Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 74
74 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur (RIM) var stofnaður 29. júní 2007 að frumkvæði Ingibjargar R. Magnúsdóttur, fyrrverandi skrifstofustjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og formanni námsbrautarstjórnar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði og eru styrkir veittir til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi vegna rannsóknarverkefna sem falla að markmiðum sjóðsins. Ingibjörg var, eins og kunnugt er, einn helsti hvatamaður að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði árið 1973 og sannkallaður brautryðjandi í menntunarmálum hjúkrunarfræðinga hérlendis. Eins og flestir vita hefur Ingibjörg reynst íslenskri hjúkrunar- og ljósmóðurstétt einstakur velgjörðarmaður en hin síðari ár hefur hún einbeitt sér að eflingu RIM með peningagjöfum og margvíslegum stuðningi sem vert er að þakka. Frá stofnun sjóðsins hefur verið úthlutað 10 sinnum, samtals 24 styrkjum til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Heildarupphæð styrkjanna er orðin 8.300.000 kr. Sextán af 20 styrkhöfum hafa nú þegar útskrifast en um þessar mundir stunda 15 nemendur doktorsnám við Hjúkrunarfræðideild HÍ. Rannsóknarverkefni styrkhafa hafa spannað vítt svið og lagt umtalsvert af mörkum til fjölbreyttrar þjónustu og rannsókna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Fjölbreytt verkefni Doktorsverkefnin hafa verið unnin á vettvangi flestra sérsviða hjúkrunar- og ljósmóðurfræði og beinst m.a. að fólki með langvinna verki, lífslokameðferð, heimafæðingum sem valkosti, unglingum með athyglisbrest og ofvirkni, endurhæfingu, gaumstoli, upplýsingatækni og heilsufari þeirra sem nýlega hafa flust á hjúkrunarheimili. Mörg verkefnanna hafa falið í sér íhlutanir, s.s. framsetningu meðferðarsamtala fyrir fjölskyldur mismunandi skjólstæðingahópa, til dæmis fyrir fjölskyldur barna og unglinga með astma, eftirgæslu eftir legu á gjörgæsludeild, geðvernd sem beinist að ungu fólki, skipulagningu meðferðarúrræða fyrir þolendur kynferðisofbeldis, fræðslu fyrir skurðsjúklinga og svo mætti lengi telja. Það er óhætt að segja að allir styrkþegar RIM eru í dag mjög virkir í rannsóknum og framþróun eigin sérgreina. Flestir, ef ekki allir, taka þátt í að veita nemendum leiðsögn, m.a. í meistara- og doktorsnámi. Framlag þeirra er ómetnanlegt fyrir íslenska hjúkrunar- og ljósmóðurstétt, þeirra sem svo bera kyndilinn áfram. Þannig þróast fagið, ný þekking skapast sem síðan nýtist í þjónustu við skjólstæðinga. Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnús- dóttur starfar eftir staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn. Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar, Stefán Bragi Bjarnason, lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins. Að leggja sjóðnum lið Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður eru hvattar til að leggja sjóðnum lið svo hann megi þjóna sem best tilgangi sínum. Gerum orð Ingibjargar að okkar og höfum hugfast að margt smátt gerir eitt stórt. Veitum doktorsnemum og doktorsverkefnum í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum brautargengi með stuðningi okkar. Hægt er að styrkja Rannsóknasjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. NÁNARI UPPLÝSINGAR sjodir.hi.is/rannsoknasjodur_ ingibjargar_r_magnusdottur. Veitir doktorsnemum brautargengi Dr. Jóhanna Bernharðsdóttir hjúkrunarfræðingur og lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning: 0513-26-004057 Kennitala Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199 Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur 1980 1980 Vigdís Finnbogadóttir kosin forseti Íslands
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.