameiningu félaga hjúkrunarfræðinga um nokkurt skeið. Ég gaf kost á mér til formennsku í nýju félagi því mér fannst vera hugur í stéttinni til stórra verka, félagslega, faglega og kjaralega, sem ég hafði áhuga á að fylgja eftir. Jafnframt fann ég að það hafði opnast ákveðinn gluggi hjá stjórnvöldum gagnvart hjúkrunarfræðingum sem ég vildi nýta stéttinni til hagsbóta. Hvað einkenndi tíðarandann í samfélaginu þegar þú varst formaður? Eftir sameiningu félaganna var mikill samhugur og kraftur í hjúkrunarstéttinni og náði félagið að marka sér bás í umræðu um heilbrigðismál svo eftir var tekið. Hjúkrunarfræðingar nutu, eins og nú, stuðnings og velvilja frá samfélaginu sem var mikill styrkur fyrir stéttina, ekki síst í erfiðri kjarabaráttu sem einkenndi árin fram undan. Helstu baráttumál hjúkrunarfræðinga í minni formannstíð Eins og gefur að skilja fór mikill tími í vinnu við sameiningu félaga hjúkrunarfræðinga í tíð minni sem formaður Fhh Við höfðum fundið að klofningur hjúkrunarstéttarinnar í tvö félög var farinn að vinna gegn henni í margvíslegu tilliti og m.a. af þeim sökum var sameining óhjákvæmileg. Nýtt félag náði ágætum árangri í kjarasamningum fljótlega eftir sameiningu. Nokkru síðar vann félagið með BHM að útfærslu á nýju launakerfi ríkisins sem m.a. fól í sér að færa fastar yfirvinnugreiðslur í grunnlaun. Við vissum að þá kæmi í ljós launamunur milli hjúkrunarfræðinga, sem höfðu fæstir slíkar greiðslur, og annarra háskólastétta. Þetta skapaði sóknarfæri og með öflugum samtakamætti stéttarinnar náðist að bæta kjör hennar. Mikil gróska var í faglegu starfi félagsins, stofnaðar voru fagdeildir sem héldu úti öflugu starfi og nefndir félagsins voru virkar. Einnig var m.a. unnið að stefnumótun í málefnum félagsins og sýn þess á heilbrigðisþjónustuna og siðareglur hjúkrunarfræðinga voru mótaðar. Á einhverjum tímapunkti taldist mér að um 500 hjúkrunarfræðingar væru í kjörnum störfum á vegum félagsins, í stjórn, svæðisdeildum, nefndum, fagdeildum og sem trúnaðarmenn félagsins. Félagið tók þátt í erlendu samstarfi hjúkrunarfræðinga, bæði norrænu, evrópsku og alþjóðlegu, og mér fannst það til marks um viðurkenningu á árangri íslenskra hjúkrunarfræðinga þegar ég var beðin um að taka sæti í stjórn ICN, Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga, á árinu 1999, en þar átti ég sæti til ársins 2005 og var m.a. varaformaður samtakanna síðustu fjögur árin. Hvað var eftirminnilegast? Það sem mér þykir einna eftirminnilegast frá formannstíð minni er hvað hjúkrunarfræðingar voru virkir og samtaka í þátttöku í starfi félagsins, stórhuga og metnaðarfullir fyrir hönd félagsins og stéttarinnar. Þegar ég hætti sem formaður fyrir hjúkrunarfræðinga á árinu 1999 var ég kjörin á Alþingi þar sem ég starfaði næstu tíu ár. Ég fór þangað með mikla þekkingu á málefnum heilbrigðisþjónustunnar og einbeitti mér sérstaklega að þeim málaflokki. Menntunarlegur bakgrunnur og reynsla af störfum fyrir hjúkrunarfræðinga var mér þar verðmætur. Hvað hefur breyst og hvernig myndi ég vilja sjá hjúkrun þróast? Nú tuttugu árum eftir að ég lét af störfum fyrir hjúkrunarfræðinga finnst mér stéttin hafa miklu áorkað. Hjúkrunarfræðingar eru mjög vel menntaðir, þeir njóta trausts og taka á sig flókin störf innan heilbrigðiskerfisins. Ég tel samt sem áður að þeir geti tekið að sér mun víðtækari og sjálfstæðari verkefni en þeir gera í dag. Við stöndum einnig frammi fyrir því að störf þeirra eru ekki sérlega vel kynnt, þau eru unnin í of miklum kyrrþey. Ég vildi sjá breytingu á því. Formaður í tveimur félögum FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI Ásta Möller formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga 1989-1994 formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 1994-1999 1960 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is fastus.is SOFÐU RÓTT Snúningslök fyrir betri nætursvefn Fastus býður upp á margar gerðir af lökum sem auðvelda snúning og hagræðingu í rúmi. Hafðu samband í síma 580 3900 og pantaðu tíma í ráðgjöf hjá sérhæfðu starfsfólki okkar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.