Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 72
72 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Það er gaman að fá tækifæri til að líta yfir farinn veg og
íhuga fræðistörf mín. Í námskeiðum Mörgu Thome á fyrsta
ári í hjúkrunarfræði var lagður grunnur að þeim skilningi á
eðli umönnunar og heilbrigðisþjónustu sem mótaði afstöðu
mína. Marga kynnti okkur fyrir áhugaverðum hugmyndum
og óvenjulegum leiðum til að takast á við viðfangsefnin.
Í náminu vandist ég á að beita gagnrýnni hugsun í þeim
skilningi að skoða allar hliðar mála og spyrja mig stöðugt
hvort hlutirnir gætu verið með öðrum hætti en virtist liggja
beinast við. Að starfa við hjúkrun er mikil reynsla sem
mótar mann á svo margvíslegan hátt. Líkt og svo margir
aðrir hjúkrunarfræðingar fannst mér ég skynja ákveðna
töfra í hjúkrun sem tengdust því að annast um fólk sem
var í mörgum tilvikum að takast á við mikla erfiðleika. Með
fræðimennsku minni hef ég leitast við að skilja þessa töfra
og þær aðstæður sem móta þá.
Eðli hjúkrunarstarfsins
Þegar í grunnámi beindist áhugi minn að femínískum kenningum sem
ég hélt áfram að kynna mér og beita eftir að ég hóf framhaldsnám í
Bandaríkjunum. Ég fann áhugaverðan grunn í þeirri þekkingarfræði
sem margir áhrifamiklir femínískir fræðimenn settu fram á síðari
hluta tuttugustu aldar og jafnframt heillaðist ég af femínískum
siðfræðikenningum líkt og margir aðrir hjúkrunarfræðingar. Vissulega
mótaðist þessi áhugi minn af þeirri staðreynd að þegar hjúkrun
varð að formlegri starfsgrein um miðja tuttugustu öldina var starfið
kvennastarf. Margir fræðimenn leituðust við að varpa ljósi á eðli
kvennastarfa og umönnunarstarfa og gera þau sýnileg. Þó ég hafi alltaf
verið talsmaður þess að fjölga karlmönnum í hjúkrun, hef ég engu
að síður talið mikilvægt að skoða þann styrk sem konur hafa fært
starfinu. Þessar áherslur koma sterkt fram í doktorsritgerð minni og
í fyrstu ritverkum mínum, m.a. bókinni Líkami og sál: Hugmyndir,
þekking og aðferðir í hjúkrun. Í þeirri bók leitaðist ég við að skilja
eðli hjúkrunarstarfsins, þær hefðir og gildi sem hjúkrunarfræðingar
hafa haft að leiðarljósi, eðli þeirrar þekkingar sem skilar árangri í starfi
og þeim starfsaðstæðum sem hjúkrun hefur verið búin. Saga fagsins
mótaðist af baráttunni fyrir bættri menntun, mannsæmandi launum og
viðunandi starfsskilyrðum. Auk þess að nýta hinar femínísku kenningar
við greiningu á hjúkrunarstarfinu hef ég einnig beitt þeim í rannsóknum
mínum á hlutskipti fjölskyldumeðlima sem annast um einstakling
heima, en framan af voru konur í yfirgnæfandi meirihluta þeirra. Eins
og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt og halda áfram að sýna eru slík störf
afar krefjandi og ef ekkert er að gert draga þau úr lífsgæðum þeirra sem
umönnun veita.
Áhugi á heimahjúkrun færist í aukana
Áhugi minn á heimahjúkrun spratt úr rannsóknum mínum á sögu
hjúkrunar. Ég áttaði mig á að hjúkrunarstarfið varð ekki til sem
aðstoðarmannsstarf lækna á stofnunum heldur umönnun og leiðbeining
til fólks, sem bjó á heimilum sínum en átti við veikindi að stríða,
um hollustuhætti og góðan aðbúnað. Með þeirri stofnanavæðingu
heilbrigðisþjónustunnar sem átti sér stað megnið af tuttugustu öldinni
minnkaði þó stöðugt áhuginn og þörf fyrir heimahjúkrun. Undir
lok aldarinnar og alla tuttugustu og fyrstu öldina hefur áhuginn á
heilbrigðisþjónustu á heimilum og þar með heimahjúkrun færst
í aukana. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með endurkomu
heimahjúkrunar í stefnumörkun alþjóðastofnana og stjórnvalda
einstakra landa. Í rannsóknum mínum og annarra vísindamanna á
Norðurlöndunum og víðar í Evrópu hefur komið fram að heimahjúkrun
verður stöðugt tæknilega flóknari og krefst sérhæfðari þekkingar. Fólk
dvelur skemur á sjúkrahúsum og það kallar á ný verkefni í heimahjúkrun.
Einnig hafa þessar rannsóknir leitt í ljós að hjúkrunarfræðingar í
heimahjúkrun stýra fjölbreyttri starfsemi sem kallar á samvinnu við
fjölmarga aðila og samhæfingu starfa. Ég notaði hugmyndina um net til
að lýsa því hvernig teymisstjórar í heimahjúkrun tengja ólíka aðila saman
til að skapa heildstæða, örugga og áreiðanlega heilbrigðisþjónustu á
heimilum. Í þeim störfum nýta hjúkrunarfræðingarnir meginreglur
teymisvinnu þar sem þekking og styrkur ólíkra aðila eru nýtt á sem
árangursríkastan hátt.
Mikilvægt að tileinka sér tækniframfarir
Stjórnvöld á Íslandi, líkt og í nágrannalöndum okkar, leitast við að
stuðla að upptöku stafrænna aðferða í heilbrigðisþjónustunni og tryggja
með því innleiðingu hinnar svokölluðu fjórðu iðnbyltingar. Þegar má
finna áhrif þessarar þróunar á sviði heimaþjónustu. Með innleiðingu
rafrænnar skráningar hefur gagnkvæmur aðgangur starfsmanna að
heilsufarsupplýsingum stórbatnað og þar með tækifæri til samfellu og
samhæfingar sem eru lykilþættir í allri samþættingu. Í samvinnu við
nemendur mína hefur rannsóknaáhugi minn í auknum mæli beinst að
kostum stafrænna aðferða fyrir heimahjúkrun. Ég tel afar brýnt að við
Horft um öxl
Dr. Kristín Björnsdóttir
hjúkrunarfræðingur og prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ
1978
Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga stofnað