Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 80
80 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Það kann að hljóma eins og
sáraeinfalt mál að hóa saman þremur
fyrrverandi þingkonum en raunin
er önnur. Með þolinmæði tekst þó
að stefna Ástu Möller, Ingibjörgu
Pálmadóttur og Þuríði Backman
saman en þær eiga það sameiginlegt
að vera hjúkrunarfræðingar sem hafa
setið á Alþingi. Það er létt yfir þeim
og stutt í hláturinn þó auðvitað hafi
verkefnin í gegnum tíðina oftar en ekki
verið þrungin alvöru.
Þær vissu hver af annarri áður en þær sátu
saman á þingi hver fyrir sinn flokk, höfðu
kynnst í gegnum vinnu og félagsstörf.
Ásta var í Sjálfstæðisflokknum, Ingibjörg í
Framsóknarflokknum og Þuríður í Vinstri
grænum (VG).
Ásta og Þuríður settust á þing 1999 og Ásta
sat til 2009 en Þuríður til 2013. Þuríður hafði
reyndar komið áður inn sem varamaður.
Ingibjörg var á þingi 1991 – 2001, þar af
heilbrigðisráðherra 1995 – 2001. Þær voru
því í tvö ár allar á sama vinnustaðnum við
Austurvöll.
Hvort vegur þyngra hjúkrunarbakgrunnur
eða flokkspólitík?
Þuríður segir að þrátt fyrir hugsanlega
ólíka sýn á það hvernig eigi að reka
heilbrigðisþjónustuna, leysa kerfismál og hvort
heilbrigðismál eigi að vera í einkarekstri eða
opinberum rekstri þá hafi örugglega hjálpað
þeim að hafa sameiginlegan grunn í hjúkrun.
„Ég held að við höfum oftast náð að tala okkur
saman niður á einhverja lausn sem við vorum
þokkalega sáttar við.“
Áður en Ásta kom á þing var hún formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Árið 1997 voru heiftúðugar kjaradeilur,
einmitt þegar Ingibjörg var ráðherra, og
það munaði eiginlega bara hársbreidd að
heilbrigðiskerfið lamaðist. „Já, það munaði
engu að hjúkrunarfræðingar hefðu gengið út
á þessum tíma. Það voru uppsagnir,“ svarar
Ásta og Ingibjörg heldur áfram: „Já, það var
allt í hnút. En ég held að við höfum alveg skilið
hvor aðra, en ég var þá komin í þá stöðu að ég
varð að gera allt til að reyna að ná samningum.
Ég man að karlarnir, sem voru með mér í
ríkisstjórn, voru hræddir um að ég myndi
eitthvað lyppast niður vegna þess að ég var
eina konan í ríkisstjórn og „hjúkka“. Ég ræddi
auðvitað mikið við Ástu og hún var rosalega
hörð – uppjárnuð alveg.“ „Eins og hún átti að
vera,“ skýtur Þuríður inn í. „Já, já, auðvitað,“
svarar Ingibjörg. „Og við vorum þarna í
sitthvoru hlutverkinu og það var alveg að koma
miðnætti þessa dags sem var lokadagur til að
ná samningum. Vigdís Magnúsdóttir, sem þá
var forstjóri Landspítalans, var með mér uppi
í ráðuneyti og klukkan var svona hálftólf og
það var búið að reyna allt mögulegt en ekkert
gekk. Svo allt í einu bara, tíu mínútur fyrir tólf,
segir Vigdís mér að hringja í Ástu og spyrja
hana hvernig henni lítist á nýjustu tillöguna …
og þá bara, bingó, klukkan tólf var málið leyst!
Þetta var með erfiðustu augnablikum í minni
ráðherratíð.“
Þessir atburðir eru Ástu einnig í fersku
minni. „Það sem skipti sköpum við lausn
málsins voru stofnanasamningarnir,“ segir
hún. „Þeir urðu lykillinn að lausninni.
Því þegar þetta nýja launakerfi kom þá
var yfirvinna færð inn í grunnlaunin og
allar háskólastéttir voru með það. En
hjúkrunarfræðingar voru ekki með neina
„óunna yfirvinnu“, eins og þetta var kallað
þá. Þannig að þegar stofnanasamningarnir
voru frágengnir hjá hinum félögunum þá
kom í ljós mikill launamunur á grunnlaunum
hjúkrunarfræðinga með fjögurra ára
háskólamenntun og allra hinna stéttanna með
samsvarandi menntun. Hjúkrunarfræðingar
ætluðu auðvitað ekkert að láta það yfir sig
ganga. Við vissum alveg að með því að fara í
þetta nýja launakerfi myndi þetta koma fram
og gefa okkur færi, en þegar þetta kom í ljós
þá sögðu margir hjúkrunarfræðingar upp. Og
þetta voru einstaklingsbundnar uppsagnir,
félagið stóð ekkert á bak við þær. Þetta bara
fór af stað og svo voru þrír mánuðir liðnir
þennan dag sem Ingibjörg var að lýsa. Og þá
… kannski deginum á undan, hafði þessu verið
vísað inn til Landspítalans.“
Það var verkefni Ástu að fara með tilboðið,
sannfæra hjúkrunarfræðinga um að ekki
yrði komist lengra og fá þá til að draga
Hvaða gagn gerði ég?
Viðtal: Heiðrún Ólafsdóttir
Þær komu umræðu um heilbrigðismál á
dagskrá Alþingis og voru ötular í forvörnum.
Þrír hjúkrunarfræðingar líta yfir farinn veg
og reynslu sem kjörnir fulltrúar á Alþingi.
1987
Húsnæði Hjúkrunarfélags Íslands vígt að Suðurlandsbraut 22