Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 64

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 64
64 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Tímabilið sem ég gegndi formennsku í Hjúkrunarfélagi Íslands var sögulegt. Þar sem hjúkrun er ein af grundvallarstoðum heilbrigðisþjónustunnar og þar með góðs þjóðfélags, tók ég glöð þeirri áskorun að gefa kost á mér sem formaður félagsins með það að markmiði að reyna til hlítar að vinna að sameiningu hjúkrunarfræðinga í eitt fag- og stéttarfélag. Þetta var árið 1991 og þá hafði Hjúkrunarfélag Íslands og Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga reynt í um 14 ár að vinna að því markmiði. Mörgum þótti ég hafa meiri forsendur en margir aðrir að stýra þeirri vinnu af hálfu félagsins þar sem ég hafði bæði lokið þriggja ára námi frá Hjúkrunarskóla Íslands og fjögurra ára námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Bakgrunnur minn, viðhorf mitt og framtíðarsýn um hlutverk hjúkrunar í samfélaginu tel ég að hafi haft úrslitaáhrif varðandi það að mér var treyst til að hafa yfirumsjón með þessari vinnu. Verkefnið var stórt og væntingarnar miklar því margir töldu að ef þetta tækist ekki við þessar aðstæður væri rétt að leggja þessa vinnu á ís. Erfið ár voru að baki þar sem deilur voru um áherslur í hjúkrunarmenntun en enn var einhver ágreiningur um hvernig menntun hjúkrunarfræðinga skyldi metin til launa og ýmissa starfsréttinda. Ég fann frá fyrsta degi að ég naut mjög mikils trausts félagsmanna í báðum hjúkrunarfélögunum. Málefnavinna tengd stofnun nýs félags hjúkrunarfræðinga var meginmarkmiðið og inntakið í verkefnum mínum en alls ekki eina viðfangsefnið. Verkefnum fjölmenns fag- og stéttarfélags varð að vinna að samhliða. Það varð að vinna þau verkefni vel því að öðrum kosti hefði það getað haft mikil áhrif á skrefin að stofnun nýs félags. Þau verkefni tengdust meðal annars sýnileika starfa hjúkrunarfræðinga og sjálfstæði starfa þeirra, kjaramálum og vinnuaðstæðum, niðurskurði á fjárveitingum til heilbrigðisstofnana, menntunarmálum hjúkrunarfræðinga, samskiptum við önnur stéttarfélög innan heilbrigðisþjónustunnar, samskiptum við stjórnvöld og erlend hjúkrunarfélög, útgáfu hjúkrunarfræðingatals og tímarits félagsins auk margþættra verkefna sem tengdust störfum einstakra hjúkrunarfræðinga. Verkefnin sem tengdust stofnun nýs hjúkrunarfélags voru ýmiss konar málefnavinna en einnig ásýnd og skipulag. Þar var áhersla lögð á virðingu fyrir öllum félagsmönnum úr hvoru félagi fyrir sig. Allir urðu að finna sig í nýju fag- og stéttarfélagi. Sem dæmi um verkefnin má nefna stefnu, sýn og hlutverk félagsins, ný lög, nýjar siðareglur, nafn félagsins, húsnæðismál og staðsetningu félagsins, starfsmenn félagsins, skipulag svo sem stjórn, nefndir, fagdeildir og þátttöku í erlendu samstarfi. Afstöðu varð að taka til merkis sem ætti að einkenna nýja félagið. Það er broslegt til þess að hugsa að oft og tíðum virtist það vera aðalágreiningsmálið. Einu stóru verkefni var unnt að ljúka nokkrum mánuðum áður en nýtt félag hjúkrunarfræðinga var stofnað. Það var nýtt fagtímarit hjúkrunarfræðinga þar sem mörkuð var ný ritstjórnarstefna og fulltrúar beggja hjúkrunarfélaganna áttu sæti í ritstjórn. Formennska í Hjúkrunarfélagi Íslands þetta tímabil fól í sér gífurlega mikla vinnu en tilfinning mín er sú að það hafi alltaf verið gaman. Það var unnið mjög málefnalega að hverju verkefni. Við aðstæður sem þessar skapaðist drifkraftur þar sem allir voru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum. Þar reyndi á þrautseigju og samtakamátt hjúkrunarfræðinga og alltaf ríkti samhugur, traust og virðing meðal þeirra sem komu að vinnunni hvers eðlis sem hún var. Mikil áhersla var síðan lögð á að kynna allar þessar hugmyndir og málefnavinnu fyrir félagsmönnum um land allt. Í allsherjaratkvæðagreiðslu sem fram fór haustið 1993, meðal allra félagsmanna í báðum hjúkrunarfélögunum, svöruðu yfir 95% þeirra sem afstöðu tóku því játandi að Hjúkrunarfélag Íslands og Félag háskólamenntara hjúkrunarfræðinga skyldu lögð niður og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stofnað 15. janúar 1994. Saga hjúkrunar á Íslandi er saga framfara og stórstígra skrefa til að sinna sem best hjúkrunarþörfum einstaklinga á hverjum tíma. Stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 15. janúar 1994 er eitt þeirra stóru skrefa. Og það er enn vor í lofti … Formaður á sögulegum tíma FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI Vilborg Ingólfsdóttir formaður Hjúkrunarfélags Íslands 1991-1994
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.