Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 67
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 67
1973
Nýi hjúkrunarskólinn settur á stofn Námsbraut í hjúkrunarfræði stofnuð við Háskóla Íslands
Ég útskrifaðist úr listnáminu 2009 og við
fluttum til Íslands aftur síðla sumars 2010.
Ég réð mig á Landspítalinn þá um haustið og
hef starfað þar síðan á hinum ýmsu deildum.
Allar eiga þær það sameiginlegt að þar vinnur
einstakt fólk og enginn vafi á því að það býr
mikill kraftur í mannauði Landspítalans. Ég
hef alltaf haft ánægju af starfi mínu þar sem
ég hef verið. Maður lærir alls staðar eitthvað
nýtt og tekst á við ný úrlausnarefni. Í dag
starfa ég á vöknun í Fossvoginum, það er
fjölbreytilegt og gefandi en getur einnig verið
krefjandi á stundum. Þar starfar frábær hópur
samheldinna hjúkrunarfræðinga og það er
mikils virði þar sem bráðatilvik geta komið
upp og ríður þá á að hafa hraðar hendur og
góða teymisvinnu.
Þegar ég flutti til Íslands aftur hannaði ég
og framleiddi keramik undir vörumerkinu
Arnlaug keramik og var hluti af Kaolin
Keramik Galleríi á Skólavörðustíg. Í dag
starfa ég í hönnunarteymi ásamt mágkonu
minni Áslaugu Árnadóttur, sem er arkitekt.
Hún er einstakur teiknari og ég hafði alltaf
dáðst að þessum hæfileikum hennar. Við
töluðum um það í mörg ár að það væri gaman
að sameina krafta okkar og fá útrás fyrir
sköpunarþörfina í sameiginlegu verkefni. Við
hrintum þessum gamla draum í framkvæmd
haustið 2015 og skelltum okkur í samstarf.
Úr varð Lauga&Lauga en við fögnuðum
nýverið þriggja ára afmæli. Hönnunin er
byggð á postulínsmunum, bollum, plöttum
og skarti þar sem við leikum okkur með
nokkur þemu í myndskreytingum. Ég hanna
„HÚN BLUNDAÐI ÞÓ ALLTAF
STERKT Í MÉR ÞÖRFIN TIL
AÐ SKAPA OG ÞAÐ LEIDDI
TIL ÞESS AÐ ÉG FÓR Í
LEIRLISTARNÁM VIÐ AARHUS
KUNSTAKADEMI VORIÐ 2006“
AFMÆLISKVEÐJA TIL
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
og leira og Áslaug sér um teikningarnar.
Hugmyndavinnan er sameiginleg og gaman að
vera tvær og geta gefið hvor annarri endurgjöf.
Listræna ferlið getur verið einmanalegt og
því gott að hafa einhvern til að deila því með,
einhvern sem hefur jafnmikla ástríðu og áhuga
fyrir því og maður sjálfur. Vinnuferlið er því
mjög skemmtilegt og gefandi.
Listsköpunin hefur verið mitt athvarf, í
mismiklum mæli þó. Þegar álagið er hvað mest
í vinnunni minnkar orkan í listsköpuninni,
ólíkt því sem margir halda að maður noti
listina til að pústa eftir erfiðan dag. En
listsköpun krefst innsæis, þolinmæði og
einbeitingar ekki ólíkt hjúkrun. Það þarf að
geta gefið sig allan og sökkt sér ofan í verkin.
Sköpunarþörfin getur því verið í lægð í
einhvern tíma en ég nýt þess að snúa aftur
á verkstæðið þegar orkan verður meiri. Þá
hleð ég batteríin og get gleymt mér tímunum
saman í skapandi vinnu. Þetta er eins og
sjálfsrækt sem skilar sér í bættri andlegri
heilsu og vellíðan.
EINING IÐJA
GARÐSAPÓTEK
GRUND DVALAR- OG
HJÚKRUNARHEIMLI
HÁSKÓLI ÍSLANDS
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI
HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐAUSTURLANDS
HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐURLANDS
HEILBRIGÐISSTOFNUN
VESTURLANDS
HEILSUGÆSLAN NESKAUPSTAÐ
HEILSUSTOFNUN NLFÍ
HJALLATÚN DVALARHEIMILI
HJÚKRUNAR- OG DVALARHEIMILIÐ
BARMAHLÍÐ
HJÚKRUNAR- OG DVALARHEIMILIÐ
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
HJÚKRUNARHEIMILIÐ SÓLTÚN -
ÖLDUNGUR HF.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ SÓLVANGUR
HLÍÐ DVALAR- OG
HJÚKRUNARHEIMILI
HÓTEL SIGLUNES
HULDUHLÍÐ HEIMILI ALDRAÐRA
HVAMMUR HEIMILI ALDRAÐRA
HÖFÐI HJÚKRUNAR-
OG DVALARHEIMILI