Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 70
70 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
1975
Hjúkrunarkonur verða hjúkrunarfræðingar
Þegar ég tók við formennsku voru einungis átta ár liðin
frá því að ég lauk BS-námi í hjúkrunarfræði. Ástæða þess
að ég bauð mig fram til formannskjörs var áhugi minn á
faglegum málefnum hjúkrunar og sannfæring um mikilvægi
hennar. Mér fannst þá jafnt sem nú að margt biði úrlausnar,
svo sem þróun fagsins með verðmæti hjúkrunar og áhrif
hjúkrunarfræðinga í huga og svo auðvitað starfskjör þeirra.
Á þessum tíma var tiltölulega stutt frá því að hjúkrunarfræði varð
háskólagrein á Íslandi, en einungis 10 ár höfðu liðið frá því að fyrstu
háskólamenntuðu hjúkrunarfræðingarnir luku námi frá Háskóla Íslands.
En framgangur hjúkrunar var að eflast og uppgangstímabil fyrir hjúkrun
í burðarliðnum. Fram á sjónarsviðið voru að koma nýir leiðtogar
innan hjúkrunar og nýir möguleikar að skapast. Áherslan varð þó á
kjarabaráttu sem endaði með sex vikna verkfalli vorið 1989.
Verkfallið tók mjög á alla sem að því stóðu, svo sem stjórn félagsins,
kjaranefnd, samningsaðila og félagsmenn sjálfa sem áttu í verkfallinu.
Auk þess vofði alltaf yfir sú ógn að alvarleg atvik, sem tengdust
verkfallinu, gætu átt sér stað. Ég hugsaði um það á meðan á verkfallinu
stóð hversu mikil orka og tími fór í það og hversu miklu árangursríkara
það væri ef hjúkrunarfræðingar væru metnir að verðleikum og kjör
þeirra væru með þeim hætti að ekki væri talin þörf á að fara í verkfall. Ef
allur tíminn og orkan hefðu frekar farið í að sinna faglegum málefnum
innan hjúkrunar hefði það verið svo dýrmætt. En þá voru kjör
hjúkrunarfræðinga með þeim hætti að ekki var talið hægt að búa við þau
og því nauðsynlegt að fara í verkfall.
Gæfuspor að sameina félögin
Margt hefur breyst á þeim 30 árum sem liðin eru frá minni formannstíð.
Menntunarstig hjúkrunarfræðinga hefur hækkað mikið og því hafa
margvíslegir nýir starfsmöguleikar opnast fyrir þá. Rannsóknum innan
hjúkrunar hér á landi hefur fleygt fram. Ég tel að það hafi verið mikið
gæfuspor þegar Hjúkrunarfélag Íslands og Félag háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga voru sameinuð fyrir 25 árum í eitt öflugt félag
hjúkrunarfræðinga. Heilbrigðiskerfið hefur breyst mikið og flækjustig
þess aukist. En þrátt fyrir allar breytingar eru grunngildi hjúkrunar alltaf
þau sömu í takt við siðareglur okkar og fagleg umhyggja er enn þá innsta
eðli hjúkrunar.
Hjúkrun er ein meginstoð heilbrigðisþjónustu og hefur því mikil áhrif á
gæði hennar. Ég hef ótal sinnum séð hvers virði góð hjúkrun er og hversu
mikil áhrif á lífsgæði fólks hún getur haft. Hjúkrunarfræðingar snerta líf
ótal aðila á öllum sviðum heilbrigðisþjónustu á krefjandi augnablikum,
á gleðistundum og þegar erfiðleikar steðja að. Ég hef séð dugnað
og fagmennsku hjúkrunarfræðinga og hvers þeir eru megnugir. Ég
hlakka til að sjá hjúkrun þróast áfram í takt við nýja tíma með öflugum
rannsóknum og ekki síst með því að nýta rannsóknarniðurstöður í starfi
og efla samstarf milli fræðasamfélags og klínísks starfs.
Ég óska þess að hjúkrun haldi áfram að þróast með gildi félagsins okkar,
þekkingu, færni og umhyggju, að leiðarljósi og að tilgangur félagsins,
sem er að vinna að árangursríkri og öruggri heilbrigðisþjónustu, sé í
heiðri hafður.
Grunngildi hjúkrunar
alltaf þau sömu
FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI
Laura Sch. Thorsteinsson
formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
1987-1989
„EN ÞÁ VORU KJÖR HJÚKRUNARFRÆÐINGA
MEÐ ÞEIM HÆTTI AÐ EKKI VAR TALIÐ HÆGT
AÐ BÚA VIÐ ÞAU OG ÞVÍ NAUÐSYNLEGT AÐ
FARA Í VERKFALL“
1975