Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 82

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 82
82 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Hjúkrunarfélags Íslands. Kannski var það út af þessari ræðu við útskriftina sem ég var kjörin í kjaramálanefnd, samninganefndina, og var í henni í fyrsta verkfallinu með BSRB árið 1977. Í því stappi, lokuð inni í Austurbæjarskóla í samningaviðræðum, þá var ég spurð hvort ég vildi koma á framboðslista Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Ég hafði þá ekki hugsað neitt um pólitík en kem frá róttæku heimili svo ég sagði já. Þannig tengdist ég inn í pólitíkina, eiginlega í gegnum trúnaðarstörf fyrir hjúkrunarfræðinga.“ Hún flutti með fjölskyldu sinni til Egilsstaða 1983 og ári síðar voru aftur verkfallsaðgerðir hjá BSRB. Þá fréttist að hún hefði einhverja reynslu og þar með var hún drifin í sveitarstjórnarmálin á staðnum. „Pólitík hafði aldrei verið á dagskrá hjá mér, en svona leiðir eitt af öðru,“ segir Þuríður. Eftir átta ár í sveitarstjórn með fullri vinnu, fjölskyldu og tilheyrandi álagi ákvað hún að hætta öllu pólitísku vafstri 1998. Það dugði nú ekki lengi því þegar VG var stofnað var talað við Þuríði. Stefna VG var eins og sniðin að hennar hugmyndafræði svo það veittist henni auðvelt að verða við beiðninni. Kjördæmið fyrir austan þótti erfitt og fyrir fram álitið vonlaust að ná inn manni. Kárahnjúkavirkjun var í uppsiglingu og búin að vera mikil mótmæli gegn henni. „En það vantaði mann til að leiða listann og ég tók mér mánaðarfrí til þess að fara í kosningabaráttuna af krafti. Svo varð ljóst á kosninganóttina að ég væri á leið inn á þing, eitthvað sem ég átti alls ekki von á,“ segir Þuríður. Áður en Ásta fór á þing var hún búin að vera virk innan Sjálfstæðisflokksins um hríð. Hún hafði verið á lista í tvennum kosningum og formaður heilbrigðisnefndar flokksins. Hún man eftir umræðu um að heilbrigðismál væru aldrei rædd inni á þingi. „En þarna vorum við svo komnar þrjár á þing. Katrín Fjeldsted læknir var þarna líka og Sif Friðleifsdóttir sjúkraþjálfari. Það voru nú ekki fleiri heilbrigðisstarfsmenn á Alþingi þá, eftir því sem ég man. Stundum hugsar maður eftir á: Hvaða gagn gerði ég? En mér fannst heilbrigðismálin komast á koppinn á þessum tíma. Mér fannst umræðan komast af stað, umræða um mismunandi rekstrarform til dæmis. Hjá félaginu var ég búin að berjast fyrir því að halda samningi sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga við Tryggingastofnun ríkisins frá 1989. Allan tímann sem ég var formaður vorum við að verja þennan samning og hugsanlega skapa hjúkrunarfræðingum annan vettvang en bara innan opinbera kerfisins. En á sama tíma voru tannlæknar, sjúkraþjálfarar og stór hluti lækna sjálfstætt starfandi. Mér fannst alltaf vera talað svolítið tveimur tungum því á sama tíma og fólk sagði: Við viljum ekki einkarekstur, eða við viljum ekki samstarf ríkis og einkaaðila, þá voru margir aðrir heilbrigðisstarfsmenn með svona samninga. Og öll öldrunarheimili voru meira eða minna rekin af einkaaðilum eða sveitarfélögum. Fólk talaði eins og það væri enginn einkarekstur og fann honum allt til foráttu. En svo komu nú þarna dæmi, t.d. gerði Ingibjörg samning um Sóltún.“ Ásta segir að á þessum tíma hafi verið ákveðin hreyfing inni á þingi þannig að það var talað meira um heilbrigðismál og „ég bara leyfi mér að þakka okkur fyrir það,“ segir hún. „Ég óskaði til dæmis eftir utandagskrárumræðu um rekstrarform í heilbrigðisþjónustu og fólk ætlaði að tala sig alveg hást, æsa sig og allt það. En svo þegar maður fór að skoða hvað var sagt í umræðunum þá var fólk miklu nær hvað öðru heldur en áður var haldið. Þannig að mér fannst verða ákveðin þróun og fannst Framsóknarráðherrarnir, þú Ingibjörg og svo Jón í framhaldinu, vera kjarkaðir.