Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 63
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 63
Borgarspítalinn tekur til starfa
og beitingu sérhæfðrar þekkingar í hjúkrun,
sjá mynd 1. Hlutverk sérfræðinga í hjúkrun
er margþætt en gerð er krafa um klínískt starf,
þátttöku í rannsóknar-, umbóta- og gæðavinnu,
að sinna kennslu og fræðslu, og síðast en ekki
síst að vera leiðtogi á sínu sviði.
Sérfræðingar í hjúkrun leggja áherslu á að
byggja störf sín á gagnreyndri þekkingu og
á undanförnum áratugum hafa sérfræðingar
í hjúkrun og hjúkrunarfræðingar með
framhaldsmenntun stuðlað að þróun
margvíslegrar nýrrar þjónustu hér á
landi. Má sem dæmi nefna uppbyggingu
sáramiðstöðvar á Landspítala, sérhæfða
ráðgjöf vegna svefnvandamála barna, ráðgjöf
sérfræðinga í hjúkrun í tengslum við komur
aldraðra á bráðamóttöku, þverfaglega
göngudeildarþjónustu við börn með iktsýki og
göngudeildarþjónustu við börn og unglinga
með sykursýki. Þá má og nefna uppbyggingu
á göngudeildarþjónustu við lungnasjúklinga
sem grundvallast á samráði við sjúklinga og
fjölskyldur þeirra, en rannsóknir á því úrræði
hafa sýnt fram á fækkun innlagna og styttingu
á legutíma (Ingadottir og Jonsdottir, 2010).
Þá gegna sérfræðingar í hjúkrun veigamiklu
hlutverki í kennslu hjúkrunarfræðinga, jafnt
innan heilbrigðisstofnana og í háskólunum,
auk þess sem þeir hafa verið virkir í
stefnumótun og þróun þjónustu utan stofnana.
Má þar sem dæmi nefna þátttöku í gerð
krabbameinsáætlunar fyrir Ísland og meðferð
með öndunarstuðningi í heimahúsum. Þótt
þessi upptalning sé engan veginn tæmandi
gefur hún ákveðna mynd af því hvaða
möguleika sérfræðimenntun hefur í för með
sér og hvernig þekkingin nýtist til að stuðla að
nýjum meðferðarúrræðum og þróa þjónustuna
út frá þörfum sjúklinga og í takt við tímann.
Rannsóknir hafa sýnt fram á góðan
árangur af starfi hjúkrunarfræðinga með
sérfræðimenntun. Í þremur kerfisbundnum
samantektum reyndist árangur af starfi
sérfræðinga í hjúkrun (advanced practice
nurses) og lækna í heilsugæslu vera
sambærilegur og í sumum tilvikum betri
hjá hjúkrunarfræðingum. Skoðaðir voru
þættir eins og meðferð háþrýstings, stjórnun
blóðsykurs og meðferð við hækkaðri blóðfitu,
ánægja sjúklinga, heilsutengd lífsgæði
og kostnaður (Laurant o.fl., 2018; Swan
o.fl., 2015; Weeks o.fl., 2016). Í rannsókn
Faza og félaga (2018) reyndist árangur
í meðferð sykursýki og hjartasjúkdóma
sambærilegur milli hjúkrunarsérfræðinga
(nurse practitioners) og aðstoðarmanna lækna
(physicians assistants).
Ég hef notið þeirrar gæfu að starfa sem
sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með verki á
Landspítala undanfarin sex ár. Í starfi mínu hef
ég fengið tækifæri til að byggja upp og þróa
verkjaþjónustu á spítalanum í samvinnu við
samstarfsfólk úr ýmsum heilbrigðisstéttum
og stjórnendur. Ég hef þannig getað nýtt
sérþekkingu mína til að bæta þjónustu og
meðferð við sjúklingahóp sem býr við erfið
einkenni og á sér fáa málsvara. Töluverður tími
Heimildir
Faza, N.N., Akeroyd, J.M., Ramsey, D.J., Shah, T., Nasir,
K., Deswal, A., og Virani, S.S. (2018). Effectiveness of
NPs and PAs in managing diabetes and cardiovascular
disease. Journal of the American Academy of PAs, 31(7),
39-45; doi: 10.1097/01.JAA.0000534983.61613.91.
Ingadottir, T.S., og Jonsdottir, H. (2010). Partnership
based nursing practice for people with chronic obstructive
pulmonary disease and their families: Influences on
health related quality of life and hospital admissions.
Journal of Clinical Nursing, 19, 2795-2805.
Laurant, M., van der Biezen, M., Wijers, N., Watananirun,
K., Kontopantelis, E., og van Vught, A. J. (2018).
Nurses as substitutes for doctors in primary care.
Cochrane Database of Systematic Reviews, (7); doi:
10.1002/14651858.CD001271.pub3.
Swan, M., Ferguson, S., Chang, A., Larson, E., og
Smaldone, A. (2015). Quality of primary care by
advanced practice nurses: A systematic review.
International Journal for Quality in Health Care, 27(5),
396-404; doi.org/10.1093/intqhc/mzv054.
Tracy, M.F., og O’Grady, E. (2019). Hamric and Hanson’s
Advanced Practice Nursing: An Integrative Approach (6.
útg.). St. Louis: Elsevier.
Weeks, G., George, J., Maclure, K., og Stewart, D. (2016).
Non‐medical prescribing versus medical prescribing
for acute and chronic disease management in primary
and secondary care. Cochrane Database of Systematic
Reviews, (11); doi: 10.1002/14651858.CD011227.
pub2.
af starfi mínu fer jafnframt í fræðslu og kennslu
samstarfsfólks og nemenda og sömuleiðis hef
ég stýrt umbótastarfi og vísindarannsóknum.
Starfið er þannig fjölbreytt og um leið
krefjandi, en það er mikilsvert að finna hvernig
aukin þekking og færni gefur manni möguleika
á að sinna flóknum viðfangsefnum með
hagsmuni verkjasjúklinga að leiðarljósi.
Heilbrigðisþjónusta mun halda áfram
að þróast og breytast. Mikilvægt er að
hjúkrunarfræðingar taki þátt í þeirri þróun og
séu frumkvöðlar að því að bæta meðferð og
þjónustu við þá sem þurfa á hjúkrun að halda.
Sérfræðimenntun í hjúkrun er mikilvægur
liður í því að gera hjúkrunarfræðinga í stakk
búna, ekki einungis til að sinna þörfum
nútímans heldur einnig til að móta hjúkrun
framtíðarinnar.
Aukin sérfræðiþekking í hjúkrun gerir
hjúkrunarfræðinga enn færari í að efla
heilbrigði, bæta líðan og lina þjáningar eins
og siðareglur stéttarinnar kveða á um.