Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 76
76 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Samvinna og samskipti sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
er jafn margbreytileg og fólkið sem vinnur störfin. Sjálf bý
ég að þeirri ánægjulegu reynslu að hafa átt gott samstarf
og áreynslulaus samskipti við hjúkrunarfræðinga í þeim
störfum sem ég hef sinnt sem sjúkraliði. Verkaskipting
hefur yfirleitt verið skýr, forgangsröðun verkefna klár og
jafnan endurmetin eftir þörfum.
Góð athyglisgáfa og fordómaleysi
Ég hef komið víða við í heilbrigðiskerfinu og unnið á ýmsum deildum
Landspítalans, á Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins. Á þessum vinnustöðum hefur það oftast nær
verið í höndum hjúkrunarfræðinga að meta hjúkrunarþörfina, gera
áætlun um hjúkrunarþjónustu og tryggja að henni sé fylgt. Þetta krefst
að sjálfsögðu náins samstarfs með stéttunum og ekki síst gagnvirks
upplýsingaflæðis. Þessar fagstéttir þurfa að vera meðvitaðar og upplýstar
um áherslur og leiðir þar sem framkvæmdin á nærhjúkrun er oftast nær í
höndum sjúkraliða.
Þeir sem sinna hjúkrunar- og umönnunarstörfum þurfa í senn að búa
yfir góðri athyglisgáfu og tileinka sér fordómalausa og yfirvegaða
framkomu. Í störfum beggja fagstéttanna beinist athyglin jafnan að
fjölda verkefna í senn og yfirleitt er farið á milli staða meðan á vinnu
stendur. Mörgum skjólstæðingum er því sinnt samtímis þar sem
hjúkrunar- eða umönnunarþjónusta sérhvers er einstaklingsmiðuð. Störf
beggja stétta eru því afar fjölþætt.
Sívirk og gagnvirk upplýsingamiðlun
Þegar unnið er við þessi starfsskilyrði er brýnt að upplýsingaflæði
sé markvisst þannig að hjúkrunarfræðingur nái að hafa yfirsýn yfir
framvindu til að geta stöðugt endurmetið hjúkrunarþörfina. Að
sama skapi krefjast þau þess að sjúkraliði geti af nákvæmni miðlað
upplýsingum sem eru mikilvægar til að meta framvindu sjúklinga.
Sívirk og gagnvirk upplýsingamiðlun um skjólstæðinga milli
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða er því í bókstaflegum skilningi
lífsnauðsynlegur þáttur í störfum beggja til að tryggja gæði og faglega
hjúkrunarþjónustu. Rík krafa um hæfni í samskiptum og samvinnu er
því gerð til bæði sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga.
Fjölþætt og margslungið starfsumhverfi
Þó ég sjálf hafi ekki reynslu af erfiðum samskiptum og samstarfi
við hjúkrunarfræðinga hef ég eigi að síður reynslu af því að taka við
upplýsingum um slíkt. Þó nokkur orka hjá okkur á skrifstofu SLFÍ fer í
að glíma við stjórnendur, sem oftast eru hjúkrunarfræðingar. Fjölmörg
dæmi eru um vinnustaði þar sem starfsfólk hefur tamið sér óskýrt
verklag og erfiða vinnustaðasiði. Þetta er því miður ein af staðreyndum
okkar daglega starfs. Báðar stéttir þurfa því að leggja sig fram um jákvætt
og gott samstarf og gera sér fulla grein fyrir réttindum og skyldum hvor
annarrar, ekki síst þeirra sem skráðar eru í lög um heilbrigðisstarfsmenn.
Starfsumhverfi sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga er afar fjölþætt og
margslungið. Þessar starfsstéttir sinna oftar en ekki mörgum og flóknum
viðfangsefnum samtímis. Ekki síst af þeirri ástæðu er það afar mikilvægt
að á sérhverri starfsstöð sé skipulag skýrt og starfsmenn upplýstir
um verkaskiptingu meðal starfsmanna. Forgangsröðun verkefna
þarf að vera klár. Öryggi og gæði umönnunar og hjúkrunar verða því
aðeins tryggð að markviss samvinna og góð samskipti milli sjúkraliða
og hjúkrunarfræðinga séu í fyrirrúmi. Árangur meðferðar og líðan
einstaklinganna, sem hennar njóta, hvíla á þessum þáttum.
Velja fyrirmyndarstjórnanda ársins
Sjúkraliðafélag Íslands hefur lagt áherslu á uppbyggjandi og jákvæð
samskipti og samvinnu fagstétta. Við höfum meðal annars beitt
okkur fyrir að velja fyrirmyndastjórnanda ársins. Við val á slíkum
Samstarf og
samvinna
heilbrigðisstétta
Sandra Bryndísardóttir Franks
sjúkraliði og formaður Sjúkraliðafélags Íslands
1984
Tímarit Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga tekur til starfa