“ Ingibjörg segir að samningur um Sóltún hafi verið erfiður því það var dýrara en venjulegt hjúkrunarheimili og það vakti deilur. Enda átti Sóltún að vera fyrir allra veikustu eldri notendurna. „En þá hugsaði ég með mér: Svona eigum við að reka öll öldrunarheimili. Þetta var bara módel að því. Það hefur tekið langan tíma að fara þessa leið og við erum ekkert komin alla leið og síðan eru liðin tuttugu og eitthvað ár. En þrátt fyrir fjárskort eru hjúkrunarheimilin rekin með sérstaklega góðri þjónustu og til fyrirmyndar á flestum stöðum.“ Þuríður kemur með annað sjónarhorn. „Eitt varðandi Sóltún – eftir að hafa gert þann samning og reiknað út hvað kostaði að reka hjúkrunarþjónustu á öldrunarheimili þá hefði átt að nota það sem fyrirmynd til að byggja rekstur annarra hjúkrunarheimila á. Þau hefðu þá átt að fá samsvarandi fé. Það var það sem hefði þurft að koma í framhaldinu. Mér finnst ekki rétt að segja að vegna þess að Sóltún er einkarekið þá sé það til fyrirmyndar og bera svo saman við önnur hjúkrunarheimili vegna þess að það hefur sérstöðu sem hin öldrunarheimilin hafa ekki fengið.“ Ingibjörg segir að það sem helst standi í sér varðandi einkarekstur sé hættan á að rúsínurnar verði bara teknar út og hitt skilið eftir. Landspítalinn og aðrar grundvallarstofnanir standi svo eftir berrassaðar. „Það er mjög freistandi að geta stjórnað vinnutímanum þannig að þú sért ekki að vinna um helgar eða á nóttinni. En hver vill taka geðið? Hver vill taka hjartað? Og heilann og fæðingarnar og vökudeildina? Það er svo mikil hætta á að við brjótum þetta niður og þess vegna stendur það í heilbrigðisyfirvöldum að sjá hvernig við getum samið við einkaaðila um ákveðinn fjölda aðgerða sem kosta ákveðna upphæð og ekki meira og ekki minna.“ Þuríður segir að það þurfi að taka ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum með í reikninginn. Hingað til hafi einkareksturinn verið allt of eftirlitslaus og að það vanti ramma. Ingibjörg tekur undir það og segir að það verði að taka Landspítalann með í myndina. „Það er verið að taka inn fjölveika sjúklinga og það getur allt gerst í svona aðgerðum sem einkaaðilar ráða kannski ekki við og þá er súrt fyrir þá sem eru að vinna dag og nótt á spítalanum að taka á móti aukaverkununum eða erfiðleikunum.“ Álagið er að fara með þessa stétt Ásta segir þau viðhorf fara voðalega í taugarnar á sér að hjúkrunarfræðingar, þessi vel menntaða stétt, ætti bara að hafa sinn starfsvettvang innan ríkiskerfisins. Sem formaður félagsins leitaðist hún við að losa þarna um. Í þessu samhengi veltir hún nú fyrir sér hvort það myndi skapa vettvang fyrir hjúkrunarfræðinga sem starfa við annað til að koma til baka ef þeir hefðu aðra möguleika og gætu nýtt þekkingu sína eins og þeir lærðu fagið. Töluvert er um að hjúkrunarfæðingar starfi við annað vegna betri kjara. Þuríður telur að það sé hugsanlegt með einkarekstrinum. Það feli í sér möguleika á að geta stjórnað sínum vinnutíma og vera ekki stöðugt undir þessu mikla álagi. „Það er náttúrlega álag sem er að fara með þessa stétt. Og það er líka svo stór hópur sem er nú á efri árum og er búinn að halda uppi hryggjarstykkinu í hjúkrun á Íslandi í langan tíma.“ „ÞAÐ AÐ HJÚKRUN KALLI Á STÖÐUGA ENDURMENNTUN OG ENDURSKOÐUN GERIR VINNUNA MEIRA SPENNANDI OG GEFUR SJÚKLINGUNUM ÁN EFA MÖGULEIKA Á SKJÓTARI BATA“ 1990 1990 Hjúkrunarfélag Íslands segir sér úr BSRB
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.